Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 20.08.2011, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 20. ágúst 2011 15 Hugbúnaðarsérfræðingur LINUX / AIX umhverfi Isavia ohf. óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf hugbúnaðar- sérfræðings hjá ATM kerfum fyrirtækisins á Reykjavíkurflugvelli. Hjá Isavia ohf. starfa um 550 manns. Isavia sér um uppbyggingu og rekstur flugvalla og veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlands jafnt sem millilanda- flug auk yfirflugþjónustu fyrir Norður- Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa. Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna Við leitum að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika, hefur frumkvæði í starfi, getur unnið undir álagi, er skipulagður í verkum sínum og hefur lipra og þægilega framkomu. Starfssvið ATM kerfin sjá um rekstur tölvukerfa í flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli, fjarskipta- stöðinni í Gufunesi og á Keflavíkurflugvelli. Tölvukerfin eru m.a. fluggagnakerfi og ratsjárkerfi, sem bæði vinna með rauntímaupplýsingar um flugumferð á Íslandi og Norður-Atlantshafi. Helstu verkefni felast m.a. í uppsetningu, eftirliti og viðhaldi kerfa. Í starfinu felst einnig fyrir- byggjandi viðhald, greining bilana og ákvörðun viðbragða við þeim. Viðkomandi mun einnig koma að forritun vegna viðhalds kerfa í notkun, þarfagreiningu vegna nýrra verkefna, gerð kerfislýsinga vegna áætlanagerðar og mati á umfangi verkefna, uppsetningu og prófunum á hugbúnaði og fleiri spennandi verkefnum. Starfið er ýmist unnið á dagvöktum eða á virkum dögum. Hæfniskröfur Við gerum kröfu um háskólapróf í tölvunarfræði eða sambærilega menntun. Reynsla af LINUX og TCP/IP netumhverfi er æskileg. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á íslenskri og enskri tungu. Krafa er um að umsækjendur búi á Reykjavíkursvæðinu vegna bakvakta. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið. Umsóknir Upplýsingar um starfið veitir Sigurður Hauksson, deildarstjóri ATM kerfa í síma 424 4207. Umsóknum skal skilað rafrænt inn á www.isavia.is/atvinna fyrir 5. september Embætti ríkislögmanns laust til umsóknar. Forsætisráðherra skipar í embættið til fimm ára. Ríkislögmaður skal fullnægja almennum starfs- gengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, lagaskil- yrðum til skipunar í dómaraembætti við Hæstarétt skv. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 15/1998, um dómstóla, og hafa réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti skv. lögum nr. 77/1998, um lögmenn. Um embættið gilda lög nr. 51/1985, um ríkislögmann, með síðari breytingum, og lög nr. 70/1996, með síðari breyting- um, að öðru leyti. Í umsókn um embættið skal greina nafn, starfsheiti og heimilisfang umsækjanda, veita upplýsingar um menntun og starfsferil og þar skal koma fram yfirlýsing um að framangreind skilyrði séu uppfyllt. Jafnframt skal þar koma fram frá hvaða tíma um- sækjandi geti tekið við embættinu. Umsókn skal fylgja staðfest endurrit af leyfisbréfi umsækjanda sem hæstaréttarlögmaður. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs, sbr. lög nr. 47/2006, um kjararáð. Umsóknir skulu hafa borist forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík, eigi síðar en 5. september nk. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu. Í forsætisráðuneytinu, 18. ágúst 2011.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.