Fréttablaðið - 13.09.2011, Síða 31
Enginn Íslendingur hefur verið
í sigurliði í UEFA-bikarnum eða
Evrópukeppni bikarhafa. Þær
keppnir voru sameinaðar árið
1999 undir nafni UEFA-bikarsins,
sem breyttist síðan í Evrópudeild-
ina (UEFA Europa League) árið
2009.
Arnór Guðjohnsen komst
tvisvar í úrslitaleik með Ander-
lecht, einu sinni í UEFA-bikarnum
og einu sinni í Evrópukeppni
bikarhafa, en tapaði í bæði
skiptin.
Arnór var á sínu fyrsta tímabili
með Anderlecht, 1983-84, þegar
liðið komst í úrslitaleik UEFA-
bikarins og mætti þar Tottenham.
Arnór hafði glímt við meiðsli
allan veturinn og lék ekki fyrri
leikinn sem fram fór í Belgíu og
endaði 1-1. Hann kom inná sem
varamaður í leik liðanna á White
Hart Lane en leikur inn endaði
einnig með jafntefli og eftir fram-
lengingu var gripið til vítaspyrnu-
keppni. Staðan var 4-3 fyrir
Tottenham þegar komið var að
Arnóri að taka fimmtu vítaspyrnu
liðsins en Tony Parks varði spyrn-
una og Tottenham fangaði sigri.
Anderlecht komst í úrslit í Evr-
ópukeppni bikarhafa vorið 1990
og mætti þar Sampdoria. Leikur-
inn endaði með markalausu jafn-
tefli en Gianluca Vialli tryggði
Sampdoria titilinn með tveimur
mörkum í framlengingu.
Ásgeir Sigurvinsson lék til úr-
slita í UEFA-bikarnum með Stutt-
gart árið 1989 en tapaði fyrir Diego
Maradona og félögum hans í Na-
poli. Fyrri leikurinn endaði með
2-1 sigri Napoli á Ítalíu og sá seinni,
sem fram fór í Stuttgart, endaði 3-3.
evrópudeildin ● fréttablaðið ●ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011 7
Eiður Smári Guðjohnsen gekk
til liðs við gríska félagið AEK
í Aþenu í sumar og það mun
væntanlega mæða mikið
á honum í Evrópudeildinni
í vetur. Fyrsti leikur liðsins
í riðlakeppninni, gegn
Anderlecht, verður sýndur í
beinni útsendingu á Stöð 2
Sport á fimmtudag.
Íslendingar hafa aldrei áður sýnt
grískum fótbolta eins mikinn
áhuga og nú. Arnar Grétarsson
var óvænt ráðinn yfirmaður knatt-
spyrnumála AEK í mars 2010. en
hann lék með liðinu á árunum
1997 til 2000. Í sumar fékk Arnar
bæði Eið Smára og varnarmann-
inn Elfar Frey Helgason til liðs
við AEK og þar á bæ eru bundn-
ar miklar vonir við Íslendingana.
HEIMSÆKIR ÆSKUSLÓÐIR
Fyrsti leikur AEK í Evrópudeild-
inni er gegn Anderlecht í Belgíu
á fimmtudag. Sama dag fagnar
Eiður Smári 33 ára afmæli sínu,
en hann er fæddur 15. september
1978.
Eiður Smári ætti að þekkja vel
til á þessum velli því þar gerði
Arnór faðir hans garðinn frægan
með Anderlecht á árunum 1983-
1990. Arnór náði hátindi ferilsins
með Anderlecht veturinn 1986-
1987 þegar hann varð belgískur
meistari með liðinu, markahæsti
leikmaður deildarinnar og valinn
besti leikmaðurinn í Belgíu.
Á þessum árum steig Eiður Smári
sín fyrstu skref í fótboltanum. Á
meðan Arnór lék með Anderlecht
spilaði Eiður Smári með drengja-
liði í bænum Brussegem þar sem
fjölskyldan bjó skammt fyrir utan
Brussel. Hann var aðalmarka-
skorari liðsins og sýndi strax
mikla knattspyrnuhæfileika. Á
sumrin lék hann síðan með ÍR á
Íslandi.
