Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 40
Hluti af starfsmönnun Heims. En þess má geta að starfsmönnum Heims hf fiölgaði um tíu við kauþin á tímaritunum Iceland Review, Atlant-
ica, Iceland Business og Ský. Mynd: Bragi Þór Jósefsson
Kaup Helms á
lceland Review
Utgáfufélagið Heimur hf. hefur
keypt tímaritadeild Eddu - miðl-
unar og útgáfu, sem gefur út tíma-
ritin Atlantica, Iceland Review, Iceland
Business og Ský og heldur úti vefnum
icelandreview.com í tengslum við ritin.
Þetta eru vönduð tímarit með djúpar
rætur og mikla útbreiðslu. Iceland Revi-
ew hefur verið gefið út í nær 40 ár og er
rótgrónasta tímarit sem gefið er út um
Island og íslensk málefni á ensku en
áskrifendur þess búa í rúmlega 100
löndum. Flugtímaritið Atlantica, sem dreift er í vélum Flug-
leiða, er næstelsta flugtímarit i Evrópu, stofnað 1967, aðeins
tímarit hollenska flugfélagsins KLM er eldra. