Fréttablaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 46
8. september 2011 FIMMTUDAGUR34 Fimmtudaginn 8. september hefst vetrarstarf Barnakórs Árbæjarkirkju Söngur, dans og tónlist! Öll börn á aldrinum 7-10 ára eru velkomin í kórinn sem æfir einu sinni í viku. Stjórnandi kórsins er Margrét Sigurðardóttir. Skráning fer fram í safnaðarsal Árbæjarkirkju fimmtudaginn 8. september klukkan 15.00. Nánari upplýsingar veitir kórstjóri í síma 6953314. Árbæjarkirkja KONTRA BASSINN Eftir Patrick Süskind Í flutningi Anders Ahnfelt-Rønne í Norræna húsinu, 8. september, kl. 20.00 Miðaverð: 1500 kr. Kontrabassinn er músík einleikur eftir Patrick Suskind. Anders Ahnfelt-Rönne er hér í hlutverki hins stolta, viðkvæma og ástfangna hljómsveitar- leikara sem staddur er í litlu íbúðinni sinni nokkrum tímum fyrir frumsýningu á Wagner í óperunni. Einleikurinn fer fram á dönsku. Norræna húsið Sturlugata 5 101 Reykjavík S. 5517030 www.norraenahusid.is Gina Belafonte segir að gerð heimildarmyndar um föður sinn, Harry Bela- fonte, hafi verið ótrúlegasta reynsla ævi sinnar. Myndin verður sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni RIFF. Gina Belafonte, dóttir goðsagnar- innar Harry Belafonte, verður á meðal gesta á Alþjóðlegri kvik- myndahátíð í Reykjavík sem hefst 22. september. Hún kemur hingað sem með- framleiðandi heimildarmynd- arinnar Sing Your Song sem fjallar um söngvarann, leikar- ann, „calypso-kónginn“ og mann- réttindafrömuðinn Harry Bela- fonte. Hún verður viðstödd sýningu myndarinnar og tekur þátt í umræðum að henni lokinni. „Þessi mynd hefur gefið mér tæki- færi til að ferðast út um allan heim og ég er spennt yfir því að Ísland sé einn af áfangastöðunum,“ segir Belafonte. Sing Your Song hefur þegar verið valin til sýninga á kvik- myndahátíðunum í Berlín, Tri- beca og Sundance, og hefur hvar- vetna vakið athygli og fengið góða dóma. Myndin rekur ævi þessa rómaða listamanns, gegnum líf, listir og baráttu hans fyrir jöfn- uði og grundvallarmannréttind- um öllum til handa. Flestir þekkja söngvarann Harry Belafonte, sem er 84 ára, og smelli hans á borð við Banana Boat Song og Jump in the Line. Færri vita að hann vann náið með Martin Luther King í réttindabaráttu svartra í Banda- ríkjunum, tók virkan þátt í barátt- unni gegn aðskilnaðar stefnunni í Suður-Afríku og gagnrýndi opin- berlega utanríkisstefnu ríkis- stjórnar George W. Bush. Hann er einnig upphafsmaður átaksins We Are the World og hefur verið góð- gerðasendiherra UNICEF í næst- um tuttugu ár. Gerð heimildarmyndarinnar tók sex og hálft ár. Spurð hvort fram- leiðslan hafi verið krefjandi segir hin fimmtuga Belafonte að vissu- lega taki slíkt verkefni tíma og fyrirhöfn. „Við þurftum að takast á við margar áskoranir en að mestu leyti var þetta ótrúlegasta reynsla ævi minnar. Það var ómetanlegt að fá tækifæri til að skrásetja arfleifð föður míns og komast að því hvers konar maður hann er og var og hvert framlag hans var til banda- rískrar sögu,“ segir hún. Sjálf á hún að baki feril sem leikkona í breikdansmyndinni Beat Street, Bright Lights Big City með Micha- el J. Fox í aðalhlutverki og Kansas City eftir Robert Altman. Þau feðgin hafa unnið saman í næstum tuttugu ár við hin ýmsu samfélagsverkefni og einnig hafa þau gert nokkrar myndir saman. Er auðvelt að vinna með honum? „Ég veit það ekki. Er auðvelt að vinna með snillingum?