Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 91

Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 91
LAUGARDAGUR 20. ágúst 2011 51 UR EIKÁRI „Heilt á litið sýnist mér það vera nokkuð spennandi,“ segir Salka Guðmundsdóttir, leikhúsrýnir Víðsjár á Rás eitt, spurð um leikárið fram undan hjá Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. „Ég er mjög spennt fyrir Svörtum hundi prestsins eftir Auði Övu. Eins er ég mikill aðdáandi Harold Pinter og hlakka til að sjá Afmælisveisluna, auk þess sem ég er forvitin að sjá hvernig heppnast að laga Fanný og Alexander að sviðinu. Af barnasýn- ingum líst mér einna best á Litla skrímslið og stóra skrímslið.“ Sölku líst ágætlega á þau erlendu verk sem verða færð upp á fjalirnar í ár en slær þann varnagla að stundum sé ekki hugað nógu vandlega að vali erlendra verka í íslenskum leikhúsum. „Verk sem slá í gegn í útlöndum gera það oft vegna þess að þar eru þau í ákveðnu samhengi, sem er ef til vill ekki til staðar hér á landi eða heimfærist illa. Mér finnst stundum hafi gleymst að hugsa út í hvort og þá hvaða erindi tiltekin verk hafa við íslenska áhorfendur áður en þau eru sett upp. En þetta er forvitnileg blanda af erlendum verkum í ár, ég er til að mynda spennt fyrir Gyllta drekanum.“ Nokkur verk byggð á skáldsögum verða sett upp í ár. Salka segir það geta brugðið til beggja vona. „Oft heppnast það mjög vel, eins og Fólkið í kjallaranum er gott dæmi um. En það getur auðvitað farið á hinn veginn. Góð bók er ekki trygging fyrir góðri sýningu.“ Í því sam- hengi bætir Salka við að sér þyki miður að ekki séu fleiri algjörlega frumsamin íslensk leikrit á fjölunum í ár. „Leikritaritun er afar mikilvægur hluti af leikhúsmenningunni, sem verður að hlúa að og rækta. Stóru leikhúsin eru í bestri aðstöðu til þess en því miður finnst mér þau vera að bregðast að þessu leyti, sem er því miður gömul saga og ný.“ Eins saknar hún nýrra andlita í hópi leikstjóra. „Þetta er auðvitað allt reynt og gott fólk en stóru leikhúsin verða líka að huga að uppbyggingarstarfi. Það er enginn að biðja um að ungur og óreyndur leikstjóri leikstýri jólasýningu á stóra sviðinu en það þarf hins vegar að vera vettvangur innan leikhússins þar sem ungir listamenn geta spreytt sig og fengið tækifæri til að þroskast.“ SALKA GUÐMUNDSDÓTTIR SPENNANDI VERK EN UPPBYGGINGARSTARF SKORTIR landaráðs í fyrra fyrir samnefnda skáldsögu, en verkið var upphaf- lega samið fyrir svið. Hreins- un verður frumsýnd í október og markar endurkomu Margrétar Helgu Jóhannsdóttur í Þjóðleik- húsið eftir nokkurra ára, farsæla dvöl hjá Borgarleikhúsinu. Í sama mánuði frumsýnir Borgar leikhúsið Gyllta drek- ann, gamanleik eftir Þjóðverjann Roland Schimmelpfennig, sem sló í gegn í heimalandinu í fyrra. Verk- ið gerist á asískum veitingastað einhvers staðar í Evrópu og segir frá raunum fimm starfsmanna, auk gesta. Fimm leikarar fara með fimmtán hlutverk. Í janúar verður verkið Eldhaf eftir líbansk-franska leikskáldið Wajdi Mouawad frum- sýnt í Borgarleikhúsinu. Þetta er dramatískt verk um tvíbura sem komast að hræðilegu leyndarmáli úr fortíð móður þeirra, þegar hún fellur frá. Unnur Ösp Stefánsdóttir fylgir eftir magnaðri frammistöðu sinni í Elsku barni frá því í fyrra. Reynslumiklir leikstjórar Bæði leikhúsin veðja á reynslu- mikla leikstjóra í vetur. Þórhildur Þorleifsdóttir, Kristín Jóhannes- dóttir, Baltasar Kormákur, Guð- jón Pedersen, Kjartan Ragnars- son, Stefán Jónsson og Selma Björnsdóttir ljá Þjóðleikhúsinu krafta sína í vetur. Í Borgarleik- húsinu er sömu sögu að segja; helstu leikstjórar þar í vetur eru Stefán Baldurs son, Hilmir Snær, Bergur Þór Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson, Kristín Eysteinsdóttir og Benedikt Erlingsson. bergsteinn@frettabladid.is SVARTUR HUNDUR PRESTSINS Þjóðleikhúsið frumsýnir fyrsta leikrit Auðar Övu Ólafsdóttur nú í haust. Kristbjörg Kjeld fer með aðal- hlutverkið en Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir. Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum. Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins. Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur VITA er VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | Taktu þátt í Reykjavíkurmaraþoni og njóttu Lukkulífs VITA í Tyrklandi 27. ágúst 27. ágúst í 10 nætur Verð frá 99.500 kr.* og 15.000 Vildarpunktar á mann m.v. 2 fullorðna og eitt barn (2-11 ára) í herbergi með hálfu fæði. Innifalið: Flug, gisting með hálfu fæði, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Verð á mann m.v. 2 í tvíbýli 109.500 kr.** og 15.000 Vildarpunktar *Verð án Vildarpunkta m.v. 2+1 109.500 kr. ** Verð án Vildarpunkta m.v. 2 119.500 kr. TYRKLAND Vinsælasti sólarstaðurinn í Tyrklandi Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Maraþon Lukkulíf VITA VITA er stoltur styrktaraðili Reykja- víkurmaraþons og í tilefni dagsins fá allir þátttakendur hlaupsins allt að 10.000 kr. afslátt af Lukkulíf VITA. Takmarkað sætaframboð. Lukkulíf VITA gerir þér kleift að velja áfangastað og brottfarardag en upplýsingar um gististað berast þér síðar. Suðurlandsbraut 2 Hilton Reykjavik Nordica ÍS L E N SK A S IA .I S V IT 5 60 24 0 8/ 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.