Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 104
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR64
FÓTBOLTI FH-ingar eru ekki búnir
að segja sitt síðasta í Pepsi-deild-
inni í sumar þrátt fyrir að allir
hafi verið búnir að afskrifa þá
fyrir fjórum vikum. Fjórir sigrar
í röð hafa skilað þeim inn í topp-
slaginn á ný þótt KR-ingar séu enn
langt á undan þeim.
Fyrirliðinn Matthías Vilhjálms-
son átti flottan leik á móti Víking-
um í 15. umferðinni og sá til þess
ásamt félögum sínum að FH-liðið
fann ekki mikið fyrir því að spila
manni færri í 55 mínútur á leið
sinni að 3-1 útisigri í Víkinni.
Líður vel í framlínunni
„Ég er búinn að vera fjóra leiki í
framlínunni og við höfum unnið
þá alla. Mér líður vel í framlín-
unni, ég get ekki neitað því. Atli
Viðar meiddist, það voru fleiri
menn að ganga í gegnum meiðsli
og svo fór Hannes náttúrulega til
Rússlands. Heimir vissi að ég gæti
spilað frammi og ég gerði það oft í
vetur. Hann ákvað að prófa þetta,“
segir Matthías en hann talar líka
um breytt leikskipulag hjá liðinu.
„Við höfum breytt skipulaginu
okkar aðeins, farið aftar á völlinn
og reynt að vera þéttir til baka.
Það hefur virkað mjög vel enn
sem komið er. Menn fóru líka að
gera þetta meira saman og margir
leikmenn fóru að spila vel,“ segir
Matthías. Hann segir að margir
þættir komi inn í af hverju gekk
ekki betur hjá liðinu framan af
sumri.
„Ef við lítum yfir leikina í fyrri
umferð þá spiluðum við mjög
erfiða leiki útileiki á móti topp-
liðunum, Val, KR og ÍBV. Við erum
búnir með alla þessa útileiki. Þá
erum við líka í betra formi núna
og skipulagið er betra,“ segir
Matthías.
Spýta í lófana
„Það er fullt af leikmönnum í
þessu FH-liði sem hafa gríðarlega
reynslu og þekkja ekkert annað
en að vinna. Þegar gengur illa
spýta menn ennþá meira í lófana
til þess að rétta skútuna við. Hver
og einn leikmaður hefur tekið til í
sjálfum sér og þá fóru allir að róa
í sömu átt. Þá fór þetta að ganga
betur. Við vissum það alveg að við
urðum ekki lélegir á einni nóttu
eða á einni viku. Það ganga öll lið
í gegnum mótlæti einhvern tímann
á sumri og þetta er alls ekki búið,“
segir Matthías.
KR-ingar eru fimm stigum á
undan FH-liðinu og eiga auk þess
tvo leiki inni á þá. Íslandsmeistara-
titilinn er því fjarlæg von fyrir
Hafnarfjarðarliðið.
„Við ætlum bara að ná Evrópu-
sæti því það er það eina sem við
getum gert núna ef að við vinnum
rest. Þá væri öruggt að við mynd-
um fá Evrópusæti en við þurfum
að treysta á aðra til þess að geta
unnið titilinn,“ segir Matthías.
FH-liðið hefur sýnt styrk sinn
í Kaplakrika, þar sem liðið hefur
náð í 17 af 21 stigi í boði. Marka-
tala liðsins í þessum sjö leikjum er
21-8, FH í hag.
„Við höfum ekki tapað í Krik-
anum ennþá og ætlum ekki að
byrja á því. Það er okkar gryfja
og við eigum eftir að fá öll topp-
liðin í Krikann, ÍBV og KR,“ segir
Matthías en hann hefur ekki mik-
inn áhuga á því að ræða mögulega
atvinnumennsku eftir þetta sumar.
„Það fín var reynsla að fara til
Colchester í vetur en það verður
bara að koma í ljós hvað verður því
ég er ekki að pæla í því lengur. Ég
vil eiginlega ekkert vera að tala
um hugsanlega atvinnumennsku.
Ég ætla bara að klára þetta tíma-
bil og ef það gerist þá gerist það.
Það eru alltaf einhverjar þreifing-
ar en það er tvennt ólíkt að það séu
þreifingar og að lið komi með til-
boð,“ segir Matthías.
Ætlum ekki að taka létt á þeim
FH-ingar fá næst Þórsara í heim-
sókn á sunnudaginn og silfurliðið
úr bikarnum er sýnd veiði en ekki
gefin.
„Mér finnst Þórsarar hafa komið
hvað mest á óvart í sumar. Þeir
komust í bikarúrslitaleikinn og eru
síðan nokkuð fyrir ofan fallsæti.
