Faxi - 01.12.1982, Qupperneq 13
Afgreiðslustúlkur hjá KRON i Keflavik. Efri röð: Hetga Kristinsdóttir, Agnes
Jóhannsdóttir, Jóhanna KristinsdóWr, Ölöf EiriksdóWr og Sesselja KristinsdóWr.
Neðri röð: Anney Guðjónsdóttir, Erla SigurðardóWr, Ragnheiður ValdimarsdóWr
og Guðmunda FriðriksdóWr.
Starfsfólk KRON.
verið hefur í smíðumsíðastliðiðár,
en er nú fullgert. Mun þetta vera í
röð fullkomnustu og bestu verl-
unarhúsa landsins.
Húsið stendur á hornlóð Hafn-
argötu og Tjarnargötu og er 320
fermetrar að flatarmáli. Það er ein-
lyft með kjallara undir nokkrum
hluta og byggt í þrem álmum. Búð-
in sjálf er ca. 150 fermetrar og snýr
að Hafnargötu og Tjamargötu.
Agnes JóhannsdóWr afgreiðir ungar
stúlkuríbúð KRON við Hafnargötu 30,
Keflavik. Hverjar skyldu ungu stúlk-
urnar vera?
Torfi Guðbrandsson afgreiðslumaður.
Beint inn af inngangi búðarinnar
er glervöru- og búsáhaldadeild,
vefnaðarvörudeild og bóka- og rit-
fangadeild. Til vinstri handar eru
matvöru- kjöt- mjólkur- og brauð-
deildir. í sambandi viö mjólkur-og
brauðadeildina verður rekinn
mjólkurbar, og er það fullkomin
nýjung i starfsemi félagsins. í
beinu sambandi við búðina eru
vigtunarherbergi, geymslur fyrir
matvörur, fóðurvörur og bygging-
arvörur. Auk þess eru í verslunar-
húsinu skrifstofur og snyrtiher-
bergi fyrir afgreiðslufólk. í stóru
þorti, sem fylgir húsinu er kola-
geymsla og bílskúr.
Öllum vörum búðarinnar er fyr-
irkomið með einkar hagfeldum
hætti. Það vekur meðal annarsat-
hygli, að þær vörur, sem mest eru
keyþtar, eru sameinaðar á að-
gengilegustu stööum búðarinnar.
Búðarborðin eru öll færanleg og
byggð með tilliti til þess, að hægt
sé að skipa þeim á mismunandi
vegu eftir því, sem kröfur tímans
kunna að heimta.
Teikningar allar að húsinu önn-
uðust Halldór H. Jónsson arkitekt
og Sigurður Thoroddsen, verk-
fræðingur.
Guðrún AmadóWr, afgreiðslustúlka
Byggingarmeistari hússins var
Þórður Jasonarson.
Búðarborð voru smíðuð af Frið-
rik Þorsteinssyni, húsgagnasmið,
Reykjavík.
Deildarstjóri Keflavíkurdeildar
KRON er Ragnar Guðleifsson, en
í stjórn deildarinnareru þeir Guðni
Magnússon, formaður, Guðni
Guðleifsson, ritari og Valdimar
Guðjónsson.
Pöntunarfélag Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur var eitt
af félögunum, sem stofnuðu
KRON árið 1937. En eins og
kunnugt er, var KRON stofnað af
mörgum smærri félögum, sem
störfuðu í Reykjavík og nágrenni.
Saga þessarar félagsdeildar í
Keflavík, allt frá stofnun til þessa
dags, er með svipuðum hætti og
saga KRON: Stöðug viðskipta-
aukning, og sívaxandi félags-
mannatala frá ári til árs. Þó hefur
það greinilega sést á síðasta ári,
að viðskiptaaukningin og félags-
mannafjöldi þessarar deildar hef-
ur færst í aukana, langt fram yfir
það, sem verið hefurá undanföm-
um árum. Hefur félagsmönnum
fjölgað úr 143 í 231 á árinu og
salan aukist úr kr. 200 þús. í 382
þúsund.”
FRAMHALD
í NÆSTA BLAÐI
Soffia Beck, þvoði búðina og vann
það verk með prýði.
Ásthildur Herman afgreiðslustúlka.
Jóhann Sigurðsson afgreiðslumaður.
Kristján Helgason, sendill og siðar af-
greiðslumaður hjá KRON um árabil.
Birgir Þórhallsson, sendill og siðaraf-
greiðsiumaður um árabil.
Guðni Guðleifsson, afgreiðslumaður
hjá KRON og siðan hjá Kaupfélagi
Suðurnesja og vinnurþar enn.
FAXI -193