Fréttablaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 38
13. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR22
Þökkum af alhug öllum sem sýndu
samúð og kærleik við andlát og útför
elskaðs eiginmanns, föður, tengdaföður
og afa,
Halldórs Magnússonar
fv. frkvstj. Sunnubraut 36, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar,
Líknardeildar Kópavogi og allra sem önnuðust hann
af alúð og umhyggju í veikindum hans og heiðruðu
minninguna við útför hans. Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Guðmundsdóttir
Vilborg Halldórsdóttir Helgi Björnsson
Steinunn Halldórsdóttir
Oddný Halldórsdóttir
Orri, Björn Halldór, Sunna, Hanna Alexandra, Þórunn
Soffía, Halldór Sörli, Júlía Sif og Fannar Alexander.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóna Jóhanna
Þórðardóttir
sem lést föstudaginn 9. september á Heilbrigðis-
stofnuninni á Patreksfirði, verður jarðsungin frá
Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 17. september
kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Slysavarnardeildina Unni Patreksfirði,
reikningur 0153-26-001609 kt. 450390-2679.
Hilmar Árnason Guðlaug Rósa Friðgeirsdóttir
Halldór Árnason María Óskarsdóttir
Þórður Steinar Árnason Áslaug Hauksdóttir
Hugrún Árnadóttir Stefán Egilsson
Gísli Jón Árnason Fríður Magnúsdóttir
Helena Rakel Árnadóttir Pálmi Stefánsson
Berglind Árnadóttir Stefán Hagalín Ragúelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Magnús Baldvinsson
múrarameistari, til heimilis að
Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð
í Garðabæ, áður Grænuhlíð 7,
lést í Holtsbúð sunnudaginn 4. september.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
13. september kl. 13.00.
Arndís Magnúsdóttir Hafsteinn Filippusson
Benjamín Grendal Magnússon Guðbjörg Kristjánsdóttir
Sæunn Grendal Magnúsdóttir Grétar Sveinsson
Baldvin Grendal Magnússon
Sigrún Grendal Magnúsdóttir Guðmundur J. Guðlaugsson
Sigurður Grendal Magnússon Sigríður Björk Bragadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórey Jónsdóttir
fótaaðgerðafræðingur,
frá Þorvaldsstöðum í Breiðdal,
lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi laugardaginn 10.
september. Jarðsungið verður frá Akraneskirkju
föstudaginn 16. september kl. 14.00. Jarðsett verður
að Þorvaldsstöðum í Breiðdal mánudaginn
19. september kl. 11.00.
Guðný Jóna Ólafsdóttir Guðjón Guðmundsson
Daðey Þóra Ólafsdóttir
Erla Ólafsdóttir Fjölnir Þorsteinsson
Eygló Peta Gilbertsdóttir Óskar Ingi Ágústsson
barnabörn og barnabarnabarn
Þökkum af alhug öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýju við andlát
og útför ástkærs eiginmanns, sonar,
bróður, tengdasonar, mágs og frænda,
Ragnars Heiðars
Kristinssonar
húsasmíðameistara,
Bæjarbrekku 10, Álftanesi.
Sérstakar þakkir færum við þeim sem hjálpuðu til við
erfidrykkjuna.
Ragnheiður Katrín Thorarensen
Ingibjörg Magnúsdóttir
Hulda Björk Ingibergsdóttir
Kristín Þorvaldsdóttir
Þorvaldur Jón Kristinsson
Ólafur Kristinsson Þorbjörg Inga Jónsdóttir
Oddur C.S. Thorarensen Unnur L. Thorarensen
Elín Thorarensen Úlfar Örn Friðriksson
Alma Thorarensen Sindri Sveinbjörnsson
og frændsystkin
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma
Sigríður Löve
bókasafnsfræðingur,
Suðurlandsbraut 58, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk 10. september.
Jarðsungið verður frá Áskirkju mánudaginn 19.
september kl. 15.00. Blóm eru afþökkuð en þeim sem
minnast vilja hinnar látnu er bent á líknarstofnanir.
Jón Steingrímsson
Steingrímur Jónsson Guðrún Olga Einarsdóttir
Þóra Jónsdóttir Júlíus Lennart Friðjónsson
Vigdís Löve Jónsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Björg Björnsdóttir
Skálateigi 1, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
16. september kl. 13.30.
Sigrún Hjaltadóttir Sævar Sigmarsson
Jón Hjaltason Lovísa Björk Kristjánsdóttir
Hrönn Hjaltadóttir
Þorsteinn Hjaltason Hrafnhildur Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kvikmynd Steinþórs Birgis-
sonar, Jón og séra Jón, verð-
ur frumsýnd í Bíói Paradís
á fimmtudagskvöld klukk-
an 20.
