Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 22
22 20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR Nú eru framundan miklir dagar til handa íslenzkum útgefendum og rithöfundum: bókakaupstefnan stóra í Frank- furt am Main. Þar skipar Ísland heiðurssess þetta árið. Þann heiðurssess eigum við sér í lagi að þakka íslenzkum fornbók- menntum eins og fleira gott fyrr og síðar. Þær ásamt helztu skáld- sögum Halldórs Laxness eru einu heimsbókmenntirnar í fyllsta skilningi sem við getum státað af og því er fagnaðarefni að nú skuli koma út nýjar þýðingar þessara gersema á þýzku. Óskandi er að vel hafi til tekizt. Í því sambandi get ég ekki stillt mig um að rifja upp lítilræði: Síðla hausts 1952 fór ég náms- maður til Kölnar við Rín, nýbak- aður stúdent. Ég sté þar út úr næturlest frá Hamborg árla morguns. Þegar ég kom út á torg- ið framan við járnbrautarstöð- ina varð mér litið í glugga bóka- búðar stutt frá aðalútgöngunni og hvað rek ég augun í annað en Íslandsklukkuna! Þýzkri þýð- ingu sögunnar hafði verið stillt upp í sýningarglugga þannig að hún var auðsæilega ný af nál- inni. Ég var einn á ferð, kominn til stórborgar sem hafði að mestu hrunið til grunna í styrjöldinni og þessi sjón, Íslandsklukkan á fínum stað í glugganum, ylj- aði mér samstundis um hjarta- rætur. Samt sem áður kynnti ég mér aldrei þýðinguna, en glöggur maður tjáði mér veturinn eftir að hún væri víst síður en svo galla- laus, til dæmis hefði þýðandinn ekki skilið orðið Ólafsvíkingar (á Snæfellsnesi) og snúið því þannig að Ólsararnir urðu að víkingum Ólafs helga Noregskonungs. Slíkt og þvílíkt hendir á beztu bæjum í þýðingabransanum og skyldi eng- inn gera sig digran. Ekki mun skekkjan sú, né ef til vill aðrar sem ég kann ekki skil á, hafa truflað Nóbels- höfundinn Hermann Hesse. Hann las Íslandsklukkuna í þess- ari þýðingu og birti lofsamlegan dóm um söguna í blaði eða tíma- riti, man ekki hvort heldur var, rakst á grein hans fyrir tilviljun. Hesse var lengi einhver virtasti umsagnarmaður í bókmennta- heiminum þýzka. Nú heyrist í fréttum að þýdd hafi verið á þýzku gomma af íslenzkum bókmenntum í tilefni kaupstefnunnar í Frankfurt. Þar má búast við ýmiss konar „Ólafs- víkingum”, en ekki er til neins að gera sér rellu út af því. Þetta fer allt saman vel að lokum. Mig rámar í að Knut Hamsun héldi því fram að norrænir höf- undar mættu einungis þakka það þýzka bókamarkaðinum hafi þeir náð alþjóðlegri frægð. Sennilega er talsvert til í þessu. Þýzki bóka- markaðurinn, þar sem prentlistin hófst, hefur löngum verið öflugur og þó aldrei sem nú. Ég las fyrir skemmstu í „Frankfurter Allge- meine Zeitung“ að síðastliðinn áratug hefði viðskiptaveltan hjá þýzkum útgefendum og bóksölum numið 9-10 milljörðum evra ár hvert og skarað fram úr veltunni á öðrum sviðum menningar og mennta, svo sem kvikmynda, tón- listar og leikjaframleiðslu. Næst- liðið ár var sérstaklega hagstætt bókamarkaðinum í Þýzkalandi, þá voru bækur og fagtímarit seld þar fyrir samtals 9,7 milljarða evra og nýir titlar fleiri en áður, urðu 84.351 stóð í blaðinu. Inn á þennan risamarkað göng- um við Íslendingar nú í halarófu, tökum ofan lambhúshetturnar og segjum „guten Tag“. En ég er þess fullviss þrátt fyrir allt og allt að Halldór Guðmundsson, rit- stjóri íslenzkra bókmennta í heild að fornu og nýju, muni vel fyrir sjá. Og vitaskuld gerir maður sér vonir um að skoðun Hamsuns, sú sem vísað var til, sanni gildi sitt og einhverjir höfundar ríði feit- um hesti frá kaupstefnunni. Það hlýtur að teljast sjálfsagð- ur hlutur að forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, sá kunni Evrópusinni