Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 20. ágúst 2011 23
Á vef Ríkisskattstjóra má senda inn beiðni um endurgreiðslu
virðisaukaskatts vegna aðkeyptrar
vinnu við íbúðar- eða frístunda-
húsnæði. Húseigandi skráir sig inn
á vefinn með kennitölu sinni og vef-
lykli og fyllir út umsókn um endur-
greiðslu virðisaukaskatts. Kvittanir
þarf svo að senda í pósti. Á umsókn-
inni er fyllt út hvort um endurbætur
eða viðhald sé að ræða eða vinnu
vegna nýbyggingar svo og tegund
húsnæðisins. Næst eru fylltar inn
upplýsingar um aðkeypta vinnu,
tegund hennar og útlagðan kostnað
með og án VSK. Að því loknu eru
skráðar upplýsingar um verktaka/
fyrirtæki sem vann vinnuna og upp-
lýsingar um skiptingu kostnaðar.
Frumrit greiddra sölureikninga
þarf síðan að senda skattinum til
að umsókn sé afgreidd. Senda má
frumrit í pósti eða skila til skattsins
en ekki virðist vera boðið upp á að
skanna frum-
ritið og senda
á rafrænu
formi.
Umsóknar-
ferli þetta
er til fyrir-
myndar og
einfaldar
beiðni hús-
eigandans
um endur-
greiðslu VSK
vegna vinnu
við hús-
næði hans.
En, má nýta
þetta ferli
til að hvetja
fólk til að
hafna svartri
vinnu?
Ef svo er,
hvernig má gera það?
Tillaga mín er eftirfarandi: Fast-
eignaeigendur skili inn umsókn um
endurgreiðslu VSK. RSK afgreiðir
málið og varðveitir síðan upp-
lýsingarnar um viðhaldsverkið um
ókomna tíð. Þessar upplýsingar
geti fasteignaeigandi nálgast æ
síðan er hann eða seinni eigendur
fasteignar innar vilja skoða við-
haldssögu hennar.
Í beiðnina um endurgreiðslu á
VSK væri hægt að setja inn nokkr-
ar viðbótarupplýsingar sem væru
gagnlegar fyrir umsækjandann.
Svo dæmi sé tekið, að hægt væri að
setja inn mynd af kvittunum bæði
fyrir efni og vinnu og inn kæmu
nokkrir textareitir (staðlaðir eða
opnir) til að skrá frekari upplýs-
ingar um verkið og þann sem vann
það. Nefna má símanúmer verktak-
ans eða hversu ánægður húseigandi
var með verkið.
Kæru fasteignaeigendur, er
þetta ekki mikilvægt mál fyrir
okkur? Væri ekki dýrmætt að hafna
svartri vinnu og geta í staðinn
gengið að skjalfestum gögnum um
viðhaldsverk á eign okkar þegar
okkur hentar?
Viðhaldssaga
og virðisauki
Að vera leikskólakennari er skemmtilegasta starf sem
ég hef unnið við enda starfaði ég
sem leikskólaliði í níu ár áður en
ég hóf nám í Kennaraháskólanum
árið 2003. Ég hef þar af leiðandi
mikla reynslu af öllu því metnað-
arfulla starfi sem unnið er í leik-
skólanum. Þetta starf er svo fjöl-
breytt og gefandi að mér finnst
heiður að hafa fengið að starfa
með öllu þessu flotta samstarfs-
fólki og nemendum sem hafa
farið í gegnum leikskólann minn
í öll þessi ár.
Hlutverk mitt sem leikskóla-
kennari felst m.a. í þeirri gef-
andi vinnu að taka á móti og
aðlaga í leikskólann það mikil-
vægasta sem foreldrar eiga, sem
eru börnin þeirra: Ég er sálu-
hjálpari á erfiðum tímum í lífi
barnanna, er fyrsta hjálp þegar
þau skrapa á sér hnén eftir elt-
ingaleik, traustur vinur þegar
einhvað bjátar á og þeirra helsti
stuðnings aðili þegar yfirstíga
þarf hindranir. Í staðinn fæ ég
faðmlög, ómælda gleði í hjartað
og fullkomið traust nemenda
minna. Þetta er einungis brot
af vinnu leikskólakennara, því
okkar hlutverk er að standa vörð
um nám og velferð okkar nem-
enda.
Með námi á ég við fjölþætta
aðalnámskrá leikskóla sem við
vinnum eftir og kemur inn á
fjölmörg svið s.s. náttúru og
umhverfismennt, heilbrigði og
velferð, málrækt, lýðræði og
svona mætti lengi telja. Þetta
vinnum við með í gegnum leik
og starf allt árið um kring, þrátt
fyrir niðurskurð og góðærið sem
aldrei kom inn í leikskólann. Í
góðærinu átti leikskólinn erf-
itt uppdráttar því launin voru
svo lág að fólk sótti ekki um þau
störf sem voru laus. Í kreppunni
er þetta ekkert betra, við vinnum
undir miklu álagi þar sem flest
sveitarfélög hafa skorið niður
afleysingar og velta álaginu
yfir á starfsfólk og kennara sem
standa þó alltaf sína plikt sama
hvað sem á bjátar. Sem 35 ára
leikskólakennari með deildar-
stjórn ber ég ábyrgð á 23 tveggja
ára nemendum og fjórum starfs-
mönnum. Fyrir það fæ ég 209.409
kr. í vasann eftir skatta og launa-
tengd gjöld. Ég hef ekki lengur
efni á að vinna með gleði í hjarta.
Ég hef ekki efni á því að vinna með gleði í hjarta!
Kjaramál
Helga C.
Reynisdóttir
leikskólakennari
Fyrir það fæ
ég 209.409 kr. í
vasann eftir skatta og
launatengd gjöld. Ég hef
ekki lengur efni á að
vinna með gleði í hjarta.
Viðhald fasteigna
Þóra
Jónsdóttir
fasteignaeigandi
Væri ekki
dýrmætt að
hafna svartri
vinnu og geta í
staðinn gengið
að skjalfestum
gögnum um
viðhaldsverk
á eign okkar
þegar okkur
hentar?