Faxi - 01.12.1982, Qupperneq 36
Tekið á móti fyrsta diselvagni S.B.K. 1954.
Hann kostaði gkr. 400.000.00.
Á myndinni frá vinstri: Kristinn Jónsson, fréttaritari, Ragnar Guðleifsson, bæjar-
stjórnarfulltrúi, Margeir Jónsson, i stjórn S.B.K., Ólalur, sonur Hallgríms Th.
Björnssonar, Hallghmur Th. Björnsson, fréttaritari, Ásgeir Einarsson, í stjórn
S.B.K., Guðmundur Jónsson, verkstjóri við húsbyggingu S.B.K., Valtýr Guðjóns-
son, bæjarstjóri, Ingvar Guðmundsson, fréttaritari, Skúli Hallsson, framkv.stj.,
Ólafur A. Þorsteinsson, i stjóm S.B.K., Jóhann Pétursson, bæjarstjórnarfulltrúi,
Guðmundur Guðmundsson, bæjarstjórnarfulltrúi, Alfreð Gíslason, bæjarstjórnar-
fulltrúi og Sigurður Bjarnason, vagnstjóri.
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur
40ÁRA 20. DESEMBER 1982
Starfslið Sérleyfisbifreiða Kefíavíkur á 20 ára afmaelinu.
Frá vinstri, aftari röð: Guðsteinn Gislason, viógerðamaður, Birkir Jónsson, bifreiðastjóri, Jón Pétur Guðmundsson, bifreiðastjóri, Svavar
Sigfinnsson, bifreiðastjóri, SiguróurBjarnason, bifreiðastjóri, RagnarSigurðsson, bifreiðastjóri, Kristmann Guómundsson, viðgerðamaður, Jón
Kristinsson, bifreiðastjóri, Skapti Kristjánsson, bifreiðastjóri, Kristinn Danivalsson, bifreiðastjóri, Sveinn Guðnason, bifreiðastjóri, Halldór
Jóhannsson, bifreiðastjóri. — Fremri röð, frá vinstri: Jón Hannesson, viðgerðarr.aður, Jón Stigsson, eftirlitsmaður, Steinunn Þorsteinsdóttir,
afgreiðsludama, Ragnar Friðriksson, framkvæmdastjóri, Guðfinna Guðmundsdóttir, afgreiósludama, Sigurður Gislason, verkstæðisformaður,
Kjartan Guðmundsson, viðgerðamaður, Jóhann Bergmann viðgerðamaóur.
Átta starfsmenn af þessum hópi eruenn istarfihjá S.B.K., þrireru látnir, tveir hættir vegna aldurs, tveirfluttirúrbænum, hinirhafa tariðiönnur
störf. (Ljósm.: HeimirStigsson.)
Hinn 20. des. 1982 eru 40 ár
síðan Keflavíkurbær hóf rekstur
sérleyfisbifreiða. Þykir af því tilefni
ástæða til að gera nokkra grein
fyrir rekstri fyrirtækisins síðustu
árin. Þess ber að geta, að áður
hafa birst greinar í Faxa um starf-
semi fyrirtækisins, í janúarblaði
1963 og janúarblaði 1973. Vegna
þess þykir ekki ástæða til að rekja
starfsemina fyrir árið 1973.
Eins og undanfarna áratugi hef-
ur það verið megin hlutverk sér-
leyfisbifreiðanna á fjórða ára-
tugnum að annast farþegaflutn-
inga á sérleyfisleiðinni Suðurnes-
Reykjavík. Allmikil fækkun far-
þega hefur orðið á þessu tímabili.
Þannig var farþegafjöldinn á leið-
inni Keflavík-Reykjavík árið 1973
183.256 en 1981 á sömu leið
119.783. Aukin bifreiðaeign al-
mennings er aðal ástæðan fyrir
þessari þróun. Þessi fækkun á
fyrri hluta áratugarins ásamt
tregðu stjórnvalda til að leyfa eðli-
lega hækkun fargjalda, varð til
þess að fyrirtækið var rekið með
miklum halla um árabil. Vö það
söfnuðust miklar skuldir og gerði
það. fyrirtækinu ókleift að endur-
FAXI-216
I