Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 80
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR40 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is GUÐRÚN LÁRUSDÓTTIR rithöfundur og alþingismaður (1880-1938) lést þennan dag af slysförum. „Í skólunum er börnunum nú kennt hreint og beint virðingarleysi fyrir trú og kristindómi og öllu því, sem mannkyninu á að vera heilagast.“ Merkisatburðir 1898 Á Þingvöllum er vígt veitinga- og gistihúsið Valhöll og dregur það nafn af búð Snorra Sturlusonar. 1906 Grettisbeltið veitt á Akureyri í fyrsta sinn fyrir sigur í glímu. 1933 Fyrstu ferðalangar sem aka á bíl yfir Sprengisand koma að Mýri í Bárðardal eftir fimm daga leiðangur úr Landsveit. 1944 Reykjavíkurborg tekur við rekstri Strætisvagna Reykjavíkur hf. 1968 Vorið í Prag er brotið á bak aftur af 200.000 hermönnum og 5.000 skriðdrekum frá Varsjárbandalaginu. 1975 Ólafía Aðalsteinsdóttir klífur Mont Blanc (Hvítafjall) fyrst íslenskra kvenna. 1982 Á þriðja hundrað marsvína koma að landi við Rif á Snæ- fellsnesi og eru langflest þeirra rekin á haf út. Það er hádegishlé hjá séra Pálma Matthíassyni í Bústaðakirkju. Væntan- leg fermingarbörn búin að fá þriggja stunda uppfræðslu, fram undan er kistulagning og jarðarför. „Svona eru dagarnir,“ segir hann yfirvegaður og tekur vel í að líta örsnöggt yfir farinn veg í tilefni sextugsafmælisins á morg- un. Fyrst er hann spurður um ástæðu þess að hann varð prestur og valdi sér svona daga. „Ég hafði alltaf áhuga á trúmálum, kirkjustarfi og að vinna með fólki. Þótt ég horfði í aðrar áttir um tíma blundaði sú þrá í mér að verða prestur og mér fannst ég svíkja sjálfan mig ef ég léti hana ekki rætast.“ Á tímabili datt Pálma í hug að leggja fyrir sig tannlækningar en var tjáð að það gengi ekki því hann væri örvhentur. „Tannlæknirinn var lítil bóla en ég var búinn að fá skólavist í Sviss og hugð- ist læra rekstur á hótelum og veitinga- húsum. Þar á undan var draumurinn að verða skipstjóri. Ég átti afa og pabba á sjó og var ekki hár í loftinu þegar ég fór fyrst á flot með þeim. Var aldrei sjóveikur sem strákur en fann fyrst fyrir því þegar ég var orðinn fulltíða. Þá var ég í rækjutúr á Aðalbjörginni frá Hvammstanga, orðinn klerkur á staðn- um en fannst gott að breyta til og blása svolítið úti á sjó. Það hef ég gert af og til fram á þennan dag með vinum mínum á Aðalbjörginni, fyrst þeirri gömlu og síðar þeim nýrri.“ Séra Pálmi er fæddur og uppalinn á Akureyri. Var í lögreglunni í nokkur ár en byrjaði prestskapinn á Hvamms- tanga og sinnti fjórum kirkjum á svæð- inu, á Melstað, Staðarbakka, Efri-Núpi og Hvammstanga. „Við prestarnir leystum hver annan af og einu sinni voru þrír í veikindaleyfi í einu. Þá var ég með Tjarnarprestakall, Melstaðar- prestakall, Prestbakkaprestakall og Hólmavíkurprestakall og mikill tími fór í akstur. Ég var fimm góð ár á Hvamms- tanga ásamt fjölskyldunni og fékk að taka þátt í öllu sem gerðist. Í fámenni skiptir hver hlekkur miklu máli. Svo hefur lífið kennt mér að maður þarf að læra að skrifa sorgir sínar í vatnið en höggva gleði sína í stein.“ Frá Hvammstanga lá leið séra Pálma til heimabæjarins Akureyrar, í Glerár- prestakall. „Þar áttum við yndislegan tíma en svo var ég kallaður til Bústaða- prestakalls og það var ekki auðvelt að taka ákvörðun um að sinna því. Það reyndist þó vera gæfuspor. Við komum hingað 1989. Dóttir okkar hjóna var í síðasta árganginum sem ég fermdi á Akureyri. Hún var fyrst algerlega á móti því að flytja suður en eftir tvo daga í Réttarholtsskóla var hún dottin inn í félagslífið og eignaðist frábæra vini.