Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 102
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR62
sport@frettabladid.is
BIRKIR BJARNASON varð fyrir því óláni að stýra knettinum í eigið mark þegar að lið hans, Viking,
tapaði fyrir Odd Grenland, 4-2, í norsku úrvalsdeildinni í gær. Hann átti stóran þátt í síðara marki sinna
manna en skot hans breytti um stefnu á liðsfélaga sem fékk markið skráð á sig.
Hlynur Bæringsson körfuboltamaður
FÓTBOLTI Valur á titil að verja en
liðið bar sigurorð af Stjörnunni í
úrslitaleiknum í fyrra. Flestir eru
sammála um að Valsliðið sé það
best mannaða á Íslandi enda gerði
liðið markmið sín opinber snemma
í sumar. Liðið ætlaði að vinna báða
titlana sem í boði voru en nú virð-
ist Íslandsmeistaratitillinn runn-
inn því úr greipum.
„Þetta er önnur keppni. Við
ætlum okkur að sjálfsögðu að
vinna hana og við þurfum að klára
okkar. Það er ekki bara um fyrsta
sætið að keppa því Evrópusæti er
líka í húfi. Við klárum allt með
hógværð og gerum okkur grein
fyrir því að það gerist ekkert af
sjálfu sér,“ segir Gunnar Borg-
þórsson, þjálfari Vals.
Pála Marie Einarsdóttir, varnar-
maður Vals, er sammála. „Já, hinn
er nánast kominn í Garðabæinn en
þessi er ennþá í Reykjavík og við
ætlum að skella honum á Hlíðar-
enda, þar sem hann á að vera.“
Reynslan mætir reynsluleysinu
Valur hefur oftast allra liða orðið
bikarmeistari í kvennaflokki, alls
ellefu sinnum. Flestir leikmenn
liðsins hafa spilað áður í úrslitum
og nokkrir eru hoknir af reynslu.
Embla Grétarsdóttir og Kristín Ýr
Bjarnadóttir leika til að mynda í
úrslitum í áttunda skipti.
„Ég tel að það hjálpi hópnum.
Sérstaklega af því að við erum
með mjög blandaðan hóp. Margar
ungar stelpur sem hafa ekki tekið
þátt í þessu og hins vegar stelp-
ur sem hafa spilað þessa leiki og
kunna það. Vikan og undirbúning-
urinn er auðveldari fyrir vikið,“
segir Gunnar þjálfari Vals.
KR-liðið er töluvert reynslu-
minna en Valsliðið. Nokkrir leik-
menn liðsins hafa spilað úrslita-
leiki sem þennan en aðrir munu
spila sinn fyrsta leik á þjóðarleik-
vangnum.
„Það er smá stress en ég er líka
mjög spennt. Ég hef aldrei spilað
áður á Laugardalsvelli þannig að
þetta er stór stund,“ segir Berglind
Bjarnadóttir miðjumaður KR.
Liðin í ólíkum málum í deildinni
Staða liðanna á Íslandsmótinu er
gjörólík. Valskonur eru í öðru sæti
og hafa aðeins tapað tveimur leikj-
um í sumar. Sigrar KR eru jafn-
margir og liðið í bullandi fallbar-
áttu. Liðin mættust á Valsvelli í
áttundu umferð Pepsi-deildar og
þar vann Valur öruggan 3-1 sigur.
Þá hefur Valur skorað tæplega
þrisvar sinnum fleiri mörk en KR-
liðið í deildinni en KR-ingar hafa
verið í vandræðum sóknarlega.
Liðið hefur aðeins skorað mark að
meðaltali í leik í deildinni.
Björgvin Karl Gunnarsson,
þjálfari KR, segir leikinn stóra
stund fyrir sína leikmenn.
„Við lítum á það sem algjör-
an bónus að vera hérna. Það er
engin pressa á okkur. Það setja
allir sinn pening á Valsliðið þann-
ig að við höfum engu að tapa. Við
eigum bara von um góða skemmt-
un og góða stund. Það er það sem
við ætlum að gera númer eitt, tvö
og þrjú,“ segir Björgvin Karl.
Hann segir Valsliðið gríðarlega
sterkt, best mannaða kvennalið á
Íslandi í langan tíma að hans mati.
Það hafi þó sýnt sig að það geti
tapað leikjum.
