Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 2
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR2
SAMFÉLAGSMÁL „Þetta virkar mjög
vel. Það er mikil gleði í kringum
þetta og fjölskyldur sjúklinganna
finna fyrir mun á sínum kær-
komnu,“ segir Halldóra Arnar-
dóttir listfræðingur. Halldóra er
skipuleggjandi nýrrar bókmennta-
smiðju sem er hluti af meðferð við
Alzheimers-sjúkdómnum. Bók-
menntasmiðjan hófst í gær með
upplestri „Hvaðefsögu“ Þórarins
Eldjárns rithöfundar úr bók sinni
Alltaf sama sagan.
Halldóra hefur skipulagt lista-
smiðjur fyrir Alzheimers-sjúk-
linga í Murcia á Spáni, þar sem
hún er búsett. Hún segir mark-
mið smiðjunnar hér vera að bæta
líf og sjálfstraust sjúklingsins sem
og fjölskyldna, að tengja þátíð og
nútíð í gegnum tilfinningaminnið,
stuðla að frekari gildum gegn for-
dómum gagnvart Alzheimers-sjúk-
dómnum og kynda undir verkefni
þar sem mismunandi kynslóðir
vinna saman.
„Í lok hvers tíma leggur sjúk-
lingurinn mat á afrakstur dagsins,
tengsl teikningarinnar og minn-
ingarinnar. Lokamarkmiðið er að
sjúklingurinn hrópi: „já, það var
svona!,“ segir Halldóra. „Við erum
að stuðla að jákvæðu hugarfari og
vinna með jákvæðar tilfinningar
eins og gleði og hamingju. Það er
mikið atriði að tala um tilfinningar
og næmið.“
Halldóra segir að smiðjurnar
hafi fengið góða dóma erlendis
og verið sé að fylgja því eftir með
athygli hvað fari þar fram. Smiðj-
unum lýkur með mikilli veislu þar
sem afraksturinn er sýndur.
„Þessi endar með útgáfu bókar
sem verður framlag þeirra til
þjóðfélagsins,“ segir hún. „Það er
mikilvægt að enda með einhvers
konar sýningu til að sýna fram á
að fólkið er verðir þjóðfélagsþegn-
ar þótt það sé haldið sjúkdómnum.
Með þessu erum við að sporna við
fordómum.“
Þórarinn Eldjárn las upp úr bók
sinni fyrir hópinn, níu manns á
aldrinum 65 til 85.
„Þetta er hið merkilegasta starf
sem hér er verið að vinna,“ segir
Þórarinn. „Ég les þessa sögu í
byrjun og síðan er hún notuð eins
og kveikja að því að sjúklingarnir
skerpi á sínu eigin minni um eitt-
hvað sem tengist sögunum.“
Minnismóttakan á Landakoti
og félagið FAAS, í samstarfi við
Þórarinn Eldjárn, Myndlistaskóla
Reykjavíkur og Þjóðarbókhlöðuna,
standa fyrir verkefninu.
sunna@frettabladid.is
Nota bókmenntir í
Alzheimers-meðferð
Bókasmiðja á vegum fjölmargra samstarfsaðila hófst með upplestri Þórarins
Eldjárn í Þjóðarbókhlöðunni í gær. Smiðjan er liður í meðferð við Alzheimers-
sjúkdómnum. Hefur gefist afar vel erlendis, segir skipuleggjandi smiðjunnar.
„HVAÐEFSAGA“ LESIN Meðferðin er talin virka afar vel og segir skipuleggjandi hennar
að aðstandendur finni mikinn mun á sínum hjartfólgnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í næstu fjórum tímum smiðjunnar taka myndlistarnemendurnir við og ger-
ast verkfæri sjúklinganna til að segja frá minningum sínum og byggja upp
söguþráð. „Þeir hafa það hlutverk að gera að minnsta kosti eina teikningu
hverju sinni, eins nákvæma eins og mögulegt er,“ segir Halldóra. „Efnistökin
eru fengin frá smásögu Þórarins.“
Í síðasta tíma smiðjunnar lesa sjúklingarnir upp sögurnar sínar við hlið
Þórarins Eldjárn með aðstoð teikninganna. Smiðjunni lýkur með útgáfu
bókar og sýningu á frásögnum sjúklinganna og teikningum nemendanna.