“ segir hún og hlær. „Ég get ekki borið hann saman við neinn annan. Það er frá- bært að vinna með honum. Hann er samstarfsfús, ástríðufullur og hefur skýrar hugmyndir um hverju hann vill ná fram.“ En hvers vegna ákvaðstu að gera þessa heimildarmynd? „Mig lang- aði að svara ýmsum spurningum. Þegar ég ólst upp var ýmislegt sem ég vildi vita og síðan var dóttir mín að verða sjö ára og bróðir minn var að eignast sitt barn. Mig langaði að skrásetja fyrir þau ævi föður míns, sérstaklega frá hans sjónarhorni. Þannig að þegar þau yxu úr grasi hefðu þau betri skilning á því hver hann var og hvert framlag hans var.“ freyr@frettabladid.is Ótrúlegasta reynsla ævi minnar FEÐGIN Gina og Harry Belafonte hafa ferðast um allan heiminn til að kynna heimildarmyndina Sing Your Song. NORDICPHOTOS/GETTY Á annan veg ★★★★ „Óvenju þroskuð kvikmynd frá nýliðan- um Hafsteini, krydduð hæfilegum skammti af húmor og depurð.“ HVA The Tree of Life ★★★★ „Stríðsyfirlýsing gegn meðalmennsku. Mögnuð upplifun og ég tek hatt minn ofan fyrir Malick.“ HVA Conan The Barbarian ★★ „Fyndin mynd og fjörug, ef maður fer heim í hléi.“ HVA Cowboys And Aliens ★★★ „Vestrinn Cowboys and Aliens gjör- sigrar vísindaskáld- söguna Cowboys and Aliens. Hræran fer þó ágætlega niður með poppinu.“ HVA Í bíó Á ANNAN VEG Kvikmynd eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson. „Ég sá Á annan veg á föstudaginn og hún náði mér alveg. Hún er alveg yndislega „low budget“ en nær samt að vera alvörumynd sem skilar stemningunni frá níunda áratugnum til áhorfenda. Ég vona að sem flestir Íslendingar fari á þessa mynd og leggi sín lóð á vogarskálarnar til að íslensk kvikmyndagerð haldi áfram að dafna. Svo vil ég mæla með sýn- ingu Crispins Glover í Bíó Paradís 16. og 17. september næstkom- andi. Ég hef ekki séð sýninguna hans en mér er sagt að hún sé frábær. Þetta er gaurinn sem lék George McFly í Back to the Future og Scary Thin Man í Charlie‘s Angels. Hann notar peningana sem hann fær fyrir að leika í Hollywood-myndum til að vinna í sínum költheimi. Þetta er fjögurra tíma „sjóv“ og ætti að verða mögnuð upp- lifun.“ Gott í bíó: Diljá Ámundadóttir varaborgarfulltrúi Alvöru stemning frá níunda áratugnum Keith Richards, gítarleikari Roll- ing Stones, komst að því að hann var miklu andstyggilegri en hann hélt þegar hann byrjaði að skrifa sjálfsævisögu sína, Life. Hann var nýlega kjörinn rithöf- undur ársins af karlatímaritinu GQ á verðlaunaafhendingu þess í London. „Ég komst að því að ég er miklu andstyggilegri en ég hélt að ég væri. Á sama tíma áttaði ég mig á því hversu vináttan skiptir mig miklu máli og hversu miklu vinátta mín hefur skipt aðra máli, sem ég hafði ekkert hugsað áður út í,“ sagði Richards, sem er 67 ára. Keith Richards höf- undur ársins hjá GQ VERÐLAUNAÐUR Keith Richards var verðlaunaður fyrir skrif sín af tímaritinu GQ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.