Búfræðingurinn - 01.01.1936, Page 26
22
Um aðferðina kemst Þorsteinn á Husafelli þannig að orðis
"Sætin eða galtarnir þurfa helst að vera mátulega stór. Hæfilegt
þykir mér,að það sé svo sem 5 - 6 álnir á lengd og breiddin góð ,
þegar garðar eftir rakstrarvél eru settir sainan með ýtu;verður það
hátt upp í Jiað á við þrísetta galta,sem settir eru saman ár söxuðu
heyi.
Sleðinn er dreginn aftur á bak að sætinu.Þarf hann að bera
rétt að,svo að bæði stefni nákvæmlega eins sleðinn og sætið. Grind
su,er áður er nefnd,liggur ofan á sleðanum,þegar hann' er 'dreginn
tómur,er lögð niður á jörðina fast við sætið. Er sá endi hennar ,
sem að sleðanum snýr,jafn hár piljum sleðans. í þeim endanum,sem
lagður er niður á 3örðina,þurfa að vera járngaddar,sem rekast þvert
niður. Er jpað nauðsynlegt,svo að sleðinn renni ekki undan,þegar
dregið er á hann. Páll á Steindórsstöðum hefir gadda þessa 4 og
hvern þeirra um 4 þml. Eg hefi þá aðeins 2 og nokkru hærri.
Áður en grindin er lögð niður,þarf að leggja reipi á sleðann.
Þarf það að vera úr sterkum kaðli og-svo langt,að það nái utan um
sæti það,sem taka á. Er best að leggja endana fram,en hagldirnar
aftur,og setja þær undir enda grindarinnar,þann er að sætinu snýr,
áður en gaddarnir eru reknir niður. Á reipi þessu þarf að vera full
alin á milli haglda. Hefi ég í haglda stað járnkróka,sem krækja má
úr og í,í stað þess að draga í gegn(Ekki sýnt á teikningunum).
Þá þarf annað reipi (merkt c),svo langt,að það nái tvöfalt
yfir endilangan sleðann og sætið,sem draga á upp á hann. Er endum
þess fest .í grind eða ýtu,sem er jafn löng þykkt 'sætisins. Ýtan er
sett við enda sætisins,og liggja svo kaðlarnir við báðar hliðar '
þess. Best er,að kaðalendarnir séu klofnir í tvennt og öðrum spott-
anum fest efst,en hinum neðst í grindina. Helst hún þá sjálfkrafa
upp á rönd við enda sætisins,þegar átak kemur í hana,og þarf þá
ekkert að styðja hana,þegar sætið er dregið upp.;
Fyrir sleðanum hefi ég 2 hesta. Þegar komið er að sætinu með
sleðann,er hemlunum krækt frá honum,hestunum snúið við og þeir
teymdir beint fram fyrir sleðann,krók,sem þarf að vera fastur í
hemlunum,krækt í reipið c,sem lagt er aftur fyrir sætið og það
dregið upp á sleðánn. Síðan eru hestarnir kræk'tir frá því reipinu
aftur og á sinn stað framaná sleðann,uppdráttarreipið og ýtan tekið
burt,grindin aftan á sleðanum reist upp að sætinu og farið héim
með hlaSSÍð.
Dyrnar á hlöðumi þurfa að vera '.31/2 - 4 álnir á breidd og
31/2 alin á hæð,svo að sætið komist fyrirhafnarlaust inn. Stefna
sleðans þarf að vera'nákvæmlega rétt að dyrunum. Ef hún er skökk,
þarf að laga hana með því að. láta hestana taka 1 til hliðar, uns
stefnan er réttT