Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 26
S.guöu, Einarsson, iorstién Kaupirings, sig inn á fundinn. sgm m H1 fv m fl'# V '■ 'Z' 1 í ; r f Ai»i í i sre.l 1 A ganga. Þess má geta að Starfsmannasjóður Spron ehf. hefur gert samninga við meirihluta stofnijáreigenda um kaup á stofn- fénu á genginu 5,5 og hafa langflestir túlkað það svo að stofnfé minnihlutans verði líka keypt á sama gengi. Auðvitað væri sið- ferðilega rangt að sniðganga minnihlutann. I hlutafélögum skráðum á Verðbréfaþingi Islands er þeim, sem gerir tilboð í meirihluta hlutaljárins, skylt að gera öllum hluthöfum sams konar tilboð á sama verði. En sparisjóðir eru ekki hlutafélög og stofnljáreigendur eru ekki hluthafar og því hefur sú spurning vaknað hvort Starfsmannasjóður Spron ehf. þurfi nokkuð að kaupa allt stofnféð, t.d. af fimmmenningunum og fleirum sem ljáðu þeim lið, þótt siðferðilega væri annað rangt miðað við það sem á undan er gengið. I yfirlýsingu frá hinum fimm eigendum stofntjár í Spron, sem höfðu forgöngu um að kaupa allt stofn- féð með fulltingi Búnaðarbankans, segir raunar að „gangi það eftir að Starfsmannasjóður Spron ehf. bjóði öllum stofnfjáreig- endum að kaupa stofnfé á genginu 5,5 sé tilgangi þeirra náð. Fyrir þeim hafi aldrei vakað annað en að tryggja öllum stofn- ijáreigendum í Spron, sem þessi óski, sanngjarnt endurgjald íyrir stofnfé sitt“. H3 i níunda lagi: MEÐ HVORU IiÐINU HELDUR ÞÚ? egar átökin um Spron stóðu sem hæst í sumar varð málið að eins konar „kappleik" í hugum fólks og fljótlega fór spurningin góða að heyrast: „Með hvoru liðinu heldur þú?“ Eins og í öðrum kappleikjum fór allt skyndilega að snúast um sigurvegara í þessu máli. Héldu menn með fimmmenning- unum eða stjórninni? Þetta var á vissan hátt athyglisverð spurning því auðvitað ætti það að vera svo að meira sameinaði þessar fylkingar en sundraði þeim. Ætti það ekki að vera hagur allra stofnljáreigenda í Spron, stjórnarinnar og starfsmanna, að verðmæti stofnfjárins og sparisjóðsins í heild séu sem mest? í hlutafélögum er stundum rætt um að stjórnir hlutafélaga séu skipaðar fulltrúum hinna og þessara hlutahafa, oftast er orðið „meirihlutaeigandi" notað. En er þetta ekki rökrétt hugsun? Eru ekki stjórnarmenn í hlutafélögum fulltrúar allra hluthafa og bera hag þeirra allra fyrir brjósti, stórra sem smárra?®] I tíunda lagi: SPARISJÓÐIR Á KROSSGÖTUM Helsta afleiðing Spron-málsins er sú að sparisjóðirnir í land- inu standa núna frammi fyrir þeirri spurningu hver framtíð þeirra verði. Verða þeir reknir áfram með óbreyttum hætti sem gerir þeim illmögulegt að fá inn utanaðkomandi eigið fé til að stækka og halda velli í samkeppninni gagnvart stækk- andi samsteypum á íjármálamarkaðnum? Eru hugmyndir sparisjóðanna um hlutafélagavæðingu þeirra endanlega úr sögunni vegna þess að eigið fé þeirra verður alltaf hálfgerður „bastarður“ á meðan ekki finnst eigandi að því? Er hugsanlega komið að því að starfsmenn allra sparisjóða í landinu kaupi stofnfé allra stofnfjáreigenda í landinu á næstu árum og reki sparisjóðina með óbreyttu sniði? Hafa þeir efni á því? Eða eru sparisjóðirnir kannski á enn stærri krossgötum eftir Spron- málið en nokkurn gat órað fyrir, þ.e. að þeim verði flestum slitið á næstu árum með þeim hætti að þeir verði seldir hæst- bjóðanda á markaði og þeim peningum, sem fást fyrir söluna, verði ráðstafað eins og segir í lögum um sparisjóðina. Eftir stendur þá starfsfólk sparisjóðanna í vinnu hjá öðrum fjármála- fyrirtækjum - því enginn kaupir sparisjóði á háu verði til þess eins að leggja starfsemi þeirra niður heldur miklu frekar til að halda úti rekstri þeirra með núverandi viðskiptavinum og starfsmönnum og halda þannig áfram að ná fram hagnaði af rekstrinum. 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.