Fréttablaðið - 08.09.2011, Síða 4
8. september 2011 FIMMTUDAGUR4
Í blaði um kvikmyndaverðlaun
Norðurlandaráðs sem fylgdi Frétta-
blaðinu í gær var ranglega sagt hver
hefði samið leikritið sem kvikmyndin
Brim byggir á. Jón Atli Jónasson
samdi leikritið.
LEIÐRÉTT
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
28°
16°
17°
16°
21°
16°
16°
30°
20°
30°
25°
28°
17°
22°
23°
15°Á MORGUN
Strekkingur með NA-
strönd, annars hægari.
LAUGARDAGUR
Vaxandi vindur SA- og
NV-lands. 8 7
7 5
4
89
6 6
7
6
7
10
7
5
4
45
5
6
-1
8
11
5
9
6
10
68
7
8
5
18
BJART EN SVALT
verður víða á land-
inu næstu daga. Í
dag fellur reyndar
lítilsháttar úrkoma
norðaustanlands
en svo léttir þar til.
Á laugardag má
búast við vaxandi
vindi og líklega fer
hitinn heldur upp á
við á sunnudag.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Tvítug stúlka hefur
verið ákærð fyrir ölvunar- og
ofsaakstur í miðborginni, fyrst í
nóvember og aftur í mars.
Í nóvember ók hún samkvæmt
ákæru ölvuð á grindverk við
Skúlagötu og yfirgaf síðan bílinn
og vettvanginn.
Í mars ók hún öðrum bíl ölvuð
um Þingholtin. Hún sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu,
ók langt yfir hámarkshraða um
fjölda gatna og stöðvaði loks
á gatnamótum Frakkastígs og
Hverfisgötu. Þar reyndi hún að
komast undan á hlaupum.
Ákæran var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. - sh
Stúlka ók utan í lögreglubíl:
Tvítug ákærð
fyrir þeysireið
um Þingholtin
Slasaði sig með kantskera
Maður slasaðist á fæti í Æðey í gær
þegar hann var að vinna með kant-
skera og skar sig. Gunnar Friðriksson,
björgunarskip Slysavarnafélagsins
Landsbjargar á Ísafirði, flutti mann-
inn á Sjúkrahúsið á Ísafirði, þar sem
hlúð var að sárum hans.
SLYS
ALÞINGI Skiptar skoðanir eru um
fyrirhuguð kaup kínverska fjár-
festisins Huang Nubo á Grímsstöð-
um á Fjöllum. Þingmenn þriggja
flokka kölluðu eftir því, á Alþingi í
gær, að stjórnvöld settust að samn-
ingaborðinu með Nubo og gengju
frá málinu í nafni fjárfestinga, upp-
byggingar og fjölbreytni í atvinnu-
lífi.
Magnús Orri Schram, þingmaður
Samfylkingarinnar, hóf umræðuna
og hvatti til þess að fundað yrði
með Nubo. Hann vildi leysa málið
með hagsmuni ferðaþjónustunnar
í huga, sem og landsvæðisins sem
hann sagði teljast kalt í atvinnulegu
tilliti. Hann spurði Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur, þingmann Sjálf-
stæðisflokksins, hvort hún væri
ekki sama sinnis.
Þorgerður játti því og taldi far-
sælast að leita lausna á málinu.
„Allar þjóðir eiga að vita að land-
ið sé opið fyrir fjárfestingum. Hér
gildi reglur og lög sem allir fara
eftir og sé það gert á ekki að skipta
máli hvaðan menn koma.
Þorgerður gagnrýndi ráðherra
fyrir málflutning sem fældi fjár-
festa frá. Forsætisráðherra vildi
þjóðnýta ákveðnar eignir, land-
búnaðarráðherra ræddi ekki við
Evrópusambandið og innanríkis-
ráðherra vildi loka og læsa fyrir
Kínverjum.
Athygli vekur að við annan tón
kveður hjá Þorgerði en formanni
Sjálfstæðisflokksins, Bjarna
Benedikts syni, sem hefur goldið
varhug við jarðarkaupum af þess-
ari stærðargráðu.
Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir, einnig í Sjálfstæðisflokknum,
fagnaði, líkt og Þorgerður Katrín,
áhuga erlendra fjárfesta á Íslandi.
Höskuldur Þórhallsson, Fram-
sóknarflokki, kallaði eftir vilja-
yfirlýsingu forsætis-, eða fjármála-
ráðherra um viðræður við Nubo.
