Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 44
38
BÚFRÆÐINGURINN
húðina, tveimur cm3 af oliu í einu og endurtaka það
tvisvar til þrisvar með viku millibili.
í lyfjabúðum fást E-vítamíntöfhir, sem gefa má í fóðr-
inu, en nokkuð eru þær dýrar.
C-vítamín er oft gefið í töflum, „askorbin-töflum“ eða
í þykkum legi, „Ido-C“, sem fæst í lyfjabúðum. Það er
mikil þörf á að nota þessi efni, ef lítið eða ekkert hefir
verið gefið af grænmeti. Skal þá byi'ja á þvi i janúar,
þannig að dýrin séu komin í C-jafnvægi fyrir fengitím-
ann, og lialda þeim þannig við fram yfir meðgöngutim-
ann. Mætli með þvi forðast skyrbjúg í yrðlingum, sem oft
hefir valdið allmiklu tjóni. Talið liefir verið liæfilegt að
nota eina töflu af C-vítamíni lianda 10—12 dýrum á dag.
Kalk þarf ckki að gefa sérslaklega, sé þess gætt að hafa
ávallt nægilegt af möluðum eða aðgengilegum beinum,
kjötbeinum og fiskbeinum, í fóðrinu. Ætti ávallt að vera
hægt að ná i nægilegt af möluðum fiskbeinum i fiskimjöli
eða kjötbeinum.
Hér er ekki rúm til að ræða frekar um fóðurmagn eða
fóðurtöflur, en að síðustu skal þess getið, að Norðmenn
telja meðalfóður fyrir fullorðinn ref, svo sem hér segir:
Kjötmeti 180 g, nýr fiskur 120 g, brauð 75 g, möluð
bein 15 g, grænmeti 20 g (spínat, salat, grælnkál o. s. frv.)
og nýmjólk 100 g.
Hæfileg samsetning á refafóðri virðist vera:
Sumarfóður.
Efni úr dýrarikinu ................. ca 67 %
Kornmatur .......................... ca 20 —
Grænmeti ........................... ca 12 —
Bætiefni ........................... ca 1 —
Vetrarfóður.
Efni úr dýraríkinu ................. ca 80 %
Kornmatur .......................... ca 10 —
Grænmeti ........................... ca 9 —
Bætiefni ........................... ca 1 —
Efnin úr dýraríkinu eru: kjötmeti, fiskur, mjólk, skvr,
undanrennuostur og egg. Enn fremur Itein.