Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 52
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR6
Háskólatorgi, 3. hæð Sæmundargötu 4 Sími 570 0700 fs@fs.is www.fs.is
AÐSTOÐARLEIKSKÓLASTJÓRI
OG MATRÁÐUR
Leikskólar stúdenta eru forystuskólar
á vettvangi High/Scope stefnunnar.
Við leitum að aðstoðarleikskólastjóra sem hefur áhuga á að taka
þátt í metnaðarfullu frumkvöðlastarfi og mótun nýrrar stefnu fyrir
leikskólann Sólgarð, sem er fyrir börn á aldrinum sex mánaða til
tveggja ára.
Auglýsum einnig eftir matráði á leikskólann Mánagarð sem er fyrir
tveggja til sex ára.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Stephensen,
leikskólafulltrúi í síma 570-0888 eða sigridur@fs.is
Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignar-
stofnun með sjálfstæða fjárhagsábyrgð. Að
henni standa stúdentar við Háskóla Íslands,
HÍ og menntamálaráðuneytið. Auk Leikskóla
rekur FS Bóksölu stúdenta, Stúdentagarða,
Kaffistofur stúdenta, Stúdentamiðlun og
Hámu. Starfsmenn FS eru um 120 talsins.
Félagsstofnun stúdenta á og rekur
leikskóla fyrir börn stúdenta við Háskóla
Íslands. Leikskólarnir eru Leikgarður,
Mánagarður og Sólgarður. FS er með virka
starfsmannastefnu. Starfsfólk leikskólanna
nýtur sömu kjara og starfsfólk almennra
leikskóla og að auki sömu hlunninda og
annað starfsfólk FS. Í skólanum stendur
nú yfir vinna við að innleiða High/Scope-
stefnuna sem leggur ríka áherslu á virkt nám.
www.lyfja.is
Atvinnutækifæri hjá Lyfju um allt land
Við leitum að lyfjatæknum og sölu-
og afgreiðslufólki í okkar frábæra
starfsmannahóp.
Störfin felast í ráðgjöf til
viðskiptavina um val á vörum í
verslun, afgreiðslu á kassa,
afhendingu lyfja gegn lyfseðli,
afgreiðslu á lausasölulyfjum og
ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Bæði er um að ræða full störf og
hlutastörf í apótekum okkar á
höfuðborgarsvæðinu.
Í boði eru líflegir vinnustaðir, gott
vinnuumhverfi, samkeppnishæf laun
og möguleiki á starfsþróun.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Lyfjafræðingur annast afgreiðslu
lyfseðla auk þess sem hann veitir
viðskiptavinum og starfsfólki faglega
ráðgjöf.
Hæfniskröfur: Háskólapróf í lyfjafræði
og gilt starfsleyfi.
Stjórnunarhæfileikar, rík þjónustulund
og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð
vinnubrögð.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
5
50
01
0
8.
20
11
Við leitum að sjálfstæðu,
skipulögðu og metnaðar-
fullu starfsfólki sem hefur
áhuga á að ganga til liðs
við framsækið og
spennandi fyrirtæki.
Lyfjatæknar og sölu-
og afgreiðslufólk
Lyfjafræðingar –
Lyfja Egilsstöðum og
útibú Lyfju á Blönduósi
Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs
og boðið upp á ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt
því að starfrækja lyfjaskömmtun til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns. Lykillinn að
árangri er starfsfólkið okkar og því höfum við það að markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða
vinnustaði þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í
starfi. Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.
Nánari upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu okkar, www.lyfja.is og hjá
starfsmannahaldi í síma 530 3800.
Tekið er við umsóknum á vefslóðinni www.lyfja.is.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og ráðið verður
í störfin sem fyrst.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf. eru karlar jafnt sem konur hvattir
til þess að sækja um stöðu hjá fyrirtækinu.
Störf í þýðingamiðstöð á Ísafirði
Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins óskar að
ráða þýðendur til starfa við starfsstöðina á Ísafirði.
Þýðingamiðstöðin annast þýðingar ESB-gerða, sem
eru á ýmsum sviðum, svo sem tækni, raungreina,
fjármála, laga o.s.frv.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins.
Kröfur til umsækjenda:
• Háskólapróf
• Staðgóð þekking á íslensku og ensku
• Reynsla af þýðingum
• Samskiptalipurð og góð framkoma
• Gott tölvulæsi
Kunnátta í öðru erlendu tungumáli er æskileg sem
og menntun í hagfræði, náttúrufræði, verkfræði eða
lögfræði. Kostur er ef umsækjendur hafa reynslu af
íðorðavinnu.
Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2011.
Umsóknir skulu berast á netfangið umsokn@mfa.is,
merkt „Þýðendur 2011“.
Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði
frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvarðanir um ráðningar hafa
verið teknar.
Nánari upplýsingar um störfin veita Hreinn Páls-
son, framkvæmdastjóri þýðingamiðstöðvar,
(hreinn.palsson@utn.stjr.is), og Helga Hauksdóttir,
mannauðsstjóri utanríkisráðuneytisins,
(helga.hauksdott-ir@utn.stjr.is), í síma 545-9900.