Fréttablaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING sushi8. SEPTEMBER 2011 FIMMTUDAGUR 3 „Þegar við kynntum sushi fyrst á Íslandi árið 1998 voru margir sem grettu sig og þótti þetta einum of framandi matur. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og sala á sushi eykst stöðugt í takt við heilsubyltinguna,“ segir Hilmar Sigurjónsson, framkvæmda- stjóri Nings á Íslandi. Sushi er í dag stór hluti af veitinga þjónustu Nings, en fyrirtækið er stærsti sushi-fram- leiðandi landsins. Nings framleiðir nýtt sushi alla daga og selur á veitinga stöðum sínum sem eru þrír í dag, á Suðurlands- braut, í Hlíðar smára og á Stórhöfða. Auk þess er framleitt sushi fyrir veisluþjónustu Nings sem er ákaflega öflug og Nings sinnir einn- ig framleiðslu á sushi fyrir önnur fyrir tæki. „Veislubakkarnir frá okkur eru mjög vin- sælir fyrir veislur, fundi, saumaklúbba eða hvar sem fólk kemur saman,“ segir Hilm- ar og bendir á að hægt sé að velja um þrjá- tíu bita og fimmtíu bita bakka. „Fólk kippir oft með sér veislubakka til að hafa sem for- rétt eða jafnvel aðalrétt í matarboðum,“ upp- lýsir Hilmar. Segja má að Nings hafi oft verið á undan sinni samtíð þegar kemur að hollustu enda hefur hollusta matarins frá upphafi verið eitt af aðalmarkmiðum Nings. Strax í byrjun var ákveðið að sleppa öllu msg í matnum en fáir vissu hvað það var þegar Nings var stofnað fyrir tuttugu árum. Einnig hafa frá upphafi verið not- aðar olíur án transfitusýra. „Á veit ingahúsum Nings er lögð áhersla á að allt hráefni sé ferskt,“ segir Hilmar ákveðið. Hann segir Nings hafa boðið upp á ýmsar nýj- ungar í sushi á Íslandi. Til dæmis „brown rice sushi“ sem búið er til úr heilum brúnum hrísgrjónum. Þessa tegund er í dag hægt að sérpanta en Hilmar telur að þessi gerð af sushi verði vinsælli með tímanum. „Það er stefna Nings að verða nú sem fyrr leið- andi í sushi-gerð og -þróun,“ segir hann og bendir á heimasíðuna www.nings.is til nánari glöggvunar á matseðli og þjón- ustu Nings. Veislubakkar Nings eru vinsælir fyrir veislur, fundi, saumaklúbba eða hvar sem fólk kemur saman. Veitingastaðnum Nings var breytt á dögunum í tilefni tuttugu ára afmælis staðarins. Á Nítjándu veitingastað leggjum við ofuráherslu á ferskt og gott hráefni í öllum okkar veitingum og því fáum við fisksalann til okkar á hverjum degi með eitthvað nýtt og spennandi í sushi-ið okkar“ segir Siggi Gísla, framkvæmdastjóri Veislu- turnsins og Nítjándu veitingastaðar en stað- urinn hefur skipað sér í raðir vinsælustu veitingastaða landsins. Úrvalið af sushi-bitum er afar fjölbreytt á Nítjándu. „Það vegur afar þungt hjá okkur að hafa nægt úrval en við erum til að mynda alltaf með að lágmarki fjórar mismundi teg- undir í hádeginu alla virka daga og missum okkur svo alveg á kvöldin með endalausu úrvali af maki-rúllum, nigiri og sashimi. Sushi-áhugafólk getur þá fengið sér eins mikið og það getur í sig látið af sushi og öllu hinu en á okkar gómsæta kvöldverðarhlað- borði má finna um fjörutíu rétti í það heila. Það er líka rosa gaman að sjá hvað börnin eru dugleg að smakka sushi hjá okkur og sum hver alveg háma það í sig,“ segir Siggi glaðlega. Sushi-gerðarmenn Nítjándu sækja sér þekkingu víða. „Þá hafa sushi-gerðarmeist- arar frá hinum heimsfæga veitingastað Zuma í London sótt okkur heim, segir Siggi. „Þeir hafa miðlað reynslu sinni og þekkingu og haldið námskeið fyrir okkar fólk.“ Þess má geta að hægt er að kaupa tilbúna sushi-bakka á annarri hæð í Turninum en þar er Nítjánda veitingastaðurinn með mjög girnilegar „takeaway“-vörur í kæli. „Þær eru á frábæru verði og við erum alltaf í leiðinni,“ segir hann glaðlega. Ferskt hráefni er grunnur að góðu sushi Veitingastaðurinn Nítjánda í Turninum á Smáratorgi er meðal þeirra vinsælustu á landinu. Sushi skipar stóran sess á matseðlinum enda Íslendingar sólgnir í hið japanska góðgæti. Úrvalið af sushi-bitum er iðulega gott. MYND/VEISLUTURNINN NÍTJÁNDAXing Shi Li, sushi-gerðarmeistari Nítjándu, að störfum ásamt yfirmatreiðslumanni Veisluturnsins, Stefáni Inga. MYND/HAG Stærsti sushi- framleiðandi landsins Veitingastaðurinn Nings var með þeim fyrstu sem kynntu sushi fyrir Íslendingum og hefur frá árinu 1998 framleitt sushi í fullkominni sushi-verksmiðju sem búin er fullkomnum japönskum sushi-tækjum og -róbotum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.