Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 20. ágúst 2011 9
INGVAR HELGASON og B&L • Sævarhöfða 2, sími 525 8000
INGVAR HELGASON og B&L
Starfsfólk Ingvars Helgasonar ehf. leitast eftir að ráða til sín samstarfsfólk
sem er hefur gaman af að veita góða þjónustu, hefur löngun til að skara
framúr, hefur nægj anlegt sjálfstæði til að grípa inn í og stýra málum í
réttan farveg, hefur gaman af samvinnu og mannlegum samskiptum
og síðast en ekki síst er létt á lund og brá.
Söluráðgjafi í nýjum bílum
Starfssvið: · Sala á nýjum bílum og almenn ráðgjöf.
Hæfniskröfur: · Reynsla af sölumálum æskileg
og löngun til að skara framúr.
· Tölvukunnátta.
· Gott vald á íslensku.
· Rík þjónustulund, kurteisi og nákvæm vinnubrögð.
Umsóknum á að skila í netfangið runar.bridde@ih.is fyrir 30. ágúst.
Sölufulltrúi á fyrirtækjasviði
Starfssvið: · Sala á bílum til fyrirtækja og almenn ráðgjöf.
Hæfniskröfur: · Reynsla af sölustörfum og löngun til að skara framúr .
· Gott vald á íslensku og framsetningu tölvugagna.
· Word og Excel kunnátta.
· Háskólamenntun æskileg.
· Rík þjónustulund, kurteisi og nákvæm vinnubrögð.
Umsóknum á að skila í netfangið skuli.skulason@ih.is fyrir 30. ágúst.
Við fjölgum
í framlínunni
Vantar vana járniðnaðarmenn
í smiðju á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingar í síma 891-8380 og 893-5990
Aðstoðarkonur óskast frá 1. september 2011
Aðstoðarkonur óskast til starfa frá 1. September 2011.
Um er að ræða fullt-og hlutastarf veturinn 2011/2012 og áfram ef
vel gengur.
Persónuleg aðstoðarkona vinnur við að aðstoða mig við að fram-
kvæma athafnir daglegs lífs, m.a. við hreinlæti, klæðnað, keyrslu,
tiltekt, vinnu, félagslíf og ferðalög innanlands og utan.
Aðstoðarkonur starfa eftir hugmyndafræðinni um Sjálfstætt líf eða
sem fatlað fólk hefur þróað og barist fyrir út um allan heim.
Hugmyndafræðin snýst um að fötluð manneskja hafi stjórn á eigin
aðstoð, hvernig hún er skipulögð og hönnuð eftir þörfum, lífsstíl,
aðstæðum og væntingum.
Nú þegar starfa hjá mér fimm frábærar aðstoðarkonur og er þörf
á að bæta fleiri í hópinn.
Umsækjandi þarf að vera á aldrinum 20-35 ára, reyklaus og með
bílpróf sem er skilyrði.
Jákvæðni, virðing, metnaður, sveigjanleiki og samvinna er lykill að
farsæld í starfi því með aðstoð af þessum toga hef ég tækifæri til
að lifa sjálfstæðu lífi.
Umsækjendur þurfa að geta unnið dag-, kvöld- og næturvaktir
bæði á virkum dögum og um helgar.
Umsóknarfrestur er 26. Ágúst 2011.
Fyrirspurnir, umsóknir og ferilskrár sendist á freyja@npa.is.
Vinsamlegast tilgreinið 2 - 3 meðmælendur í ferilskrá.
Við leitum að kraftmiklum og samviskusömum einstaklingi með
ríka þjónustulund, frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi.
Starfssvið
Sala á hvataferðum og ráðstefnum á erlendum mörkuðum
Öflun nýrra viðskiptavina og sókn á nýja markaði
Tilboðs- og samningagerð
Söluferðir á kaupstefnur og/eða sýningar erlendis og innanlands
Lágmarks kröfur
Tveggja ára starfsreynsla í hótel- og/eða ráðstefnugeiranum
Viðeigandi menntun á sviði hótelfræða og/eða sölu- og markaðsmála
Góð tölvukunnátta
Góð tungumálakunnátta, í ræðu jafnt sem riti
Mjög góðir hæfileikar í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
Æsklegur kostur er gott tengslanet
Mjög áhugavert starf sem hentar konum jafnt sem körlum.
Grand Hótel Reykjavík er fjögurra stjörnu hótel
sem leggur mikinn metnað í faglega og góða þjónustu.
Umsóknir skulu sendast á grand.is/umsoknir
Grand Hótel Reykjavík - Sigtúni 38 - 105 Reykjavik - grand.is
SÖLUSTJÓRI /
VERKEFNISSTJÓRI