Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
lsta tæknifyrirtæki landsins,
Skýrr, átti hálfrar aldar af-
mæli nýlega og var mikið
um að vera á þeim bænum. Að sjálf-
sögðu var haldið afmælisboð og sex
einstaklingar, sem eiga stóran hlut í
sögu fyrirtækisins, heiðraðir. Saga
fyrirtækisins, Upplýsingatækni í
hálfa öld eftir Óttar Kjartansson,
kom út þennan sama daga og svo var
tækifærið notað til að taka í notkun
1.200 fermetra viðbyggingu.Sl]
Skýrr 50 ára
ÓlafurRagnar Grímsson,forseti Islands, og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiþtaráðherra.
Myndir: Geir Olafsson
Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr, Ottar Kjartansson, höjundur Uþþlysmgatækm i halfa old, Jon
Zóþhomasson, starfsmaður RSK, Haukur Pálmason, fv. aðstoðarrafveitustjóri, en þeir eru í hóþi sex
manna sem eiga stóran hlut í sögu fyrirtœkisins, Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri, og Frosti Bergs-
son, stjórnarformaður Oþinna kerfa. Skýrr hf. er dótturfélag Oþinna kerfa.
Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr, flutti
afmælisræðu.
Eigendur endurskoðunarskrijstofunnar Grant Thornton. Frá vinstri:
Guðmundur Snorrason, Gerður Guðjónsdóttir, Theodór S. Sigurbergs-
son, Ólafur G. Sigurðsson og Sigurður Amundason.
Grant Thornton
afni endurskoðun-
arstofunnar Þema
hefur verið breytt í
Grant Thornton. Að sögn
Guðmundar Snorrasonar,
eins af eigendum Grant
Thornton, er tilgangurinn
með nafnabreytingunni
m.a. sá að leggja áherslu á
að félagið er fullgildur aðili
að Grant Thornton
International, en það er ein
af 7 stærstu samsteypum
endurskoðunarfyrirtækja í
heiminum með starfsemi í
yfir 100 þjóðlöndum. „Við
höfum verið aðilar að Grant
Thornton frá árinu 1997.
Með tilliti til jákvæðrar
reynslu af veru okkar í
þessum samtökum fmnst
okkur rétt að gera aðildina
enn sýnilegri með því að
taka upp nafn Grant
Thornton," segir Guð-
mundur. Nánari upplýsing-
ar er að finna á slóðinni
www.gt.is S!1
11