Myndlist, bókmenntir og minningar
LÖGREGLUMÁL Barnaverndaryfir-
völd á Seltjarnarnesi ætla ekki
að aðhafast frekar í máli foreldra
sem gleymdu barni sínu í barna-
bílstól á gangstétt í tæpa klukku-
stund.
Barnið gleymdist við Austur-
strönd á Seltjarnarnesi klukkan
hálfsjö í gærmorgun. Leigubíl-
stjóri fann barnið og kom því í
hendur lögreglu. Barnaverndar-
yfirvöldum var strax tilkynnt um
málið.
Sigrún Hvanndal Magnús dóttir,
yfirfélagsráðgjafi hjá barna-
verndaryfirvöldum Seltjarnarnes-
bæjar, segir í samtali við Vísi að
foreldrarnir hafi verið í miklu
áfalli þegar þeir áttuðu sig á því
að barnið var ekki í bílnum. Fólkið
hafi verið að hlaða bílinn af blöð-
um til útburðar snemma morguns
og verið í mikilli tímaþröng. Móð-
irin hélt að faðirinn hefði komið
barninu fyrir í bílnum og faðirinn
stóð í sömu trú.
Sigrún sagði barnið vera vel
haldið líkamlega og umönnun á
því til fyrirmyndar. Röð atvika og
eðlilegar skýringar hefðu verið á
þessu máli. Því væri ekki ástæða
til að aðhafast frekar. - sv
Foreldrar í áfalli eftir að hafa gleymt ungbarni á gangstétt á Seltjarnarnesi:
Barnaverndaryfirvöld hætt rannsókn
SELTJARNARNES Barnaverndaryfirvöld í
bænum hafa nú ákveðið að hætta rann-
sókn á málinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÖRYGGISMÁL Kynntar hafa verið
tillögur vegna mats á umhverfis-
áhrifum vegna ofanflóðagarða
undir Gleiðarhjalla í Skutulsfirði.
Markmiðið er að verja um sextíu
íbúðir í Ísafjarðarbæ við Hjallaveg
og Hlíðarveg. Garðarnir breyta
kennileitum á Ísafirði mikið enda
vel sýnilegir en til að bæta fyrir
þau útivistarsvæði sem tapast á
framkvæmdasvæðinu er gert ráð
fyrir gönguleiðum á og við varnar-
garðana, sem og ofan byggðarinnar.
Í Náttúruminjaskrá eru ekki til-
teknar neinar náttúruminjar á því
svæði sem framkvæmdir ná yfir og
í umsögnum með tillögunum kemur
fram að að samkvæmt fornleifa-
skráningu frá árinu 2002 eru engar
fornleifar taldar vera á svæðinu.
Fornleifafræðingur mun þó kanna
fyrirhugað framkvæmdasvæði.
Landgræðslan gerir ekki athuga-
semdir við matsdrögin í sinni
umsögn frekar en Umhverfisstofn-
un eða Vegagerðin.
Framkvæmdaaðili er Ísafjarðar-
bær en Framkvæmdasýsla ríkisins
hefur umsjón með verkinu. Mat á
umhverfisáhrifum annast Náttúru-
stofa Vestfjarða. - shá
Tillögur vegna mats á umhverfisáhrifum vegna ofanflóðagarða á Ísafirði kynntar:
Varnargarðurinn ver 60 íbúðir
FLÓÐAVARNIR Ofanflóðagarðarnir munu setja mikinn svip á Ísafjarðarbæ.
MYND/ÓMAR SMÁRI KRISTINSSON
BELGÍA, AP Skyndilegt ofsarok með
hagléli og úrhellisrigningu brast
á í Belgíu í gær þegar hin árlega
rokkhátíð Pukkelpop stóð hvað
hæst. Fimm manns létust og 140
slösuðust, sumir lífshættulega.
Fárviðrið svipti upp stórum
tjöldum, reif upp tré með rótum
og velti um koll stálgrindum með
ljósabúnaði og hátölurum.
Það var breska rokkhljóm-
sveitin Skunk Anansie sem var
að spila á aðalsviði hátíðarinnar
þegar ósköpin dundu yfir.
