Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 6
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR6
KJARAMÁL Fulltrúar sveitarstjórna
í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi
og Akureyri telja ábyrgð sveitar-
félaganna á stöðu leikskólakenn-
ara töluverða. Árangurslausum
kjaraviðræðum Félags leikskóla-
kennara og samninganefndar
sveitarfélaganna lauk á ný rétt
eftir hádegi í gær. Boðað hefur
verið til nýs fundar klukkan ell-
efu í dag. Ef ekki næst að semja
fara leikskólakennarar í verkfall
á mánudag.
Dagur B. Eggertsson, forseti
borgarstjórnar, hefur áhyggjur
af yfirvofandi verkfalli og segir
það vond tíðindi fyrir alla ef það
skelli á.
„Af reynslu finnst mér ekki
síður mikilvægt að gefa þeim frið
til að semja um helgina áður en til
verkfalls komi,“ segir Dagur. „Ég
bind vonir við að aðilar reyni alveg
til þrautar.“
Dagur vill ekki gefa upp sína
skoðun á því hvort kröfur leik-
skólakennara séu réttmætar og
vísar aftur til vinnufriðs samn-
inganefndanna. „En auðvitað eru
margar stéttir í samfélaginu sem
eiga skilið hærri laun,“ bætir hann
við. Hann telur ábyrgð borgarinn-
ar í þessum málum mjög ríka.
„Við berum ábyrgð gagnvart börn-
unum, fjölskyldum þeirra og öllu
okkar starfsfólki.“
Guðmundur Rúnar Árnason,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, tekur
undir orð Dags og segir mikil-
vægt að leyfa samninganefndinni
að vinna sína vinnu í friði.
„Vitaskuld höfum við áhyggj-
ur af ástandinu, atvinnulífinu og
þeim fjölskyldum sem munu klár-
lega lenda í vandræðum ef til verk-
falls kemur,“ segir hann. Spurður
hvort hann telji að sveitarstjórnir
beri ábyrgð í málinu svarar Guð-
mundur því játandi.
„Auðvitað bera sveitar stjórnir
ábyrgð á sínum gjörðum; eitt
af því sem þær hafa ákveðið er
að hafa kjaramálin svona sem
atvinnurekandi og framselja sitt
samningsumboð til sambandsins,“
segir hann. „Sem þýðir um leið að
þau geta ekki farið að grípa til
aðgerða einhliða. Þegar maður fer
í samstarf verður maður að taka
þátt í því alla leið.“
Guðmundur segist hafa mikla
samúð með kröfum launafólks, en
vill ekki tjá sig um sínar skoðanir
á kröfum leikskólakennara að svo
stöddu í ljósi viðræðna.
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri á Akureyri, segir
sveitarfélögin bera ábyrgð í því
ljósi að þau séu rekin á skynsam-
legan hátt í alla staði. Hann telur
kröfur leikskólakennara heldur
meiri en þær sem samið hafi verið
um í sumar.
„Það má deila um hvort þær séu
sanngjarnar, en þær eru meiri en
það sem við teljum að við getum
ráðið við,“ segir Eiríkur og bætir
við að komi til verkfalls á mánu-
dag muni Akureyrarbær takast á
við það af yfirvegun, en það muni
bitna á öllu atvinnulífinu.
Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri í
Kópavogi, hefur áhyggjur af yfir-
vofandi verkfalli og vonast til
þess að samningar náist. „En oft
hafa samningar náðst á allra síð-
ustu stundu og við vonum að það
gerist í þessu tilviki,“ segir hún.
Hún hefur fulla trú á samninga-
nefndinni og treystir henni
fullkom lega til að klára viðræð-
urnar.
sunna@frettabladid.is
Við berum ábyrgð
gagnvart börnunum,
fjölskyldum þeirra og öllu
okkar starfsfólki.
