Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 65
LAUGARDAGUR 20. ágúst 2011 19
Tillaga til þingsályktunar um
áætlun um vernd og orkunýtingu
landsvæða. Samráðs og
kynningarferli.
Iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti auglýsa hér
með í samræmi við ákvæði til bráðabirgða í lögum nr.
48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, sbr. 3. mgr.
10. gr. sömu laga, tillögu til þingsályktunar um áætlun um
vernd og orkunýtingu landsvæða. Jafnframt er auglýst
umhverfismat á tillögunni í samræmi við 7. gr. laga um
umhverfismat áætlana nr. 105/2006 þar sem gerð er grein
fyrir áhrifum áætlunarinnar á umhverfið.
Þingsályktunartillagan er unnin í samræmi við 3. gr. laga
nr. 48/2011. Markmið verndar- og orkunýtingaráætlunar
er að tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna
virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og
heildstæðu hagsmunamati þar sem tekið er tillit til
verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja,
hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta og annarra
gilda sem varða þjóðarhag, svo og hagsmuna þeirra
sem nýta þessi sömu gæði, með sjálfbæra þróun að
leiðarljósi.
Þingsályktunartillöguna ásamt umhverfisskýrslu
og öðrum fylgiskjölum, má nálgast á heimasíðu
rammaáætlunar, www.rammaaaetlun.is.
Allir sem hagsmuna eiga að gæta og aðrir sem áhuga
hafa, eru hvattir til að kynna sér þingsályktunartillöguna
og umhverfisskýrsluna og senda athugasemdir og
ábendingar.
Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út á miðnætti
föstudaginn 11. nóvember, 2011.
Óskað er eftir því að athugasemdum verði skilað á rafrænu
formi á heimasíðu rammaáætlunar, rammaaaetlun.is, eða
í pósti til iðnaðarráðuneytis, Arnarhvoli, 150 Reykjavík,
með nafni, kennitölu og heimilisfangi viðkomandi.
Að loknu samráðs og kynningarferli gengur iðnaðar-
ráðherra í samráði og samvinnu við umhverfisráðherra frá
endanlegri tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd
og orkunýtingu landssvæða og leggur fram á Alþingi.
Nánari upplýsingar um samráðs- og kynningarferlið er að
finna á heimasíðu rammaáætlunar, www.rammaaaetlun.is.
Iðnaðarráðuneytið og umhverfisráðuneytið
Iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti
Úttektir á starfsemi leik-, grunn- og
framhaldsskóla
Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir
hér með eftir aðilum til að taka að sér verkefni á sviði
úttekta á starfsemi leik-, grunn- og/eða framhaldsskóla
á haustmisseri 2011 og skal verkefnið innt af hendi
á tímabilinu október til desember. Um er að ræða
stofnanaúttektir á þremur skólum á hverju skólastigi.
Úttektirnar eru gerðar í samræmi við ákvæði 20.
gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla, 38. gr. laga nr.
91/2008 um grunnskóla og 42. gr. laga nr. 92/2008
um framhaldsskóla, sjá www.menntamalaraduneyti.
is/log-og-reglugerdir/
Sækja má um allar úttektirnar á hverju skólastigi eða
hluta þeirra. Gert er ráð fyrir að úttekt í hverjum skóla
sé í höndum tveggja manna teymis. Mikilvægt er að
a.m.k. einn einstaklingur í teyminu hafi nokkurra ára
reynslu af kennslu á viðkomandi skólastigi en má þó
ekki vera starfandi í skóla á skólaárinu 2011-2012.
Saman skal teymið hafa menntun og reynslu á sviði
úttekta og skólastarfs á viðkomandi skólastigi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil skulu berast ráðuneytinu fyrir 8. september
2011. Nánari upplýsingar gefa Margrét Harðardóttir
og Védís Grönvold á mats- og geiningarsviði
ráðuneytisins.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
17. ágúst 2011.
menntamálaráðuneyti.is
Styrkir til atvinnuleikhópa 2012
Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2012
til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda
fjárveitingu á fjárlögum.
Umsóknir geta miðast við einstök verkefni eða samfellt
starf til lengri tíma, sbr. 16. gr. leiklistarlaga nr.
138/1998, og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins
eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum
2012 í þessu skyni kann að segja til um.
Umsóknir skulu berast til mennta- og menningar-
málaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
kl. 16:00 mánudaginn 3. október 2011, á eyðublöðum
sem þar fást. Eyðublöðin og úthlutunarreglur er einnig
að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.
Umsóknarfrestur er til 3. október 2011 kl. 16:00.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 19. ágúst 2011.
menntamálaráðuneyti.is
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
ÚTBOÐ ÚTBOÐ
Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamningakerfi ríkisins á
hverjum tíma, standa fyrir þessu útboði á ráðgjöf í upplýsingatækni.
Margskonar sérfræðingar koma til greina svo sem tölvunarfræðingar,
hugbúnaðarsérfræðingar, forritarar, stærðfræðingar og fleiri.
Kaupendur hjá hinu opinbera þ.e. ríki og sveitarfélög eru að leita að
sérfræðingum sem eru þekktir fyrir að uppfylla kröfur útboðsins, til
dæmis á eftirfarandi sviðum:
• Hugbúnaðargerð
• Stefnumótun og þróun í upplýsingatækni
• Verkefnastjórnun
• Þarfagreining
• Ferlagreining
• Þjálfun í stjórnun UT mála
• Liðsauki, þjálfun og stuðningur
• Rafræn viðskipti
• Ráðgjöf í útvistun
• Skjala og þekkingarstjórnun
• Þjónusta við opinn hugbúnað
Gert er ráð fyrir því að samið verði við fleiri en einn aðila um viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og
aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is eigi síðar en 24. ágúst.
Opnunartími tilboða er 4. október kl.11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni
7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
15107 – Ráðgjöf í upplýsingatækni
og ýmis önnur sérfræðiráðgjöf á því sviði
RAMMASAMNINGUR MEÐ ÖRÚTBOÐUM
sími: 511 1144
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar
á visir.is/dreifing