Búfræðingurinn - 01.01.1936, Síða 31
27
göngunum og þá hafa hinir sléttu vöðvaj>2?æðir þýðingu fyrir þá tæm~
ingu.
M.jaltir.
Mgaltir eru vandasamt vérk,sem húsbændur ættu ekki að trúa
öðrum fyrir en sjálfum sér eða vandvirkum hjúum sínum. Skaði við
slæmar mjaltir er margþættur;
1. Mjélkin verður minni í hvert mál,því að skilið er eftir.
2. Mjólkin verður magrari,því að síðasta mjólkin er feitust.
3. Kýrnar verða verri í framtíðinni.
Gerum ráð fyrir,eins og Sigurður Sigurðsson ráðunautur í
grein sinni um mjaltir á kúm,að skilið sé eftir 2/3 úr pela í mál
í hverri kú x $oo daga af árinu. hað verður loo 1 yfir árið. Hvern
lítra er ekki hægt að reikna minna en 3o aura,þegar tekið er tillit
til þess,að þetta er feitasta mjólkin,sem eftir verður. Nemur þá
hinn beini skaði 3o kr. á kú yfir árið,en það er álíka mikið og
metinn er allur áburður hennar yfir árið,en óbeini skaðinn er ef
til vill meiri£x
Eyr,jun m.jalta. Hafið loftgott og rólegt í f jósinu,þegar mjalt-
ir hefjast,látið vel að kúnum,svo að taugastarfsemi þeirra sé í
lagi og þær ,,selji,ibetur. Látið sarna manninn ávalt mjólka sömu kúna.
Svíar mæla með því,einkum við 1. kálfs kvígur,ef þær láta illa, að
binda reipi yfir um þær rétt fyrir framan júgrið og herða vel að..
Um leið og sest er undir''kúha', er þurrkað vel með hreinni striga -
tusku af júgri hennar og kvið. Við það hverfa burtu óhreinindi, er
ella detta niður í mjólkurfötuna að meira eða minna leyti. En jafn-
framt er talið,að slíkt nudd um kviðinn örfi blóðrásina til júgurs-
ins. Einnig er gott að þvo spenana úr sápuvatni. Þeir,sem eru mjög
hreinlátir,m,jólka niður fyrsta bogann eða bogana úr hverjum spena,
því að sú mjólkjSem fyrir er í spenanum,þegar mjaltir byrja,og því
kemur fyrst,er með fjölda af gerlúm. Skaðinn er ekki mikill,því að
þetta er magrasta mjólkin,um 1 % feiti. Hreinlæti í klæðaburði og
með handaþvott er venjulega of illa rækt.
Kreistim.jaltir munu nú víðast vera’ notaðar í stað hinna gömlu
togmjalta. Höndunum er til skiftis ýtt upp að júgrinu með opinni
greipinni og rennur þá mjólkin úr því niður í spenaná og fyllir þá.
Höndunum hvorri fyrir sig er þá lokað(greipinni efst) og fingrunum
þrýst utan að spenunum niður á við og mjólkin þannig kreist niður
úr honum. Mjólka skal hratt án afláts. Best er að mjólka með þurrum
höndum eða nota á hendur lyktarlausa feiti eða glyserin. óhreinar,
blautar hendur við mjaltir er hinn mesti óþrifnaður .
Hreitunarhandtökin. Hin ven.julegu m.jaltahandtök ná aldrei
allri m.iólk úr júgrinu. Ávalt verður eftir í hinum fínustu mjóllcur-