Búfræðingurinn - 01.01.1936, Síða 20
16
~V
'?Það er auðvelt að beita þremur hestum Tyrir sláirtuvél-. á V...
i^jög einfaldan og ódýran hátt,með því að hæta viö tveggja hesta
hemli(merktur a á rissmyndinni hér að neðan),sem er 12o cm langur.
Er miðju hans fest við stilliróna,sem festir fremra klóstagið við
vélarholinn. Til þess að festa hemlinum við stilliróna,hefi ég
notað litla járnskeifu til hess gerða. Gengur annar endi hennar
gegn um rifuna á stillirónni,sem ætluð er fleygnagla klóstagsins;
er endinn á skeifunni heygður ofur lítið til hægri(miðað við,er
maður snýr sér fram til hestanna). Á hinum enda skeifunnar er auga
fyrir naglann nr. 3911,sem þá festir skeifunni ásamt stillirónni
við vélarbolinn.
Á vinstri arm hemilsins( a ) er nú fest eins hests hemli
fyrir aukahestinn(merktur b),en hinn armur ]pess er tengdur hægra
megin við miðju á tveggja hesta hemlinum undir stönginni(við c ),
en sá hemill er jafnframt færður til í hemlagreipinni,þannig að
greipin er fest vinstra rnegin við miðju(við d,miðtja hemilsins er
við e ). Frá aflfræðilegu sjónarmiði er nú hægt að sýna fram á,
að þegar dráttarátak allra hesta er jafnt,verða hemlarnir allir
í jafnvægi. í reyndinni virðist líka,að dráttarúthúnaður þessi
ætli að gefast vel. Að vísu færist heildarátak vélarinnar um 3o
cm til vinstri,en af leiðir,að stöngin leitar nær þeim hest-
inum,sem gengur næst óslægjunni;þetta virðist bó ekki koma að sök.
Hvað vinnst svo við það að slá með 3 hestum í stað þess að
nota aðeins 2 hesta? Mín reynsla nær að vísu skammt,en samt sem
áður tel ég muninn svo mikinn,að enginn sláttuvélareigandi ætti
að láta það undir höfuð leggjast að reyna þetta næsta sumar.
1 fyrsta lagi er hægt að afkasta mun meira verki. Með þessu
móti er auðvelt að láta hestana ganga jafnt og stillt,en það er
höfuðskilyrði þess,að hægt sé að slá hiklaust,án nokkurra tafa
eða mistaka. fl"4 Nagli nr. 3911
u
y-
:j)
i
*-—►Sláttuvélarstöng
•J
19 t
3 E
,-TT
-i
hennan hemil þarf ef til vill að stytta.