- gb
Uppnám á rokkhátíð:
Ofsarok varð
fimm að bana
FÓLK Framkvæmdastjóri Sam-
takanna ´78 segir samkynhneigða
vera óánægða með Jóhönnu Sig-
urðardóttur
forsætisráð-
herra. Hann
segir samtökin
fá fjölda fyrir-
spurna frá sam-
kynhneigðu
fólki frá öllum
heimshornum
sem vilji hitta
Jóhönnu en illa
gangi að koma
á fundum.
„Jóhanna er af gamla skólan-
um og vill vernda sitt einkalíf og
við virðum það en okkur þætti
vænt um þennan liðsstyrk,“ segir
Árni Grétar Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna. „Ég
veit að það eru stórar myndir af
henni uppi á veggjum réttinda-
skrifstofa samkynhneigðra í Afr-
íku þar sem staða þessa hóps er
hvað verst.“ - fgg / sjá síðu 70
Samkynhneigðir ósáttir:
Gagnrýna for-
sætisráðherra
REYKJAVÍK Kveikt verður á Friðar-
súlunni í Viðey á morgun og
fórnarlamba hryðjuverkanna í
Noregi minnst. 21. ágúst er í Nor-
egi tileinkaður fórnarlömbunum.
Reykjavíkurborg vill með þessu
senda innilegar samúðarkveðjur
til Norðmanna og minnast þeirra
sem létust. Kveikt er á súlunni í
samráði við Yoko Ono, en venju-
lega er ekki kveikt á henni fyrr
en 9. október.
Tónleikar verða í Viðey og Jón
Gnarr og Silje Arnekleiv munu
segja nokkur orð. Fólk er hvatt til
að mæta og koma með rauða rós
með sér. Tveir fyrir einn verður í
Viðeyjarferjuna. - þeb
Hryðjuverkin í Noregi:
Kveikt á friðar-
súlunni fyrir
fórnar lömbin
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Jón, eru Ný danskir alveg fyr
og flamme yfir tónleikunum?
„Já, vi kommer med det samme.“
Jón Ólafsson og félagar í Ný dönsk feta í
fótspor Stuðmanna í kvikmyndinni Með
allt á hreinu og halda tónleika í Kóngsins
Kaupinhafn í næsta mánuði.
HEILBRIGÐISMÁL Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans, segir það
áfall að til standi að gera frekari
niðurskurðarkröfu til spítalans.
Hann segir í föstudagspistli
sínum að ekki verði hagrætt leng-
ur heldur verði nú niðurskurður
með minni þjónustu. Útfærsla á
því hvernig það verður gert sé
verkefni næstu mánuðaða í sam-
ráði við ráðuneytið.
Fyrr í vikunni sagði Guðbjart-
ur Hannesson velferðarráðherra
að erfitt væri að sneiða framhjá
LSH, þar sem spítalinn tæki það
stóra sneið af framlögum til heil-
brigðismála. - shá
Ómögulegt að hagræða:
Ný krafa um
niðurskurð áfall
UTANRÍKISMÁL Luis Sergio Oliv-
eira, sjávarútvegs- og fiskeldis-
ráðherra Brasilíu, er í heimsókn
á Íslandi. Jón Bjarnason, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
tók á móti honum í gær.
Ráðherrarnir ræddu meðal ann-
ars um sjávarútveg, fiskveiðistjór-
nun og starfsemi Sjávarútvegs-
háskóla Sameinuðu þjóðanna sem
hefur aðsetur á Íslandi.
Þá undirrituðu þeir viljayfir-
lýsingu um samstarf og viðskipti
landanna. - mþl
Brasilískur ráðherra á Íslandi:
Efla samstarf
og viðskipti
JÓN BJARNASON OG OLIVEIRA Mikill
hagvöxtur hefur verið í Brasilíu síðustu
ár og er landið nú orðið sjöunda stærsta
hagkerfi heims.
SPURNING DAGSINS
ASUS FARTÖLVA FRÁ BOÐEIND Á AÐEINS 87.000 KR.
Hægt er að skoða vélina í
verslun Boðeindar í
Mörkinni á laugardaginn
milli 13.00 og 17.00.
www.bodeind.is/k53e.html
20 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
87.000 kr. GILDIR 48 TÍMA
145.000 kr.
Verð
40%
Afsláttur
58.000 kr.
Afsláttur í kr.