Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 8
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR8 TYRKLAND27. ágúst í 10 nætur frá aðeins 119.900 kr. – með allt innifalið Tyrkland í ágúst Verð frá 119.900 kr. í 10 nætur með allt innifalið Verð frá 129.900 kr. í 10 nætur með allt innifalið Beint flug með Icelandair NEYTENDUR Penninn Eymundsson í Kringlunni er með hæsta verð á nýjum skólabókum í flestum til- fellum, samkvæmt nýrri verð- könnun ASÍ. Griffill er oftast með lægsta verðið. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skóla- bókum fyrir framhaldsskóla í verslunum á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 17. ágúst. Farið var í átta verslanir og skoðað verð á þrjátíu algengum skólabókum. Af 30 titlum var Penninn Eymundsson með hæsta verðið á 27. Griffill var með lægsta verð- ið á 20 titlum. Forlagið á Fiskislóð og Office 1 voru næstoftast með lægsta verðið, eða á fjórum titlum. Mestur verðmunur var á ensku- bókinni „The Lord of the Flies“, en bókin var dýrust á 2.299 krónur í Pennanum Eymundsson og ódýr- ust á 1.345 krónur í Griffli. Mikill verðmunur var einnig á skiptibókum, en í þeim verslunum þar sem skiptibókamarkaðir voru var Griffill oftast með lægsta útsöluverðið á notuðum skólabók- um. Penninn Eymundsson var hins vegar oftast með hæsta útsölu- verðið á notuðum skólabókum. - sv Ný verðkönnun ASÍ á nýjum og notuðum skólabókum sýnir mikinn verðmun: Allt að 71 prósents verðmunur SKÓLABÆKUR Verðkönnun ASÍ leiddi í ljós að Penninn Eymundsson í Kringlunni er oftast með hæsta verðið á nýjum skólabókum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins- son tekur undir kröfur margra þjóðarleiðtoga um að Bashar al Assad, forseti Sýrlands, víki úr embætti. Utanríkis- ráðherrann fordæmir framferði sýr- lenskra stjórn- valda, ofbeldi gegn óbreytt- um borgurum, fjöldahand- tökur og pyntingar. Þá segir í tilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu að aðgerðir sýrlenskra stjórnvalda séu gróft brot á alþjóðlegum mannréttindasátt- málum og grimmdarleg árás á réttmætar kröfur íbúa um umbætur og lýðræðisþróun. - þeb Mannréttindabrot í Sýrlandi: Össur vill Assad frá völdum ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON FRAKKLAND Mannkyninu hefur fjölgað hratt síðustu áratugina. Síðar á þessu ári er reiknað með því að við verðum sjö milljarð- ar alls, samkvæmt nýrri spá franskra fræðimanna sem nota tölur frá Sameinuðu þjóðunum. Örlítið er byrjað að hægja á fjölgun mannkynsins, því tólf ár eru liðin frá því við vorum sex milljarðar talsins en reiknað er með að fjórtán ár líði þangað til áttundi milljarðurinn næst. Um miðja þessa öld má síðan reikna með að við verðum orðin níu milljarðar eða ríflega það. Búist er við að mannfjölgun- in haldi síðan áfram allt þar til við náum tíu milljarða markinu undir lok aldarinnar. Ríflega helmingur mannkyns býr í sjö fjölmennustu ríkjum jarðar. Fjölmennastir eru Kín- verjar, sem eru 1,33 milljarðar, en næst koma Indverjar sem eru 1,17 milljarðar. Innan fárra ára- tuga munu Indverjar reyndar verða orðnir fleiri en Kínverjar. Þriðja fjölmennasta landið er Bandaríkin með 307 milljónir, en þar á eftir koma Indónesar, sem eru 243 milljónir, Brasilíumenn, sem eru 191 milljón, Pakistanar, sem eru 181 milljón og Nígeríu- búar, sem eru 162 milljónir tals- ins. Hraðast fjölgar fólki í Afríku- ríkjum sunnan Sahara-eyðimerk- urinnar, en einnig í sumum hér- uðum Afganistans, norðanverðu Indlandi og hluta Arabíuskagans. Þetta eru einmitt þau svæði jarð- ar þar sem fátæktin er mest og fólk á erfiðast uppdráttar. Hér á Vesturlöndum og annars staðar, þar sem velmegun ríkir að mestu, mun mannfjöldinn að mestu standa í stað. Á þessum svæðum verður fólk hins vegar æ eldra þannig að hlutfall yngra fólks mun lækka. Mannkyninu hefur reyndar fjölgað stöðugt frá árinu 1800 þegar við vorum „ekki nema“ einn milljarður. Tveggja millj- arða markið náðist árið 1925 en næstu áratugina þar á eftir tók fjölgunin kipp og árið 1970 var mannfjöldinn orðinn fimm millj- arðar. gudsteinn@frettabladid.is Milljarðarnir að verða sjö Í lok október nær mannkynið sjö milljörðum. Fyrir aðeins tólf árum vorum við sex milljarðar en þurf- um núna fjórtán ár til að fylla áttunda milljarðinn. INDVERJUM FJÖLGAR HRAÐAST Um miðja þessa öld má reikna með því að Indverjar verði orðnir fleiri en Kínverjar. NORDICPHOTOS/AFP Forvarnarsjóður Reykjavíkur Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki til forvarnarverkefna úr Forvarnarsjóði Reykjavíkur. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einstökum hverfum eða almennt í borginni. Hverfisráð veita styrki til verkefna í hverfum, en velferðarráð til almennra verkefna í borginni að fenginni umsögn samráðshóps um forvarnir. Upplýsingar um úthlutunarreglur, umsóknareyðublöð og tengiliði er að finna á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/forvarnarsjodur Hlutverk sjóðsins er að stuðla að forvörnum og styrkja félagsauð í hverfum Reykjavíkur. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til verkefna sem styðja: Forvarnir í þágu barna og unglinga. Eflingu félagsauðs í hverfum borgarinnar. Bætta lýðheilsu. Markvisst samstarf íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja og borgarstofnana í þágu forvarna og félagsauðs. Önnur verkefni sem mæta þeim markmiðum sem borgarstjórn setur hverju sinni. Verkefnin gefa einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum tækifæri til að vinna að forvörnum í borginni. Til úthlutunar úr Forvarnarsjóðnum að þessu sinni koma alls 10 milljónir króna. Umsóknum skal skilað á vef Reykjavíkurborgar eigi síðar en 23. september 2011.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.