„Þær eru búnar að tapa tveimur
leikjum í sumar þannig að þær eru
kannski ekki óvinnandi vígi. En
þetta er gríðarlega sterkt lið sem
er enn í smá baráttu við Stjörn-
una um titilinn. Þetta verður afar
erfitt,“ segir Björgvin.
Lilja Dögg Valþórsdóttir, fyrir-
liði KR, þekkir vel til í herbúðum
Vals en hún er uppalin hjá Hlíðar-
endastelpum. Hún segir ekki laust
við að hún sé meira gíruð í leikinn
vegna þess að mótherjinn er Valur.
„Já, jafnvel. Mér finnst alltaf
voðalega gaman að spila á móti
Val og ekki verra að vinna þær.
Ég spilaði náttúrulega fyrir Val
á sínum tíma og þótt það sé orðið
svolítið langt síðan það var er
alltaf gaman að vinna sína gömlu
félaga,“ segir Lilja.
Flautað verður til leiks á
Laugardalsvelli í dag klukkan 16.
kolbeinntd@365.is
Erkifjendurnir berjast um bikarinn
Reykjavíkurliðin KR og Valur mætast í úrslitaleik Valitor-bikars kvenna á Laugardalsvelli í dag. Flestir
reikna með sigri Valskvenna, enda liðið með sterkari leikmenn og reyndara en ungt lið KR.
BROSANDI MEÐ BIKARINN Það fór vel á með fyrirliðunum Lilju Dögg Valþórsdóttur úr KR og Málfríði Ernu Sigurðardóttur úr Val í
vikunni. Aðeins önnur þeirra fær að handleika bikarinn að loknum leiknum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Valur og KR hafa þrívegis áður mæst í úrslitaleik bikarsins. Valur
hefur unnið einu sinni og KR tvisvar. Liðin mættust síðast í
úrslitum árið 2008 þegar KR vann stórsigur 4-0.
Hólmfríður Magnúsdóttir, leikmaður Vals, spilaði í svörtum og
hvítum búningi KR í leiknum og skoraði þrennu.
„Ég gleymi ekkert afmælisdeginum mínum 2008. Fyrir leikinn
héldu flestir að Valur myndi taka þetta. Það var alltaf mikill rígur
milli félaganna. Bæði lið voru sterk en Valsliðið var sterkara á
pappírnum. Það skiptir ekki máli þegar komið er út í svona leik.
Þetta er bara 50/50 leikur og dagsformið ræður þessu. Þetta er
bara einn leikur og að duga eða drepast.“
Hólmfríður segir það vafalítið verða skrýtið að spila gegn sínu
gamla liði en einnig skemmtilegt.
„KR-liðið í dag er mjög breytt og ég held að ég hafi æft
með tveimur stelpum úr öllum leikmannahópi liðsins í
dag. Ég þekki því mjög lítið til KR-liðsins. Þetta er eigin-
lega algjörlega nýtt lið.“
Þrenna Hólmfríðar í úrslitaleiknum 2008
Mánudagur, 22. ágúst
KR - Stjarnan kl.18.00
KR-völlur
Grindavík - Víkingur R. kl.18.00
Grindavíkurvöllur
Fylkir - Breiðablik kl.18.00
Fylkisvöllur
Fram - Valur kl.19.15
Laugardalsvöllur
Sunnudagurinn 21. ágúst
ÍBV - Keflavík kl.16.00
Hásteinsvöllur
FH - Þór kl.17.00
Kaplakrikavöllur We are creatures of habit, we are
what we repeatedly do, excellence
therefore, is not an act, but a habit.
(Við erum vanafastar verur. Við
erum það sem við gerum, aftur og
aftur. Að skara fram úr er því ekki
athöfn, heldur ávani.)
Þetta sagði gríski heimspekingurinn
Aristóteles fyrir meira en 2000 árum,
þessa línu heyri ég nánast daglega
frá þjálfaranum mínum. Því meira
sem ég spái í þessi orð því meira
finnst mér til þeirra koma.
Boðskapurinn er sá að mann-
skepnan kemur sér alltaf upp
ávönum, bæði góðum og slæmum,
það er auðvelt að mynda vítahring
en erfiðara að losna úr honum, það
þekkja allir. Góðir ávanar koma ekki
af sjálfum sér, það krefst vinnu og
aga. Ef það tekst þá er eftirleikurinn
auðveldari, velgengni er yfirleitt
afleiðing þess að fólk hefur vanið sig
á að breyta rétt. Það á við um alla
flóruna, vinnu, skóla, tónlist, íþróttir
og bara daglegt líf.
Ég vildi óska þess að ég hefði
gefið þessu gaum fyrr á ferlinum.
Þá væri ég vafalaust mun betri
en ég er í dag. Því flest af því sem
mannskepnan gerir er það sem hún
hefur vanið sig á. Það að stunda
lyftingar af krafti og vinna í sjálfum
sér almennt er gott dæmi um góða
ávana sem er erfitt að venja sig á
en verður svo ómissandi hluti af
deginum þegar það tekst.
Ég er satt best að segja alltaf að
berjast við að gera rétt, er að skána
en ansi margt sem má laga. Mörgum
af hæfileikaríkustu íþróttamönnum
sögunnar hefur mistekist að verða
besta útgáfan af sjálfum sér því
lífsstíll þeirra hefur verið yfirfullur af
slæmum ávönum.
Ungir íþróttamenn og þjálfarar
þeirra ættu því að huga snemma
að því að koma sér upp góðum
ávönum, því eins og Aristóteles sagði
þá er það að verða mjög góður í
einhverju (excellence) ekki eitt-
hvað sem bara gerist, heldur ávöxtur
góðra ávana.
Þetta er mín uppáhaldstilvitnun,
ég ætla að enda pistilinn á orðum
sem mér finnst eiga vel við í fram-
haldi af henni.
Sow a thought, and you reap
an act, sow an act, and you reap a
habit, sow a habit, and you reap a
character, sow a character, and you
reap a destiny.
(Af hugsun er athöfn komin. Af
athöfn er ávani kominn. Af ávana
er persónuleiki kominn. Af persónu-
leika eru örlög komin.)
Góðir og slæmir ávanar
HANDBOLTI Tilkynnt verður um
ráðningu Patreks Jóhannessonar
sem landsliðsþjálfara Austurríkis
á mánudaginn kemur, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Munn-
legt samkomulag er í höfn um
tveggja ára samning.
Patrekur þjálfaði síðast lið TV
Emsdetten í þýsku B-deildini en
fluttist aftur til Íslands með fjöl-
skyldu sinni í vor. Hann mun
væntanlega áfram búa á Íslandi
en sinna þjálfun austurríska
landsliðsins í hlutastarfi.
Stutt er síðan Dagur Sigurðs-
son var þjálfari Austurríkis, en
hann náði frábærum árangri með
liðið. Eftirmaður hans, Svíinn
Magnus Andersson, náði ekki að
fylgja því eftir og hafa nú for-
ráðamenn austurríska handknatt-
leikssambandsins ákveðið að leita
aftur til Íslendings. - esá
Patrekur Jóhannesson:
Næsti þjálfari
Austurríkis
PATREKUR Náði fínum árangri með TV
Emsdetten á síðustu leiktíð.
MYND/BERND OBERHEIM
1. deild karla
KA - Selfoss 1-2
0-1 Arilíus Marteinsson, 0-2 Viðar Kjartansson,
1-2 Davíð Rúnar Bjarnason.
Þróttur - Víkingur Ó. 0-4
0-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (17.),
0-2 Artjoms Goncars (19.), 0-3 Þorsteinn Már
Ragnarsson (83.), 0-4 Artjoms Goncars (90.).
Leiknir - ÍR 1-2
0-1 Haukur Ólafsson (15.), 0-2 Halldór Arnarsson
(42.), 1-2 Vigfús ARnar Jósepsson (63.).
ÍA - Haukar 0-2
0-1 Alieu Jagne (75.), 0-2 Hilmar Rafn Emilsson
(82.).
STAÐAN
ÍA 18 14 2 2 44-11 44
Selfoss 18 11 2 5 33-16 35
Haukar 18 8 5 5 23-17 29
Víkingur Ó. 18 8 4 6 28-20 28
BÍ/Bolungarv. 17 8 4 5 22-25 28
Þróttur 18 8 2 8 22-35 26
Fjölnir 16 6 6 4 24-25 24
KA 17 6 2 9 22-29 20
Grótta 17 4 7 6 14-20 19
ÍR 18 5 4 9 22-32 19
Leiknir 18 3 4 11 23-27 13
HK 17 0 6 11 14-34 6
ÚRSLIT