Fréttablaðið - 13.09.2011, Síða 10

Fréttablaðið - 13.09.2011, Síða 10
13. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR EFNAHAGSMÁL Tekjuhalli hins opin- bera var 155 milljarðar króna á síðasta ári, rúmlega 10 prósent af landsframleiðslu. Um svipaðan halla og árið 2009 er að ræða. Þetta kemur fram hjá Hagstofu Íslands. Samkvæmt Hagstofunni skýrist niðurstaðan fyrst og fremst af mikl- um samdrætti í tekjum hins opin- bera vegna 11 prósenta samdráttar í landsframleiðslu á milli áranna 2009 og 2010. Þá jukust útgjöld verulega vegna mikillar skuld- setningar og aukins atvinnuleysis. Heildartekjur hins opinbera námu 637 milljörðum króna árið 2010. Það er aukning frá árinu 2009 um 3,7 prósent, eða 23 milljarða króna. Tekjurnar mældust 41,5 prósent af landsframleiðslu en voru 41 prósent árið 2009. Er það nokkuð lægra hlut- fall en árið 2007 þegar tekjurnar námu 47,9 prósentum af landsfram- leiðslu, en 44,1 prósenti árið 2008. Útgjöld til heilbrigðismála námu 9,3 prósentum af landsframleiðslu, alls 142,6 milljörðum króna. Hlutur hins opinbera nam 114,6 milljörð- um, en hlutur heimilanna 28 millj- örðum króna. Hlutur hins opinbera nam 360 þúsund krónur á hvern Íslending árið 2010. Það er 24 þús- und krónum lægra en árið 2009. - kóp Samdráttur í landsframleiðslu nam 11 prósentum frá 2009: Svipaður tekjuhalli á milli ára HEILBRIGÐISMÁL Útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála námu 360 þúsund krónum á hvern Íslending árið 2010. Það er 24 þúsundum krónum lægra en árið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM NÝSKÖPUN Fjórar stúlkur við jafn- marga grunnskóla hlutu gullverð- laun í Nýsköpunarkeppni grunn- skólanna, sem lauk um helgina. Hofsstaðaskóli í Garðabæ hlaut gullviðurkenningu þriðja árið í röð en flestar hugmyndir í keppninni komu frá nemendum við skólann. Athygli vekur að af tólf börnum sem lentu í verðlaunasætum eru tíu stúlkur og aðeins tveir drengir. Sendar voru inn 1.872 hugmyndir frá 46 grunnskólum. Anna Þóra Ísfold, framkvæmastjóri Nýsköp- unarkeppninnar, segir kynjahlut- fall þeirra sem hafi átt hugmynd- ir í keppninni hafa verið nokkuð jafnt. Nýsköpunarkeppni grunnskól- anna hefur verið haldin í tutt- ugu ár og hafa borist 35 þúsund umsóknir í hana. Markmið keppn- innar er að gera börnum á aldrin- um átta til fimmtán ára grein fyrir sköpunargáfu sinni og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir. Ekki er útilokað að á næsta ári verði keppninni skipt upp í aldurs flokka með skiptingu við gagnfræðaskólaaldur, að sögn Önnu. - jab Stúlkur í meirihluta verðlaunahafa í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda: Hofsstaðaskóli með þriðja gullið RÁÐHERRA AFHENTI GULLIÐ Þau Katrín Elva Elíasardóttir, Kristín Hekla Örvarsdóttir og Birgir Guðlaugsson frá Hofsstaðaskóla í Garðabæ tóku við gull- verðlaunum frá Svandísi Svavarsdóttur menntamálaráðherra. Þessi hlutu gullverðlaun Nafn Skóli Uppfinning Kristín Hekla Örvarsdóttir Hofsstaðaskóla Öryggisúr Stefanía Malen Halldórsdóttir Grunnskólanum austan vatna Stigastöng Dagný Rósa Vignisdóttir Álftanesskóla Tannburstagler Karen Eir Einarsdóttir Vesturbæjarskóla Fjölnota stóll Fundarstjóri er Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, starfsmannastjóri Landsnets hf. Mannauðsdagurinn 2011 FLÓRA félag mannauðsstjóra á Íslandi Helstu áskoranir í mannauðsmálum í dag og framtíðin Framtíðaráskoranir í mannauðsmálum 08:00 Skráning 08:30 Ávarp formanns Flóru, Ketill B. Magnússon 08:40 Gylfi Dalmann, dósent við H.