Myndin, sem fjallar um
séra Jón Ísleifsson, hlaut
áhorfendaverðlaun á heim-
ildarmyndahátíðinni Skjald-
borgu 2011.
Séra Jón hefur verið sókn-
arprestur í Árnesi Ströndum
í tólf ár. Hann lifir lífinu á
sinn eigin sérstæða máta og
af honum eru margar sögur
bæði sannar og ósannar. Í
kjölfar langvinnra deilna
innan safnaðarins er svo
komið að mikill meirihluti
sóknarbarna hefur skrifað
undir vantraust á séra Jón
og lýst því yfir að þau vilji
ekki að hann starfi lengur
sem sóknarprestur í Árnes-
prestakalli.
Jón og séra Jón
í Bíói Paradís
STEINÞÓR BIRGISSON Kvikmynd
hans Jón og séra Jón hlaut áhorf-
endaverðlaun Skjaldborgar.
Fróðleiksfúsum trjárækt-
endum á Vestur- og Austur-
landi býðst skógræktar-
nám á næstu misserum á
vegum verkefnisins Grænni
skóga hjá Endurmenntunar-
deild Landbúnaðar háskóla
Íslands. Kennt verður
í starfsaðstöðu skólans
að Reykjum í Ölfusi og á
Hvanneyri og fyrir austan
fer kennslan fram á Hér-
aði. Um sextán námskeið er
að ræða, þar af eru þrettán
skyldunámsgreinar. Fyrstu
námskeiðin verða kennd nú
á haustönn 2011 og þau síð-
ustu vorið 2014. Að meðal-
tali eru 2,5 námskeið á önn
og kennt á föstudögum og
laugardögum.
Fjallað er um mörg af
grunnatriðum skóg ræktar,
svo sem val á trjátegund-
um, undirbúning lands
fyrir skógrækt, uppeldi og
gróður setningu skógar-
plantna, skógarumhirðu og
skjólbelti.
Verkefnisstjóri er Björg-
vin Örn Eggertsson sem
hefur netfangið bjorgvin@
lbhi.is. Vissara er að sækja
um sem fyrst. - gun
Skógræktarskóli
SKÓGUR Fyrstu námskeiðin
verða í haust og þau síðustu
vorið 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Matardagar 2011 verða
haldnir í Hótel- og matvæla-
skólanum í Kópavogi 16. til
18. september. Þar sýnir
fagfólk í matvælagreinum
handverk sitt og haldnar
verða ýmsar keppnir. Klúbb-
ur matreiðslumeistara velur
Matreiðslumann ársins og
Vínþjónafélag Íslands velur
Vínþjón ársins. Bakaradeild
skólans velur Bakara árs-
ins í samstarfi við Lands-
samband bakarameistara,
Matvæla- og veitingafélag
Íslands og birgja.
Samtök ferðaþjónust-
unnar, Matvæla- og veit-
ingafélag Íslands og IÐAN
fræðslusetur velja síðan
Matreiðslunema ársins og
Framreiðslunema ársins.
Landssamband bakara-
meistara kynnir fagið og
gefur gestum að smakka
heilkornsbrauð.
Meistarafélag kjötiðnar-
manna sýnir réttu handtökin
við úrbeiningu og meðferð
á kjöti. Kaffibarþjónafélag
Íslands kynnir starfsemi
sína og býður gestum að
smakka á kaffi.
Öllum er velkomið að
koma og fylgjast með keppni
og kynningum en nánari
dagskrá Matardaganna er
að finna á www.freisting.is.
Fagstéttir keppa um titla
KEPPT Í BAKSTRI Meðal annars verður keppt um titilinn Bakari ársins.
Minningar- og styrktartónleikar verða í Bústaðakirkju
sunnudaginn 18. september klukkan 20. Meðal einsöngv-
ara eru Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, Anna Sig-
ríður Helgadóttir, Gréta
Hergils Valdimarsdóttir,
Edda Austmann Harðar-
dóttir, Hanna Björk Guð-
jónsdóttir, Björg Birgis-
dóttir og Svava Kristín
Ingólfsdóttir. Einnig
syngur kór Bústaðakirkju
og nokkrir hljóðfæraleik-
arar koma fram, þeirra á
meðal Jónas Þórir á píanó
og Jón Þorsteinn Reynis-
son á harmóniku.
Svava Kristín Ingólfs-
dóttir heldur tónleikana
til minningar um dóttur-
dóttur sína, Karenu Mist
Kristinsdóttur sem lést
23. desember 2010 og til
minningar um önnur börn
sem dáið hafa vöggu-
dauða, úr veikindum eða í
slysum. Tónleikarnir eru
jafnframt til styrktar Líf – Kvennadeild Landspítalans.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
Minningar - og
styrktartónleikar
SÖNGKONA OG KÓRSTJÓRI
Svava Kristín Ingólfsdóttir heldur
tónleikana í göfugum tilgangi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR