Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 33
Hilmar Agúst Hilmarsson er framkvæmdasflóri íslensk-sviss-
neska einkaþotuiyrirtækisins Aviace AG og einn sex eig-
enda þess. Aviace var stofnað um síðustu áramót af Hilmari
og fimm Svisslendingum og hefur fyrirtækið það að markmiði að
bjóða fyrirtækjum og sflórnendum þeirra upp á einkaþotur á
samkeppnishæfu verði borið saman við verð flugfélaganna. Þetta
gerir Aviace í gegnum flugklúbba sem starfræktir verða í öllum
helstu löndum Evrópu. Aviace hefur þegar pantað 112 einka-
þotur af gerðinni Eclipse 500 frá verksmiðju í Bandaríkjunum og
er verið að stofna klúbbana. Fyrirtækið er sem sagt komið á fúfl-
an skrið í undirbúningsvinnunni og er reyndar farið að skrá
félaga í þá níu klúbba sem þegar hafa verið stofnaðir; í Sviss,
Austurríki, Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Luxemborg, Frakk-
landi, Bretlandi og á Islandi. Fyrsta þotan hefur sig ekki til flugs
fyrr en árið 2004 en þoturnar verða afhentar á tímabilinu 2004-
2006. Hilmar segist eiga von á því að pantaðar verði allt að því jafn
margar þotur innan ekki alltof langs tíma, jafnvel strax á næsta
ári, því að svo vel hafi fyrirtækinu verið tekið í stærstu viðskipta-
löndunum, Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi og á Italíu.
„Við ætluðum ekki að taka svona stórt skref. Við fórum til
Bandaríkjanna og skoðuðum allt sem var í boði í Bandaríkjunum
og Evrópu. Þegar við fúndum Eclipse-fyrirtækið leist okkur svo
vel á það að við ákváðum að slá til,“ segir hann um þá ákvörðun
fyrirtækisins að panta 112 þotur strax í fyrsta skrefi. Viðtökurnar
hafa verið vægast sagt frábærar. Breski klúbburinn telur sig
þurfa 50 þotur til að sinna sínum markaði og klúbburinn í
Norður-Þýskalandi telur sig þurfa 40 þotur þannig að ekki er víst
að 112 þotur dugi til.
Snýst um hreyfilinn Blaðamaður Fijálsrar verslunar hringdi í
Hilmar þar sem hann var á flugsýningu í Sviss í lok maí og átti
við hann smá spjall. Hann sagði þá m.a. að svissneskir sam-
starfsmenn sínir væru vel þekktir í viðskiptaheiminum þar í
landi. Stjórnarformaðurinn, Peter Pfister, ætti til að mynda hlut
í mörgum fyrirtækjum, væri stjórnarformaður fyrirtækis sem
heitir Simultan Solutions og ætti sæti í
stjórn ýmissa annarra fyrirtækja.
Hilmar sagði að Píister hefði átt
upprunalegu hugmyndina um að
stofna fyrirtæki um einkaþotur og
fengið hana eftir hryðjuverkaárásina í Banda-
ríkjunum 11. september. Hann hafi fljótlega fengið Hilmar og þá
hina til liðs við sig og þeir hafi kannað markaðinn og möguleik-
ana á hagstæðum þotukaupum. Þeir leituðu víða og römbuðu
loks á Eclipse-verksmiðjuna sem þeim leist mjög vel á. Hilmar
segir að Eclipse sé afar athyglisvert fyrirtæki með stóra og
trausta hluthafa á bak við sig og góða og sterka stjórn.
Það hafi einkaleyfi á framleiðslu á nýja Williams þotu-
hreyflinum, sem eigi eftir að slá í gegn í flugheim-
inum. Þessi hreyfill sé ódýr í kaupum og rekstri,
hann sé bara 40 kg að þyngd og noti aðeins
tjórðung af því eldsneyti sem aðrir hreyflar
nota. Þessi nýi þotuhreyfill smellpassi að þörf-
um Aviace og geri fyrirtækinu kleift að bjóða
fylfllega samkeppnishæft verð, eða ijórðung
af því sem önnur einkaþotufyrirtæki bjóða.
„Skrokkurinn á flugvél er bara eins og hver
annar skrokkur, þetta snýst fyrst og fremst um
hreyfiflnn. EcUpse 500 þotan notar Utið eldsneyti, reyndar miklu
minna eldsneyti en sambærilegar þotur, og hún er mjög létt.
HilmarHilmarsson,framkvœmdastjóriAviaceAG t Sviss, hefurmikinn
áhuga á útivist og fjallgöngum. Hér er hann í svissneskum skógi.
Mynd: úr einkasajhi
Hún er mun ódýrari í verði en aðrar þotur og kostar aðeins tjórð-
ung af næstódýrustu þotunni. Hún er auk þess mun ódýrari í
rekstri en sambærilegar þotur. Allt gerir þetta okkur kleift að
bjóða einkaþotur á miklu lægra verði en hingað til hefur þekkst,“
sagði Hilmar í kappi við hátalarana á flugsýningunni.
Gróðavænlegt fyrirtæki Eclipse 500 þotan kostar um 900 þús-
und dollara stykkið og segir Hilmar að reikna megi með því að
kaupverð hverrar vélar verði í kringum eina milljón dollara
Eclipse 500 þotan notar miklu minna eldsneyti
en sambærilegar þotur og hún er mjög létt. Hún
er ódýr í verði og kostar aðeins fjórðung af
næstódýrustu þotunni. Hún er auk þess mun
ódýrari í rekstri en sambærilegar þotur.
33