Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 82
76_______B Ú F R Æ Ð I N G U R I N N
Hólastaður var síðan skoðaður undir leiðsögn Kristjáns
Karlssonar skólastjóra, og síðan kepptu nemendur beggja
skólanna í knattspyrnu, og urðu leikar jafnir, 0:0.
Við lcvöddum bróðurskólann kl. 2,30 e. li. með ljúfum
endurminningum og djúpri þökk fyrir liinar ágætu mót-
tökur. Síðan var ekið til Akureyrar með viðlcomu á Viði-
völlum. Þar er einliver fegursti skrúðgarður, sem mun
vera til á íslenzku sveitaheimili. Þar þáðum við og ríku-
lega útiiátnar góðgerðir. Næsta dag var ekið frá Akur-
eyri í Mývatnssveit með viðkomu í Vaglaskógi og að
Laugum í Reykjadal. Enn fremur þegið kaffi að Einars-
stöðum i Reykjadal, lieimili eins nemandans, sem var
með i förinni. Vaglaskógur er sönnun þess, að hægt er
að rækta fögur og liá birkitré á íslandi, aðeins ef skóg-
urinn er friðaður gegn ágangi bú]>enings og grisjaður,
eftir því sem þörf krefur.
Mývatnssveitin er fögur og' sérkennileg. En Slútnes í
Mývatni virtist mér fara betur á myndum en í raunveru-
ieikanum. Þó er þar fegurð, þegar út úr augunum sér
fyrir mýhiti. Á Laugum er hæði alþýðuskóli og kvenna-
skóli. Kvennaskólinn er „innréttaður“ með liúsgögnum,
smíðuðum á Laugum, einkar smekklegum og liagnýtum.
Sömuleiðis eru þar gluggatjöld öll, borðdúkar, vegg- og
gólfteppi, rúmábreiður o. m. fl., allt ofið á skólanum og
að mestu leyti úr íslenzku efni. Á Akureyri dvöldum við
um kyrrt næstum því lieilan dag. Við skoðuðum nokkuð
af verksmiðjum K. E. A. og S. í. S., sem þar eru og allar
vinna úr íslenzkum hráefnum. Lengst dvöldum við þó í
Gróðrarstöð Ræktunarfélags Norðurlands, þar sem Ólafur
Tónsson framkvæmdarstjóri sýndi okkur og skýrði jarð-
ræktar-, fóðurjurta- og kartöfluræktartilraunir, ásamt
nokkrum áhurðarlilraunum, sem þar eru framkvæmdar
í allstórum stíl, og má eflaust fullyrða, að eru þær full-
komnustu, sem gerðar hafa verið á íslandi. Nokkrar af
lilraunaniðurstöðum Ólafs eru þegar farnar að hafa
inikia liagnýla þýðingu fyrir íslenzka hændur. Akureyri
er fegursti bær á íslandi. Það, sem þó einkum prýðir bæ-