og ágæti náttúruvísindamaður, einkum á sviði jöklafræði, eldfjallafræði og loftslagsfræði, mæli nokkur orð þarna í Frankfurt, í fæðing- arborg Goethes og höfuðstöðvum evrunnar. Glamuryrði forsetans um okkur Íslendinga eru jafnan vel þegin bæði hér heima og utan- lands. Þau laga sig að vísu hverju sinni eftir aðstæðum, jafnt fyr- irhrunsglamrið sem eftirhruns- glamrið, enda er forseti lýðveld- isins búinn einum af mörgum merkilegum kostum Óðins. Í Yng- lingasögu segir Snorri um Óðin „að hann kunni þær íþróttir, að hann skipti litum og líkjum á hverja lund, er hann vildi“. Það ætti einkar vel við að for- seti lýðveldisins talaði í Frank- furt um heimsbókmenntirnar. Í fyrsta lagi vegna þess að á uml- iðnum árum hefur hann sérhæft sig í að setja alla atburði og öll atvik, sama hversu smá þau voru, í heimssögulegt ljós; í annan stað fyrir þá sök að Goethe, nafn- kenndasti sonur Frankfurtborg- ar, bjó til hugtakið heimsbók- menntir („Weltliteratur”). Ég segi fyrir mína parta að ég treysti engum manni betur en forseta lýðveldisins til að gera sér mat úr hugtaki Goethes, okkur öllum til frægðar og frama. Frægð og frami Í grein hér í blaðinu 3ja ágúst síðastliðinn gerði ég tilraun til að meta gjaldeyriskostnað tengd- an útflutningi lambakjöts að verðmæti 2,75 milljarða króna á árinu 2010. Í samhljóma aðsend- um greinum í Fréttablaðinu og Bændablaðinu gerir for- stöðumaður félagssviðs Bændasamtaka Íslands tilraun til að bæta ágisk- anir mínar í þessum efnum. Forstöðumaður félags- sviðs Bændasamtaka Íslands hefur aðgang að betri og fyllri upplýsing- um um framleiðslukostn- að lambakjöts en ég hef sem aðeins hef prentuð gögn frá Bændasamtök- unum að styðjast við. Það ætti því að vera hægur vandi að laga og bæta grófa útreikninga mína. Það gerir forstöðumaður- inn ekki. Forstöðumaður- inn gefur sér að kindakjöt sé flutt út í grisjupokum í heilum skrokkum og kíló- verð útflutnings þannig sambæri- legt við kílóverð til bænda. Þetta er ekki rétt. Það eru betri bitar sem eru fluttir út. Þess vegna er kílóverð sem Hagstofan gefur upp í útflutningsskýrslum hærra en kílóverð þegar bændur selja í heil- um skrokkum til afurðastöðva. Tilkostnaður við að fram- leiða kindakjöt sem gefur af sér 2,75 milljarða króna í útflutn- ingstekjur er umtalsverður. Sé stuðst við tölur úr búreikningum Bændasamtakanna er kostnað- ur vegna aðfanga (olía, áburður, rúlluplast, þjónusta dýralækna o.s.frv.) um 2,7 milljarðar króna. Reiknuð laun bónda, vaxtagjöld og afskriftir tækja og bygginga nemur samkvæmt sömu heimild um 2,6 milljörðum króna. Bein- greiðslur eru á bilinu 0,4 til 1,1 milljarður króna. Þessi útflutn- ingsstarfsemi er rekin með 1,5 til 2ja milljarða tapi þrátt fyrir stuðning skattgreiðenda. Tapið er fjármagnað af afskriftasjóði bænda og af fjármálastofnun- um. Ekki er í þessum útreikn- ingum tekið tillit til kostnaðar vegna grasnytja utan heimalanda. Kostnaður vegna upp- græðslu og landabóta á afréttum lendir að mestu leyti á skatt- greiðendum og er umtalsverður. Í grein minni gisk- aði ég á að ríflega 40% aðfanga væri erlendur að upp- runa. Sumir kolleg- ar mínir hafa gagn- rýnt þá ágiskun og telja að um vanmat sé að ræða. En 40% af 2,7 milljörðum er 1,1 milljarður. Forstöðu- maður félagssviðs BÍ reiknar erlendan tilkostnað með hlið- sjón af söluverðmæti afurðanna. Söluverð- mætið er um helm- ingur framleiðslukostnaðarins. Það ætti að vera vel þekkt á 3ju hæðinni á Hótel Sögu. Benda má forstöðumanninum á grein eftir Jónas Bjarnason hjá Hagþjónustu landbúnaðarins frá 2008 sem ber heitið: „Stuðningur við sauðfjár- rækt nam 61% af verðmætasköp- un í greininni 2006“, sjá http:// www.hag.is/pdf/annad_utgefid/ Studn_vid_saudfjarr2006.pdf. Aðferðafræði forstöðumannsins felur því í sér um helmings van- mat á erlendum tilkostnaði við framleiðslu útflutts kindakjöts. Hæpinn gjaldeyris- ávinningurMenning Hannes Pétursson rithöfundur Börn eru blessun heimsins. Allt sem lýtur að velferð þeirra og lífshamingju hlýtur að koma okkur við.