LEIKJAHÆSTUR ÍSLENDINGA
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Eiður Smári mætir Anderlecht í
Evrópukeppni því hann var í liði
Chelsea sem lék gegn Anderlecht
í Meistaradeildinni í nóvember
2005. Chelsea sigraði 2-0.
Eiður Smári er langleikja-
hæstur íslenskra leikmanna í
Meistaradeildinni, en hann lék
45 leiki og skoraði sjö mörk fyrir
Chelsea og Barcelona á árunum
2003-2009. Þá eru ekki með taldir
þrír leikir og eitt mark í undan-
keppni Meistara deildarinnar.
Hann lék einnig sjö leiki og skor-
aði þrjú mörk í UEFA-keppninni
með Chelsea á árunum 2000-2002.
Eiður Smári er einnig eini Ís-
lendingurinn sem hefur verið í
sigur liði í Evrópukeppni en hann
sat reyndar á bekknum allan tím-
ann í úrslitaleik Barcelona og
Manchester United árið 2009.
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN OG FÉLAGAR HANS Í AEK FRÁ AÞENU MÆTA ANDERLECHT Í EVRÓPUDEILDINNI Á FIMMTUDAG Í BEINNI Á STÖÐ 2 SPORT
Eiður Smári Guðjohnsen verður 33 ára á fimmtudag þegar hann leikur með AEK gegn Anderlecht. Þessi lið mættust einnig í
Evrópudeildinni í fyrra og þá hafði Anderlecht betur, 3-0 í Belgíu og liðin gerðu síðan 1-1 jafntefli í Aþenu. MYND AEK
Mætir Anderlecht
á afmælisdaginn
Eiður Smári Guðjohnsen
Fæddur: 15. september 1978 (32 ára)
Ferill:
1994 Valur 17 7
1994-1998 PSV Eindhoven 13 3
1998 KR 6 0
1998-2000 Bolton 55 18
2000-2006 Chelsea 185 54
2006-2009 Barcelona 72 10
2009-2010 Mónakó 9 0
2009-2010 Tottenham 11 1
2010-2011 Stoke 4 0
2010-2011 Fulham 10 0
Landsleikir: Ísland 67 24
Arnór lék tvisvar til úrslita
og Ásgeir einu sinni
● ÍSLENDINGARNIR Í GRÍSKA BOLTANUM
Eiður Smári Guðjohnsen og Elfar Freyr Helgason leika
með AEK frá Aþenu í Evrópu deildinni og Arnar Grétars-
son er einn af æðstu stjórnendum liðsins.
● Sigurður Grétarsson, bróðir Arnars, varð fyrstur Íslend-
inga til þess að leika í gríska boltanum þegar hann gekk
til liðs við Iraklis sumarið 1984. Liðið lék í efstu deild
og Sigurður skoraði nokkur mörk og vakti athygli fyrir
frammistöðu sína. Eftir eitt ár í Grikklandi var hann
seldur til Luzern í Sviss.
● Ríkharður Daðason var lánaður frá KR til Kalamata
í grísku 1. deildinni snemma árs 1997 og lék með
liðinu frá febrúar til aprílloka. Hann spilaði tíu leiki
og skoraði eitt mark í efstu deild áður en hann
fór aftur til KR.
● Arnar Grétarsson gekk til liðs við AEK
frá Leiftri sumarið 1997. Á fyrsta tíma-
bili hans í Grikklandi varð liðið í 3. sæti
og komst í 8-liða úrslit í Evrópukeppni
bikar hafa. Tímabilið 1998-99 lenti liðið í 2. sæti og spilaði
í UEFA-bikarnum og á þriðja og síðasta árinu varð liðið
bikar meistari en hafnaði í 3. sæti deildarinnar. Alls lék
hann 67 deildarleiki og skoraði eitt mark. Hann hélt síðan
til Lokeren í Belgíu sumarið 2000.
● Kristófer Sigurgeirsson fór frá Fram til Aris í október 1998 og lék þar út
tímabilið, alls 15 deildarleiki.
● Helgi Sigurðsson lék í tvö ár með Panathinaikos. Hann
kom til liðsins frá Stabæk í Noregi fyrir 127 milljónir
króna í ágúst 1999 en átti erfitt með að festa sig í sessi
hjá félaginu og á tveimur árum spilaði hann aðeins 29
deildarleiki og skoraði tíu mörk. Hann var seldur til Lyn í
Noregi fyrir 30 milljónir króna sumarið 2001.
Arnór Guðjohnsen (neðri röð, lengst til hægri) með leikmönnum Anderlecht fyrir
úrslitaleikinn gegn Sampdoria í Evrópukeppni bikarhafa 1990. MYNDIR NORDICPHOTOS/GETTY