DAGUR B. EGGERTSSON
FORSETI BORGARSTJÓRNAR
Velkomin í Volcanohouse á menningardag
kl 15 verður frásögn um eldgosið í Heimaey
Halldór Svavarsson, Ólöf Svavarsdóttir og Jón Kr Óskarsson
Segja frá upplifun sinni af eldgosinu.
Allir hjartanlega velkomnir og gestum
er boðið að taka þátt í léttu spjalli.
Volcanohouse Tryggvagötu 11 í Reykjavík
Tollstjóri óskar eftir að ráða deildarstjóra rannsóknardeildar tollasviðs
Hjá Tollstjóra starfar hópur hæfileikaríks starfsfólks sem hefur það að markmiði að veita góða og
skilvirka þjónustu og standa vörð um hagsmuni almennings og atvinnulífs. Lögð er áhersla á símenn-
tun starfsmanna, heilsueflingu og góðan aðbúnað.
Embættispróf í lögfræði eða sambærileg menntun
Tölvufærni sem nýtist í starfi
Gott vald á íslensku, bæði á töluðu og rituðu máli, auk þess að hafa góða kunnáttu í ensku og einu
Norðurlandamáli
Hæfni til frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða, samstarfs og samskipta
Traust vinnubrögð
Leiðtoga- og stjórnunarhæfni þ.m.t. færni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni
Kurteisi, þjónustulipurð, nákvæmni, samviskusemi
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að
umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
DEILDARSTJÓRI
RANNSÓKNARDEILDAR
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Deildarstjóri rannsóknardeildar hefur umsjón með
verkefnum rannsóknardeildar og sinnir jafnframt
ýmsum lögfræðilegum úrlausnarefnum. Hann á sæti í
yfirstjórn tollasviðs .
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að
öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Karen Bragadóttir,
forstöðumaður tollasviðs í síma 560-0300. Æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 3. 9. 2011 Umsóknir merktar
„deildarstjóri rannsóknardeildar“ ásamt ferilskrá skal
skila til mannauðssviðs embættisins Tryggvagötu 19,
101 Reykjavík eða í gegnum tölvupóst: starf@tollur.is
Stjórnun og stefnumótun
Ábyrgð á rannsóknum tollalagabrota á landsvísu og annarri meðferð mála á þessu sviði
Aðstoð og samstarf við lögreglu, ákæruvald, erlend tollyfirvöld og fleiri vegna rannsókna og meðferð
mála í tengslum við tollalagabrot
Kennsla við Tollskóla ríkisins
EFNAHAGSMÁL Útreikningar Hags-
munasamtaka heimilanna vegna
kvörtunar samtakanna til Umboðs-
manns Alþingis eru villandi þar
sem gleymst hefur að núvirða
greiðslurnar, segir Þórólfur Matth-
íasson, deildarforseti hagfræði-
deildar Háskóla Íslands.
Umboðsmaður Alþingis athug-
ar nú hvort verðtrygging lána
hafi um langa hríð verið reiknuð
á rangan hátt í kjölfar kvörtunar
frá Hagsmunasamtökum heim-
ilanna. Umboðsmaðurinn hefur
krafið Seðlabankann um skýringar
á þeim reglum sem liggja að baki
útreikningunum.
Í grei na r -
gerð frá Hags-
munasamtök-
um heimilanna,
sem Magnús
Ingi Erlendsson
héraðsdóms-
lögmaður skrif-
aði, eru færð
fyrir því rök að
ekki sé til laga-
heimild fyrir
því að verðbætur séu lagðar á höf-
uðstól lána heldur að einungis megi
bæta verðbótum við greiðslur af
láni.
Þá fylgir greinargerðinni dæmi
þar sem reikniaðferðirnar tvær
eru bornar saman og komist að
þeirri niðurstöðu að sú leið að bæta
verðbótum ofan á höfuðstól sé tals-
vert óhagstæðari en sú leið að bæta
verðbótum við greiðslur.