Í. Staða mannauðsstjórnunar á Íslandi 08:55 Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa 09:10 Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa 09:25 Kaffihlé 10:00 Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS 10:15 Björn Zoega, forstjóri LSH 10:30 Paul Kearns, Director of Personnel Works Ltd. – „Stepping up to the HR Challenges facing us all“ 11:30 Umræður 11:50 Hádegisverður. Samstarfsaðilar kynna vöru og þjónustu tengda mannauðsmálum Áskoranir mannauðsstjóra og starfsmanna mannauðsdeilda 13:30 Vlad Vaiman, forstöðumaður framhaldsnáms við H.R. Talent Management 13:50 Svali Björgvinsson, framkvæmdastjóri hjá Icelandair Hvatar og hvatakerfi, er framtíð í því? - 14:05 Sigþrúður Guðmundsdóttir,framkvæmdastjóri hjá Landvirkjun Ráðningar 14:20 Kaffihlé 14:45 Helga Fjóla Sæmundsdóttir, frkvst. hjá Ísl. gámafélaginu Vinnustaðamenning - 15:00 Hafsteinn Bragason, mannauðsstjóri Íslandsbanka HR mælikvarðar 15:15 Elín Helgadóttir, ráðgjafi hjá PWC - Þróun markaðslauna 15:30 Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri IcePharma Ef ég væri mannauðsstjóri þá myndi ég... 15:45 Samantekt og lok Kokteill Sérstakur gestur Mannauðsdagsins verður Paul Kearns forstjóri Personnel Works Ltd. Paul hefur starfað að mannauðsmálum frá árinu 1978. Paul hefur skrifað nokkrar bækur um starfsmannamál og þar á meðal bókina HR Strategy og Creating Business Strategy with Human Capital. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Natura í Þingheimasal 14. september kl. 08.00 Skráning fer fram á stella@practical.is Ráðstefnugjald kr 16.500.- fyrir heilan dag og kr.13.500.- fyrir hálfan dag* Meðlimir FLÓRU fá sérstök kjör og greiða kr.10.500.- fyrir heilan dag og kr 8.900.- fyrir hálfan dag* *Hádegisverður er innifalinn í öllum verðum ALÞINGI Stjórnarandstæðingar telja að Evrópusambandið sé að krefj- ast aðlögunar íslensks stjórnkerfis að kerfi sambandsins, með skýrslu sinni um landbúnaðarmál. Tekist var á um hvað skýrslan þýddi og hvort aðlögunarferlis væri krafist fyrir mögulega samþykkt í þjóðar- atkvæði eða ekki. Utandagskrárumræða var um málið á þingi í gær og var Bjarni Benediktsson, for maður Sjálfstæðis flokksins, máls hefjandi. Hann sagði skýrslu ESB, sem lögð var fram í síðustu viku, sýna að sambandið teldi Íslendinga ekki nægilega vel undir viðræður búna, þar sem ekki væri skýrt kveðið á um hvernig aðlaga ætti íslenskt stjórnkerfi að því evrópska. Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, sagði stærstu tíðindi umræddrar skýrslu vera þau að ESB setti Íslending- um opnunarskilyrði sem uppfylla þyrfti áður en samningar um land- búnað og dreifbýlisþróun hæfust. „Það er ekki að sjá að Evrópusam- bandið muni taka tillit til hugsan- legra krafna Íslands um styrkja- kerfi sem hentar okkur betur en kerfi Evrópusambandsins.“ Jón taldi ýmislegt óskýrt í skýrslu ESB og hann mundi krefja sambandið skýringa á því hve ítar- leg áætlun Íslands þyrfti að vera áður en til viðræðna kæmi. Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra sagði ljóst að kröfurn- ar væru ekki mjög skýrar. Skýr- ingin á því væri að ESB setti það nánast í hendur Íslendinga sjálfra með hvaða hætti áætlunin yrði tímasett. Össur fullyrti, sem og fleiri stjórnarliðar, að kröfurnar væru í fyllsta samræmi við skilyrði Íslendinga fyrir viðræðunum. Krafan snerist ekki um kröfu um aðlögun áður en samningur yrði borinn undir þjóðina; þvert á móti væri verið að ræða um hvernig ætti að laga íslenskt stjórnkerfi að kerfi ESB ef og þegar þjóðin hefði samþykkt samning í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknar- flokksins, sagði það liggja fyrir að ef land sækti um aðild að sam- bandinu yrði það að undirgangast reglur þess. Hann spurði Jón Bjarnason að því hvort hann gerði sama grein- armun og Össur á því að Íslend- ingar þyrftu að hafa starfsfólk á hliðarlínunni sem hlaupa mundi inn í tómar byggingar yrði aðild samþykkt. Jón svaraði því ekki beinum hætti, en sagðist reiðubúinn til að fara til Brussel ef með þyrfti til að fá skýringar á skýrslu ESB. kolbeinn@frettabladid.is Þingmenn takast enn á um aðlögun Rætt var um aðlögun að ESB á Alþingi í gær. Stjórnarandstaðan telur kröfur sambandsins í landbúnaðarmálum kalla á aðlögun fyrir samþykkt. Ráðherrar voru ósamstíga. Jón Bjarnason segist munu krefja ESB skýringa á kröfum þess. MÁLSHEFJANDI Bjarni Benediktsson telur skýrslu Evrópusambandsins um land- búnaðarmál sýna að sambandið telji Íslendinga ekki nægilega búna undir viðræður. Skýrt sé þar hverju þurfi að breyta í landbúnaðarkerfinu hér á landi, eigi aðild að verða að veruleika. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.