Búfræðingurinn - 01.01.1936, Síða 16
12
Þar sem bithagi liggur að landi annars, er ekki haígt að heimta sam-
girðingu,nema hinsvegar sé kauptún og jþaðan mikill ágangur búfjár.*
3. bar sem landamerki eru krókótt,má leggja girðingu beint.
Komi aðiljar sér ekki saman,skulu úttektarmenn ákveða legu girð-
ingarinnar og skaðabætur,ef annars land skerðjst meira en hins.
Efni í undirhleðslu landamerkjagirðingar skal taka jafnt báðu megi
4. Girðingar úr sléttum vír má ekki leggja nær vegbrún en
0,65 m,en gaddavírsgirðingar ekk'i nær vegbrún en 3»77 m eða 5,65
m frá miðju vegar. Gildir einnig fyrir heimreiðar.
5. Hlið skulu vera .á hverskonar vegum.Gildir það einnig,ef
hreppsnefnd krefst,um gðtuslóðir,svo og um sleðabrautir til al-
menningsnota. Hliðin skulu vera-með grind,minnst 2,5o m á breidd
og sé hægt að opna ]?ær og loka af hestbaki.Það varðar sektum að
skilja eftir opin hlið.
6. Stórgripagirðingar með 1 eða 2 gaddavírsstrengjum skulu
ávalt þannig gerðar,að vírinn sé hvergi minna en 65 cm frá jörð.
Sé vír illa strengdur og fénaður festist þessvegna í girðingunni,
skal viðkomandi gjalda sekt og greiða auk pess skaðabætur fyrir
það fé,er meiddist. v
7. Brot gegn lögunum varða sektum 5o - loo kr.í sýslusjóð.
Hér verður látið staðar numið.^með /þessa punkta um girðingar. I
Eg vil aðeins að síðustu benda á það,að það er ekki síður nauð-
synlegt að viðhalda girðingunum en að korna þeim upp. Víða eyði-
leggjast þessi mannvirki á skömnium tíma,vegna þiess að viðhaldið
vantar.
Guðmundur JÓnssón.
Innflutt p^irðingarefni.
í sambandi við greinina um girðingar hér að ofan er fróðlegt
að gera sér grein fyrir innflutningi á girðingarefni. Girðingar-
staurar eru ekki taldir í hagskýrslum og verður því ekki vitað um
bá. Vírinn er talinn í kg. Hefi ég áætlað meðalþyngd á vírnets-
rúllu 5o kg með loo m lengd,en á gaddavírsrúllu 25 kg með 3oo m
lengd,talið •/ • vírstreng yfir öllu vírnetinu,en deilt í afgang
inn með 4(að meðaltali 4-strengjaðar girðingar).
Ár Vírgirðingar km,. Innf 1. vír km girðingar Verð vírs kr.
1931 987 734 121720
1932 468 434 93878
Virðist nokkuð samræmi milli mældra girðinga og hins innflutta
einkum síðara árið.
Guðm. JÓnsson.