„Gallinn við útreikninga Magn-
úsar er að hann áttar sig ekki á
því að til að bera saman verðmæti
afborgana jafnafborgana láns og
kúlulánsins þarf hann að reikna
allar afborganir á sama verðlagi,“
segir Þórólfur og bætir við að sé
það gert sé verðmæti lánanna
nákvæmlega það sama, enda eigi
lánaform ekki að hafa áhrif á verð-
mæti afborgana. - mþl
Þórólfur Matthíasson segir útreikninga Hagsmunasamtaka heimilanna ranga:
Gagnrýnir verðtryggingarútreikninga
ÞÓRÓLFUR
MATTHÍASSON
EFNAHAGSMÁL Peningastefnunefnd
Seðlabanka Íslands tók ákvörðun
um að hækka vexti bankans um
0,25 prósent fyrr í vikunni. Í yfir-
lýsingu frá nefndinni vegna þessa
var vísað til versnandi verðbólgu-
horfa og aukins þróttar í efnahags-
lífinu.
Flestar greiningardeildir íslensku
bankanna spáðu óbreyttum stýri-
vöxtum. Ákvörðunin virðist því
hafa komið flestum á óvart og eru
deildirnar flestar gagnrýnar á hana.
Greining Íslandsbanka spáði ein
rétt fyrir um ákvörðun peninga-
stefnunefndarinnar. Í stýrivaxtaspá
sinni var þó bent á að Seðlabankinn
væri í nokkrum vanda; á sama tíma
og verðbólga væri að aukast væri
mikill slaki í hagkerfinu og atvinnu-
leysi í sögulegu hámarki. Verðbólg-
an orsakist ekki af því að eftirspurn
sé meiri en framleiðslugeta í hag-
kerfinu og slíka verðbólgu geti verið
afar varasamt að berja niður með
tækjum peningastjórnunar þar sem
það geti hægt á efnahagsbatanum.
Hagfræðideild Landsbankans
segir að ótímabært hafi verið að
hefja hækkunarferli vaxta, bíða
þurfi skýrari merkja um aukna
fjárfestingu. Þá segir deildin að
þrátt fyrir að verðbólga hafi auk-
ist umtalsvert sé ólíklegt að vaxta-
hækkun nú muni hafa teljandi áhrif
til lækkunar verðbólguvæntinga.
Helstu drifkraftar verðbólgunnar
undanfarið séu utan áhrifasviðs
hinna hefðbundnu stýritækja Seðla-
bankans, segir deildin.
Greiningardeild Arion er einnig
gagnrýnin á ákvörðun peninga-
stefnunefndarinnar. Í Markaðs-
punktum deildarinnar frá því á mið-
vikudag segir að vaxtahækkun geti
leitt til versnandi verðbólguhorfa
þar sem fjármagnskostnaður muni
aukast. - mþl
Greiningardeildir bankanna efins um að skynsamlegt hafi verið hjá Seðlabankanum að hækka stýrivexti:
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans vekur furðu
SEÐLABANKI ÍSLANDS Með stýrivaxta-
hækkun sinni hefur Seðlabankinn skorið
sig nokkur úr meðal evrópskra seðla-
banka, sem hafa flestir haldið vöxtum
lágum síðustu mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ábyrgðin er okkar
Sveitarstjórnarmenn segja ábyrgðina vegna bágra kjara leikskólakennara liggja
hjá sveitarfélögunum að mörgu leyti. Fulltrúar fjögurra stærstu sveitarfélaga
landsins lýsa yfir áhyggjum vegna yfirvofandi verkfalls leikskólakennara.
LEIKSKÓLABÖRN Öllum leikskólum á Akureyri, Hafnarfirði og Kópavogi verður lokað
á mánudag ef til verkfalls kemur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJÖRKASSINN
Notar þú kreditkort?
Já 71,7%
Nei 28,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eiga kröfur leikskólakennara
rétt á sér?
Segðu skoðun þína á visir.is