Hann sagði mikilvægt að Nubo
hefði lýst yfir fullum vilja til sam-
ráðs við heimamenn.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
Samfylkingunni, sagði brýnt að
taka málinu með opnum huga og
nauðsynlegt væri að tryggja fjöl-
breytni í atvinnulífinu. „Við þurf-
um erlenda fjárfestingu, ef hún
stenst íslenskar kröfur eigum við
ekki að hafna henni, slíkt afturhald
er ekki í boði.“ kolbeinn@frettabladid.is
ÚTGEFENDAMÁLÞING | NORRÆNA HÚSIÐ
VIÐTÖL | NORRÆNA HÚSIÐ
Herta Müller & Jórunn Sigurðardóttir [DE/IS]
Sara Stridsberg & Soffía Auður Birgisdóttir [SE]
Sjón & Katharina Narbutovic: Politkovskaja (1958-2006) [EN]
Alberto Blanco & Margrét Jónsdóttir [EN]
FYRIRLESTUR: Nawal El Saadawi, Norræna húsið [EN]
FYRIRLESTUR: Alberto Blanco, Háskóli Íslands [EN]
UPPLESTUR | IÐNÓ
Pétur Gunnarsson | Anna Politkovskaja
(1958-2006) | Matt Haig | Kristín Svava
Tómasdóttir | Vikas Swarup
NÁNAR Á WWW.BOKMENNTAHATID.IS
9:00-11:30
12:00-14:00
14:30
16:00
20:00
BókmenntahátíðFIM
M
TU
DA
G
UR
8
. S
EP
T.
GENGIÐ 07.09.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,9821
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,58 116,14
184,64 185,54
162,31 163,21
21,790 21,918
21,577 21,705
18,100 18,206
1,4965 1,5053
183,47 184,57
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Þingmenn hvetja stjórn-
völd til samninga við Nubo
Þingmenn þriggja flokka vilja samningaviðræður við kínverska fjárfestinn Nubo um Grímsstaði á Fjöllum.
Hálendið er að langstærstum hluta skilgreint sem þjóðlendur. Kallað eftir fjölbreytni í atvinnlífi.
MÁLSHEFJANDI Magnús Orri Shcram hvatti ráðherra til að funda með kínverska fjárfestinum Nubo og liðka fyrir kaupum á Gríms-
stöðum. Annar samfylkingarmaður, Sigmundur Ernir Rúnarsson, tók undir og sagði kaupin auka fjölbreytni atvinnulífsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki, hefur
fengið tölur úr starfi óbyggðanefndar, um skilgrein-
ingu þjóðlenda. Nefndin hefur tekið fyrir 67 prósent
af landinu og þar af 86 prósent af miðhálendinu.
Af þessum 67 prósentum af landinu öllu teljast 49
prósent þjóðlendur og 51 prósent eignarland. Af
þessum 86 prósentum af miðhálendinu eru hins
vegar 89 prósent þjóðlendur en aðeins 11 prósent
eignarland.
Ragnheiður Elín segir að sé gert ráð fyrir að ríkið
selji ekki sinn hluta setji þessar tölur áhyggjur af því
að einhver kaupi landið í rétt samhengi. „Vanda-
málið verður aldrei nema í hlutfalli við þetta.“
Lendur þjóðar
VIÐSKIPTI „Uppgjörið er mjög traust, í samræmi
við áætlanir og stenst þær arðsemiskröfur sem
eru gerðar,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, for-
stjóri Arion banka.
Bankinn hagnaðist um 10,2 milljarða króna á
fyrstu sex mánuðum ársins sem er 2,3 milljörð-
um meira en á sama tíma árið á undan. Endur-
mat á útlánasafni og uppgjör við þrotabú Kaup-
þings setur mark sitt á uppgjör bankans líkt og
síðustu misserin eftir efnahagshrunið. Höskuld-
ur segir þessa tvo þætti gera uppgjörið óvenju-
legt. Þegar fram líði stundir, óvissu tengdri
útlánasafni bankans og öðrum eignum verði
eytt og reksturinn komist á lygnan sjó muni
það verða skýrara. Flestir liðir í rekstri Arion
banka bötnuðu á milli ára og er mál þeirra sem
Fréttablaðið ræddi við að grunnreksturinn sé
á uppleið þótt afkoman sé talin lítillega undir
kröfu Bankasýslu ríkisins. Enginn þar vildi tjá
sig opinberlega um málið.
Krafa Bankasýslunnar af reglulegum rekstri
hljóðar almennt upp á 11,0 til 11,5 prósenta
arðsemi. Óreglulegir liðir valda því að arð semin
nær rúmum 20 prósentum. Að þeim undan-
skildum liggur arðsemi af reglulegum rekstri
í kringum 9,0 prósent. - jab
HÖSKULDUR
Aðstæður í
efnahags-
lífinu eru á
margan hátt
óvenjulegar, að
sögn forstjóra
Arion banka.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Arðsemi af grunnrekstri Arion banka talin undir kröfu Bankasýslu ríkisins:
Forstjórinn segir uppgjörið vera traust
Lykiltölur úr rekstri Arion banka
Liðir jan-júní 2010 jan-júní 2011
Hagnaður* 7,9 10,2
Rekstrartekjur 17,1 24,5
Vaxtamunur 2,9% 3,2%
Heildareignir 842,3 805,3
Eigið fé 101,4 117,2
Eiginfjárhlutfall 16,6% 21,4%
Arðsemi eigin fjár 17,7% 20,3%
* Í milljörðum króna
Handtóku önugan ökumann
Lögregla handtók konu í Kópavogi í
fyrradag eftir að hún var stöðvuð fyrir
að tala beltislaus í síma undir stýri
en neitaði að segja til nafns og leysa
málið á vettvangi. Í tilkynningu er
konunni lýst sem mjög þvermóðsku-
fullri. Málið var klárað á lögreglustöð.
LÖGREGLUFRÉTTIR