“ Í dag, laugardag, eru giftingar hjá séra Pálma en í kvöld ætlar hann að bregða sér til Akureyrar á fund gam- alla skólafélaga. „Það verður ball með hljómsveitinni okkar, Bravóbítlunum, í Sjallanum,“ segir hann glaðlega. „Síðan flýg ég suður í fyrramálið beint í tón- listarmessu sem samstarfsfólk mitt hér í kirkjunni ætlar að halda mér til gleði og ánægju og eftir hana ætla ég að vera með nánustu vinum, fjölskyldu og samstarfsfólki þannig að þetta verð- ur gaman.“ gun@frettabladid.is PÁLMI MATTHÍASSON PRESTUR Í BÚSTAÐAKIRKJU: ER SEXTUGUR Á MORGUN Skrifar sorgir sínar í vatnið en heggur gleði sína í stein AFMÆLISBARN MEÐ VÆNTANLEGUM FERMINGARBÖRNUM „Þótt ég horfði í aðrar áttir um tíma blundaði sú þrá í mér að verða prestur og mér fannst ég svíkja sjálfan mig ef ég léti hana ekki rætast.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Halldóra Filippusdóttir flugfreyja kleif Eldey þennan dag árið 1982, fyrst kvenna og er sú eina hingað til. Hún var í átján manna leiðangri Eyjamanna undir stjórn manns hennar, Árna Johnsen, sem fór til Eldeyjar til að gera heimildar- mynd og blaðagreinar um eina stærstu súlubyggð í heimi. Eyjan er þverhnípt, um sjötíu metra há og talið er að þar búi nær tuttugu þúsund súlupör. Engin bönd voru að sögn Halldóru til að styðjast við. Leiðangursmenn höfðu með sér stiga sem reistir voru þráðbeint upp bergið en Eldey er móbergs- stapi, laus í sér og uppganga á hana ekki fyrir lofthrædda. Þá er eyjan öll þakin fugladriti og Halldóra minnist þess að fuglinn hafi verið svo gæfur að hægt hafi verið að klappa honum. „Svo björguðum við mörgum því súlurnar draga mikið af drasli í hreiðrin og voru margar fastar í alls konar netadræsum.“ ÞETTA GERÐIST: 20. ÁGÚST 1982 Fyrsta konan kleif Eldey MYND/RAX Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og hluttekningu með blómum, samúðarkortum og kærleik við andlát og útför Ólafs Donalds Helgasonar og vottuðu minningu hans virðingu. Bálför hefur farið fram. Hulda Ólafsdóttir Svanhildur Ólafsdóttir Dagmar Ólafsdóttir Ólafur Helgi Ólafsson Ingibjörg Jóna Helgadóttir Jón Óli Ólafsson Reynir Ingi Helgason Sigurlaug Rögnvaldsdóttir Sigrún Helgadóttir Ingibergur Ingibergsson Helgi Helgason Hólmfríður Eggertsdóttir og fjölskyldur Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Róberts Dan Jenssonar frv. forstöðumanns Sjómælinga Íslands, Lækjargötu 26, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs og Drafnarhúss í Hafnarfirði. Kristbjörg Stefánsdóttir Björg Dan Róbertsdóttir Oddur Kr. Finnbjarnarson Sigrún Dan Róbertsdóttir Árni Dan Einarsson Andri Dan Róbertsson Sigrún Eva Ármannsdóttir Edda Dan Róbertsdóttir Kristján Jónas Svavarsson barnabörn og barnabarnabarn Dóttir mín, systir og mágkona, Áslaug Guðjónsdóttir lést á líknardeild LSH í Kópavogi mánudaginn 15. águst. Guðrún Stefánsdóttir Jóhann G. Guðjónsson Ingibjörg Einarsdóttir Gunnar Guðjónsson Stefán S. Guðjónsson Helga Ottósdóttir Guðjón Hólm Guðjónsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Ólöf I.P. Benediktsdóttir Rjúpufelli 44, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn 12. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 22. ágúst kl. 15.00. Höskuldur Jónsson Guðlaugur Hermannsson Aldís Höskuldsdóttir Benedikt Höskuldsson Ingibjörg Höskuldsdóttir Páll Höskuldsson Svava Höskuldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Ingibjörg Sigurðardóttir frá Vík í Mýrdal, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut föstudaginn 12. ágúst. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 22. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinar látnu er bent á Hjartaheill. Sigurður Þór Magnússon Auður Marinósdóttir Valgerður Ása Magnúsdóttir Gylfi Hallgrímsson Ingunn Birna Magnúsdóttir Þórður Sigurðsson Ásmundur Smári Magnússon Dagbjört Steingrímsdóttir og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.