Mér finnst Palli hafa gert frábæra
hluti með liðið og fengið það besta
út úr mönnum. Þetta verður erfið-
ur leikur því við vorum heppnir að
ná stigi á móti þeim fyrir norðan
í sumar þar sem við vorum einum
fleiri í heilan hálfleik allavega. Við
ætlum ekki að taka létt á þeim,“
segir Matthías og hann viðurkenn-
ir að þessa dagana sé skemmtilegt
að spila með FH-liðinu.
„Það er allt annar andi í kringum
félagið og þetta er miklu skemmti-
legra. Við ætlum að halda því
áfram. Þetta verður vonandi spenn-
andi. Við ætlum að gera okkar og
vonast til þess að úrslitin fari að
falla með okkur.“ ooj@frettabladid.is
Það ganga öll lið í
gegnum mótlæti
einhvern tímann á sumri og
þetta er alls ekki búið.
MATTHÍAS VILHJÁLMSSON
LEIKMAÐUR OG FYRIRLIÐI FH
Urðum ekki lélegir á einni nóttu
Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, hefur fengið að spila í framlínunni í síðustu leikjum FH-inga. Árangur-
inn hefur ekki látið á sér standa því FH-liðið hefur unnið fjóra leiki í röð með Matthías í fremstu víglínu.
Matthías var besti leikmaðurinn í 15. umferð Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins.
ÁTTA MARKA MAÐUR Matthías Vilhjálmsson hefur skorað átta mörk í Pepsi-deildinni
í sumar og hér fagnar hann einu þeirra. Hann vantar nú tvö mörk til þess að jafna
sitt persónulega met þegar hann skoraði 10 mörk sumarið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FH-ingar lengi í gang í sumar alveg eins og í fyrra
FH-ingar fóru fyrst almennilega í gang þegar fyrri umferðinni lauk og er þetta annað
sumarið í röð sem FH-liðið hikstar framan af sumri en gefur síðan í um mitt sumar.
FH í fyrri umferðinni 2010-2011:
Leikir - Stig 22 - 34
Sigrar - Jafntefli - töp 9 - 7 - 6
Markatalan: 43-33 (1,9-1,5)
Hlutfall stiga 51,5 prósent
FH í seinni umferðinni 2010-2011:
Leikir - stig 15 - 38
Sigrar - Jafntefli - töp 12 - 2 - 1
Markatalan (Meðalskor í leik): 36-17 (2,4-1,1)
Hlutfall stiga 84,4 prósent
Lið 15. umferðarinnar
Hér fyrir neðan má sjá þá ellefu
leikmenn sem sköruðu fram úr í 15.
umferð Pepsi-deildar karla en stillt er
upp í leikkerfinu 3-5-2.
Úrvalslið 15. umferðarinnar:
Óskar Pétursson Grindavík
Jónas Tór Næs Valur
Grétar Sigfinnur Sigurðarson KR
Ólafur Örn Bjarnason Grindavík
Ólafur Páll Snorrason FH
Halldór Hermann Jónsson Fram
Matthías Vilhjálmsson FH
Halldór Orri Björnsson Stjarnan
Ian Jeffs ÍBV
Atli Guðnason FH
Kolbeinn Kárason Valur
FÓTBOLTI Arsenal tekur á móti
Liverpool í stórleik dagsins í
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Félögin hafa háð marga
dramatíska leiki í gegnum tíð-
ina og er skemmst að minnast
leiks liðanna á sama stað á síð-
asta tímabili. Tvær vítaspyrnur
voru dæmdar í viðbótartíma og
sumir meina að klaufaskapur
Emmanuels Eboue hafi gert
endan lega út um framtíð hans í
búningi Arsenal.
Samir Nasri er í leikmannahópi
Arsenal sem á í stökustu vand-
ræðum með miðjuna hjá sér. Auk
sölunnar á Fabregas er Tomas
Rosicky meiddur og Alex Song
í leikbanni. Miðja Liverpool er
ekki síður brothætt enda nýju
leikmenn liðsins enn að koma sér
fyrir. Þá er Steven Gerrard enn
frá vegna meiðsla.
Mikið mun mæða á nýjum
fyrir liða Arsenal, Robin van
Persie, í sóknarleik Arsenal sem
saknar Gervinho sem einnig er í
banni eftir viðskipti sín við Joey
Barton um síðustu helgi.