“ (Vigdís Finn- bogadóttir). Börnin okkar eru það dýrmætasta sem við eigum og við viljum aðeins það besta fyrir þau. Leikskólakennarar og aðrir starfsmenn innan leikskól- anna vinna mikið ábyrgðarstarf, það vitum við öll sem eigum börn. Leikskólar eru ekki geymslu- kassar fyrir börnin okkar þar sem markmiðið er að „geyma“ börnin meðan við foreldrar sinn- um vinnu okkar. Leikskólar eru ákveðið samfélag þar sem litl- ir einstaklingar ráða ríkjum en leikskólakennarar hafa ákveðna sérþekkingu á því hvernig byggja megi upp leikskólasamfélag þar sem þarfir barnanna eru hafðar í fyrirrúmi. Á leikskólum er unnið út frá hugmyndafræðilegum bak- grunni sem hver leikskóli vinn- ur út frá en börnin okkar fá að þroskast og dafna út frá leiknum. Störf leikskólakennara eru mikilvæg, mjög mikilvæg. Við leggjum traust okkar á starfs- menn leikskólanna, við treystum þeim fyrir sólargeislunum í lífi okkar. Við vitum að það er unnið metnaðarfullt starf á leikskól- unum en leikskólakennarar hafa menntað sig til þess að byggja upp kærleiksríkt leikskólasam- félag þar sem börnin okkar fá að þroskast og dafna í. Verðmæt- in sem leikskólakennarar hafa í höndunum eru börnin okkar og því er þetta starf afskaplega dýr- mætt. Verðmiðinn á starfinu er því miður ekki í samræmi við þá menntun sem starfið krefst og þá ábyrgð sem lögð er á herðar leik- skólakennara og annarra starfs- manna innan leikskólanna. Ef starf snýst um peninga hækk- ar verðmiðinn á starfinu en ef ég hef barn í höndunum læ kkar verðmiðinn. Laun leikskólakennara eru til skammar, það er alveg ljóst. Þeir eiga langt í land með að fá þau laun sem samræmast menntun þeirra og ábyrgð. Núna eru þeir að berjast fyrir litlu skrefi í átt að því sem þeir eiga skilið að fá fyrir starf sitt. Ég styð leikskóla- kennara í baráttu sinni og ég vona að aðrir foreldrar geri slíkt hið sama því við vitum öll hvar verðmætin í samfélaginu er að finna. Áfram leikskóla- kennarar! Ég segi fyrir mína parta að é treysti eng- um manni betur en forseta lýðveldisins til að gera sér mat úr hugtaki Goethes, okkur öllum til frægðar og frama. Söluverð- mætið er um helmingur framleiðslu- kostnaðarins. Það ætti að vera vel þekkt á 3ju hæðinni á Hótel Sögu. Landbúnaður Þórólfur Matthíasson prófessor í hagfræði Kjaramál Guðný Hrund Rúnarsdóttir þroskaþjálfanemi Ég styð leikskóla- kennara í baráttu sinni og ég vona að aðrir foreldrar geri slíkt hið sama því við vitum öll hvar verðmætin í sam- félaginu er að finna. Það skiptir máli hvaða blað fólk gefur sér tíma til að lesa. Ný Prentmiðlakönnun Capacent Gallup staðfestir að lesendur á aldrinum 12-59 ára gefa sér lengri tíma til að lesa Fréttablaðið en Morgunblaðið. Við hlökkum til að færa ykkur fleiri góðar stundir í framtíðinni. Lesendur gefa sér góðan tíma í Fréttablaðið Allt sem þú þarft... MBL FBL 12-14 ára 15-19 ára 20-24 ára 25-29 ára 30-34 ára 35-39 ára 40-44 ára 45-49 ára 50-54 ára 55-59 ára 20 mín 15 mín 10 mín 5 mín 0 mín Meðal lestími í mínútum á hvert eintak* *Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Mældur er tími sem fer í lestur hvers eintaks Morgunblaðsins og Fréttablaðsins hjá lesendum á aldrinum 12-59 ára á öllu landinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.