Búfræðingurinn - 01.01.1936, Page 38
34
hátt. Komi 6in fingrasamstæðan hœrra en hinar,heldur hún ljánum á
lofti bpggja megin við,svo að bil verður á milli ljás og fingra ,
með því japlar ljárinn grasið,og kemur þá að litlu liði,þótt'vel.
bíti. Ef keyptir eru nýir fingur og settir á gamlan bakka,er það
hrein tilviljunrað J>eir fari vel með því að skrúfa jþá á af handa
hófi,þeir vilja vísa ýmist upp eða niður. Verður þá að leggja á
"milli fingurs og bakka,aftan eða framan við naglann,sem heldur._heijiLí
eftir því hvort þeir eiga að hækka eða lækka. Oft getur verið nóg
að leggja einfalt bréf á milli. Hversu oft þarf að skerpa fingurna
fer eftir því,hve mikið vélin er notuð„ Víðast mUn duga að gera
það á 2 - 3 ára fresti,nema notkunin sé mikil.
Víða mætti slá mikið meira með vél en gert er. bað fer eftir
J)ví,hvernig sláttumaðurinn er starfinu vaxinn og gæðum vélarinnar.
Rakstrarvélar koma að bestu gagni við samantekningu á heyi.
Getur unglingur innan við fermingu gert næstum kraftaverk með ein-
um hesti og rakstrarvél,bjargað miklu og góðu heyi undan skemmdxim,
sem ella mundi rigna og eyðileggjast. Fyrst er flekkjiinum rakað í
garða með hæfilegu millibili,þannig að vélin haldi í .sér,án þess
að skilja eftir verulega. Görðunum er svo ýtt saman með heyýtu,en
dreifin rökuð með vélinni. Má heita svo,að Deering-vélarnar hrein-
raki stórgert hey. Best er að nota ]par til gerðar ýtur,en sumir
bjargast við planka eða borð. hannig má oft bjarga miklu heyi
undan regni og forða frá eyðileggingu. ,
Með snúningsveíum má vel þurrka hey,án þess að snúa með hrífu.
En best er ]?ó að nota hrífu og snúningsvél til skiftis,einkum ef
heyið hefir rignt flatt. Best er að aka vélinni í hring,eins óg
Óegar slegið er með vél (réttsælis). En þegaæ snúið er sláttuvélar-
múgum í fyrsta sinn er betra að fara öfugt(rangsælis),því að þá
snýst heyið betur við. Sé hvasst er ekki hægt að snúa undan vindi,
það snýst illa við og vill flækjast í vélinni. Er þá best að haga
verkinu þannig,að byrjað er á þeirri röð flekksins,er undan vindi
snýr og ekið báðar leiðir á hlið við vindinn,alveg eins og þegar
snúið er með hrífum og snúið undan vindi,sem kallað er. Snúningar
verða erfiðari með þessu móti,en hjá ]?ví verður ekki komist.
Þessi öld,sem við lifum á,hefir óft verið nefnd öld hraðans.
Nýjar og hraðvirkar vélar eru byggðar árlega. Allt miðar að því að
auka og bæta tækni nútímans. Éin stétt þjóðfélagsins má ekki drag-
ast aftur úr. En til þess að bændur geti staðið jafnfætis öðrum
stéttxun,verður að keppa að bví»sið heyvinnuvélar séu til á hver.ju
heimili,og beim sé haldið í géðu ástandi.