Leikurinn er í beinni útsend-
ingu á Stöð2 Sport2 og hefst
klukkan 11.45. - ktd
Stórleikur í enska boltanum:
Arsenal tekur á
móti Liverpool
FJÖGUR MÖRK Arshavin skoraði fjögur í
mögnuðu 4-4 jafntefli vorið 2009.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Umræða um leikaraskap í knattspyrn-
unni koma upp með reglulegu milibili og er
núverandi keppnistímabil í Pepsi-deild karla
engin undantekning. Gylfi Þór Orrason, vara-
formaður KSÍ og formaður dómaranefndar,
segir vissulega um vandamál að ræða.
„En þetta er vandamál sem er á heimsvísu,“
sagði hann. „Og sumir vilja að við eigum að
taka öðruvísi á hlutunum hér en er gert úti í
heimi. En þá fáum við alltaf spurningar um
af hverju þetta megi ekki á Íslandi þegar leik-
menn stóru félaganna út í heimi stunda þetta
mikið. Ég tel að frumkvæðið að slíkum breyt-
ingum verði að koma ofan frá – frá FIFA eða
UEFA,“ sagði Gylfi.
Hann segir að knattspyrnumenn taki meira
mark á reglubreytingum ef þær komi úr alþjóð-
lega umhverfinu. „Annars ná þær engri fót-
festu,“ sagði Gylfi.
„Sjálfur myndi ég fagna slíkum breyting-
um. Það þarf að taka harðar á þessum svindl-
urum. Þeir verða líka að átta sig á því að fyrst
og fremst eru þeir að svíkja félaga sína – leik-
menn annarra liða. Allir eru þetta jú knatt-
spyrnumenn.“
Gylfi segir að leikaraskap eða uppgerð (e.
simulation) megi setja í þrjá flokka. „Að
falla án snertingar, að gera mikið úr lítilli
snertingu og að vera upphafsmaður snert-
ingarinnar. Það er að segja að leikmaður
sem sækir sér brot með því að setja löpp-
ina út og krækja í andstæðinginn. Allt eru
þetta brot sem eiga að leiða til áminn-
ingar,“ sagði Gylfi.
Þegar leikmaður fellur til jarð-
ar með tilheyrandi sársauka-
látum segir Gylfi að dómar-
ar séu vissulega tregir til að
áminna slíka menn, sé grunur
um uppgerð. „Þeir sjá mann
sem er emjandi á jörðinni og
eru miður sín út af þessu. Þeir
velta því fyrir sér hvort þeir
hafi misst af einhverju sem varð
til þess að leikmaðurinn meiddist
svo illa. En svo kemur kraftaverka-
svampurinn, maðurinn stendur upp
og dómarinn áttar sig á öllu saman.
En þá er það of seint,“ sagði Gylfi.
En hvað með að starfrækja aga-
nefnd sem styðst við myndbands-
upptökur til að takast á við slík tilvik?
„Það yrði erfitt fyrir okkur enda flest-
ir leikir teknir upp á eina myndavél –
ekki 25 eins og á stærstu leikjunum úti
í heimi. Oft er hægt að leiða líkur að
því að viðkomandi hafi verið að svindla
en það er líka erfitt að fullyrða það.“
Hann segir þó að dómarar
myndu ekkert hafa á móti því
að tekið yrði sérstaklega á
málum sem þessum. „Við vilj-
um þetta út úr leiknum eins
og allir sannir knattspyrnu-
áhugamenn. En frumkvæð-
ið að svona breytingum verði
að koma ofan frá - frá þess-
um stóru og sterku.“ - esá
Á Knattspyrnusamband Íslands að gera meira til að taka á leikaraskap í knattspyrnu?
Breytingarnar verða að koma ofan frá
GYLFI ÞÓR
Vill að harðar verði tekið á
svindlurum en segir að nýjar starfs-
reglur verði að koma úr hinu alþjóð-
FRJÁLSAR Ásdís Hjálmsdóttir
hefur fengið leyfi frá læknum á
vegum Frjálsíþróttasambands
Íslands til að keppa á HM í
Suður-Kóreu síðar í mánuðinum.
Ásdís hefur átt við meiðsli að
stríða að undanförnu en engu
að síður tekið þátt í keppnum.
Fram kemur í tilkynningu FRÍ
að meiðslin muni ekki há henni,
hvorki í undirbúningi eða keppn-
inni sjálfri.
Ásdís keppir í spjótkasti en
Íslandsmet hennar er 61,37 m.
Hún verður annar tveggja full-
trúa Íslands á HM. Hinn er lang-
stökkvarinn Kristinn Torfason,
sem stökk 7,78 m fyrr á þessu ári.
- esá
HM í frjálsíþróttum:
Ásdís fékk
grænt ljós
ÁSDÍS Mætir þeim bestu á HM í Suður-
Kóreu. NORDIC PHOTOS/AFP