Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 42
Gríski listamaðurinn Konstantin-
os Zaponidis mun halda námskeið
í málun íkona í septemberbyrjun.
„Íkonamálun tengist trú sterkum
böndum. Hún var þekkt á svæði
grísk-kaþólsku eða rétttrúnaðar-
kirkjunnar, en Jesús og María
voru oftast myndefnið,“ segir
Zaponidis og bætir við að íkon-
arnir hafi oft verið í kirkjum.
Íkonamálun á sér langa sögu
en að sögn Zaponidis hófst hún
á fjórðu öld og er stunduð enn
þann dag í dag. „Íkonamálun er
sérstakt afbrigði myndlistar með
ákveðnum stíl. Það er hægt að
nota stílinn til að gera venju legar
myndir líka,“ útskýrir Zaponidis
þegar hann er inntur eftir því
hvort myndefni íkona tengist allt-
af trú. „En þetta eru oftast trúar-
tákn.“
Hvernig er íkonamálun frá-
brugðin öðrum tegundum málara-
listar? „Athyglinni er auðvitað
meira beint að trúarlegum mál-
efnum, svo íkonamálunin er þar
af leiðandi strangari. Áherslan
er ekki á raunsæistúlkunina eins
og fegurð fólksins eða smáatriði
andlitanna heldur beinist athyglin
að trúarlegu hliðinni.“
Zaponidis er reyndur íkona-
málari, en hann hefur fengist
við þá list frá árinu 1981. „Ég hef
kennt íkonamálun í Grikklandi en
einnig myndlist,“ segir Zaponid-
is, sem lærði listir í París. Hann
hefur einnig lært að gera við
listaverk, þeirra á meðal íkona.
„Ég er líka sjálfur impressjónísk-
ur málari,“ segir Zaponidis, sem
sýnir verk sín um þessar mundir
í L51 Artcenter á Laugavegi 51.
Sýning hans mun standa til 31.
ágúst.
Zaponidis er inntur eftir því
hvort námskeiðin séu bæði fyrir
byrjendur og lengra komna mál-
ara. „Allir geta komið, það er
fyrir alla sem vilja læra. Ég mun
fara bæði yfir kenningar að baki
íkonamálun og svo kenni ég líka
málun íkonanna.“ Zaponidis hóf
að kenna einum nemanda í byrjun
síðustu viku en langar að kenna
stífari námskeið sem varað gætu
í um mánuð, ef áhugi er fyrir því
hér á landi.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin og skráningu er hægt að
fá með tölvupósti á artinicons@
gmail.com eða í síma 897-0231.
martaf@frettabladid.is
Námskeið í
íkonamálun
Námskeið í íkonamálun fer fram hér á landi í byrjun september.
Gríski listamaðurinn Konstantinos Zaponidis stefnir á að halda
mánaðarnámskeið í málun íkona og kenningum að baki þeirri list.
Konstantions Zaponidis mun kenna íkonamálun á Íslandi í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Námskeið í heimavinnslu mjólkurafurða með áherslu á einfalda osta-
gerð verður haldið á vegum Ólafsdalsfélagsins í Tjarnarlundi, Saurbæ,
laugardaginn 3. september. Sjá nánar á á www.olafsdalur.is.
„Þetta er mun lengra nám í nálastungum en áður
hefur þekkst hér á landi, enda er það sem fyrir er
hvorki fugl né fiskur. Tekur jafnvel bara átta til tíu
daga,” segir Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, kennari í
Skóla hinna fjögurra árstíða. Hún segir nálastungu-
lækningar vera fjögurra ára háskólanám annars
staðar í heiminum og hennar skóli sé að taka skref í
átt að því. „Þetta er ein tegund læknisfræði og á allt
öðrum grunni en sú vestræna.“
Arnbjörg Linda segir námið í hennar skóla ætlað-
an þeim sem eru með grunnþekkingu í líffæra- og
sjúkdómafræði, svo sem hjúkrunarfólki, sjúkralið-
um og sjúkraþjálfurum. „Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
viður kennir nálastungur sem part af læknisfræði og
fer fram á 1.000 bóklega tíma og 1.500 verklega tíma
áður en fólk getur unnið við nálastungulækningar. Ég
er að fara í þessa átt og bjóða upp á 500 klukkutíma
grunnnám og svo kúrsa með erlendum kennurum
sem fólk getur tekið síðar eftir hentugleikum.“ Nánari
upplýsingar eru á www.nalastungur.is. - gun
Nýtt nálastungunám
SKÓLI HINNA FJÖGURRA ÁRSTÍÐA Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG
16 BÝÐUR UPP Á 10 MÁNAÐA GRUNNNÁM Í KÍN-
VERSKRI LÆKNISFRÆÐI OG NÁLASTUNGU.
„Námið er ætlað þeim sem eru með grunnþekkingu í líffæra- og
sjúkdómafræði,” segir Arnbjörg Linda nálastungulæknir.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FJARNÁM
Skráning á haustönn fer fram 30. ágúst til 6. september
á slóðinni www.fa.is/fjarnam
Lækkað verð
Office Skills Programme for
Foreign Students
Office Skills Programme for students, over the age of 20, not having Icelandic as their
mother tongue. The courses are taught both in basic Icelandic and English.
Time: Mondays, Tuesdays and Wednesdays from 17:30 to 20:30. See mk.is or contact
Inga Karlsdóttir í 5944000/8244114.
NOKKUR SÆTI LAUS!
Skrifstofubraut I
Er tveggja anna hagnýt braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og
samskiptagreinar.
Kennslutími: Kl. 8:20 – 13:00. og einnig 12:35 – 16:35. Kennsla hefst 24. ágúst
Brautin er einnig kennd í fjarnámi – sjá mk.is
Skrifstofubraut II - rekstrarfulltrúi
Tveggja anna framhaldsnám á skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi.
Mikil áhersla er lögð á tölvunám, viðskipta- og samskiptagreinar.
Inntökuskilyrði: Krafist er þekkingar í ensku, bókfærslu og tölvunotkun.
Þeir nemendur sem lokið hafa námi af skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi ganga
fyrir um skólavist.
Kennslutími: Kl. 8:20 – 13:00. Kennsla hefst 24. ágúst
Upplýsingar veitir Inga Karlsdóttir fagstjóri hagnýtra viðskipta- og fjármálagreina
í síma 594 4000/8244114 eða í inga.karlsdottir@mk.is