Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 60
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR14 Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur auglýsir stöðu yfirlögfræðings lausa til umsóknar. Við erum að leita að metnaðarfullum og vandvirkum einstaklingi með leiðtogahæfileika til að hafa yfirumsjón með lögfræðilegum verkefnum og stjórnsýslu sviðsins. Yfirlögfræðingur er hluti af yfirstjórn sviðsins og hefur mikil samskipti við starfsfólk, kjörna fulltrúa og aðra lögfræðinga hjá Reykjavíkurborg. Næsti yfirmaður yfirlögfræðings er skipulagsstjórinn í Reykjavík. Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynjanna í störfum og því að vinnustaðir borgarinnar endurspegli fjölbreytileika reykvísks samfélags. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11 eru veittar allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og símasamband við starfsmenn einstakra sviða og deilda. Helstu verkefni og ábyrgð • Undirbúningur og umsjón með fundum skipulagsráðs Reykjavíkur og eftirfyglni vegna afgreiðslu mála. • Lögfræðileg ráðgjöf, upplýsingagjöf og þjónusta við skipulagsráð, kjörna fulltrúa og starfsmenn sviðsins, s.s. um fundarsköp og stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. • Undirbúningur og umsjón með embættisafgreiðslufundum og eftirfylgni með afgreiðslu mála. • Frumkvæði varðandi þróun og umbætur í stjórnsýslu sviðsins. • Hefur umsjón með og gerir umsagnir um lagafrumvörp á sviði skipulags- og byggingarmála • Gerir og hefur umsjón með umsögnum og meðferð kærumála fyrir úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. Hæfniskröfur • Embættispróf eða meistaragráða í lögfræði. • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu. • Þekking og reynsla á sviði stjórnsýslu sveitarfélaga æskileg. • Þekking og reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg. • Leiðtogahæfileikar, skipulagshæfni og frumkvæði. • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum. • Hæfni til að koma fram og tjá sig í ræðu og rituðu máli á íslensku, ensku og einu norrænu tungumáli. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og stéttarfélags lögfræðinga. Fyrirspurnum um starfið skal beina til Ólafar Örvars- dóttur, skipulagsstjóra í Reykjavík í síma 411 1111 eða með því að senda fyrirspurnir á olof.orvarsdottir@ reykjavik.is Umsóknarfrestur er til 4. september nk. Sótt er um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik. is undir „ Störf í boði”. http://www.reykjavik.is/ desktopdefault.aspx/tabid-2901. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Yfirlögfræðingur SÖLUSTJÓRI Vegna aukinna verkefna leitar 3X Technology að sölustjóra fyrir erlenda markaði. Starfið krefst þekkingar á vinnslutækni í sjávarútvegi og fiskiðnaði ásamt því að veita faglega ráðgjöf til viðskiptavina, gerð sölutilboða, arðsemisgreiningar og lausnavinnu ásamt aðkomu að mótun sölu og markaðsstarfs innan félagsins. Ferðadagar á ári eru að jafnaði 50-80 innanlands sem utan. Við leitum að háskólamenntuðum einstaklingi sem er skipulagður, sjálfstæður, og sterkur í mannlegum samskiptum. Sölustjórinn þarf að hafa mikið frumkvæði og vera lausnaþenkjandi. Hann þarf að tala og skrifa ensku mjög vel og kostur er ef viðkomandi hefur einnig gott vald á öðrum tungumálum. Sölustjórinn mun starfa á söluskrifstofu félagsins í Kópavogi. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Jónasson jj@3xtec.is Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknir með CV sendist til jj@3xtec.is fyrir 26.ágúst nk. MÁLMIÐNAÐARMENN 3X Technology óskar eftir að ráða málmiðnaðarmenn til starfa í framleiðsludeild félagsins á Ísafirði. Í boði er góð vinnuaðstaða í lifandi starfsumhverfi og góður vinnuandi. Einungis er um framtíðarstörf að ræða. Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi menntun og/eða reynslu á sviði málmiðnaðar, en reynsla af smíði úr ryðfríu stáli er mikill kostur. Áhersla er lögð á nákvæmni og vandvirkni í vinnubrögðum, reglusemi og árverkni. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um störfin veitir Jakob Tryggvason Framleiðslustjóri (jakob@3xtec.is) í síma 450 5081. Upplýsingar um starfsemi 3X Technology er að finna á vefsíðu. RÚV auglýsir starf málfarsráðunautar laust til umsóknar Helstu verkefni Fagleg forysta og eftirlit Yfirlestur ritaðs máls Ráðgjöf um málfar Fræðsla og þjálfun starfsmanna í meðferð móðurmálsins Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf í íslensku skilyrði, meistarapróf æskilegt Reynsla af fjölmiðla-, útgáfu- eða kennslustörfum Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og metnaður til að ná árangri í starfi Jákvætt viðmót og færni í mannlegum samskiptum Nánari upplýsingar veita Berglind G. Bergþórsdóttir mannauðsstjóri og Bjarni Guðmundsson í síma 515 3000. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skulu sendar fyrir 2. september næstkomandi á netfangið starfsumsoknir@ruv.is merktar „Umsókn um starf málfarsráðunautar“. MÁLFARSRÁÐUNAUTUR RÚV er í fararbroddi íslenskra fjölmiðla með því að bjóða landsmönnum fjölbreytta og vandaða dagskrá. Eitt af meginmarkmiðum RÚV er að endurspegla íslenska menningu og stuðla að varðveislu tungunnar. Hjá RÚV er lögð rækt við íslenska tungu og reynt til hins ýtrasta að miðla íslensku máli lýtalaust. Liður í því er að starfsfólk RÚV hafi aðgang að málfarsráðgjöf. BRØNNØY KALK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.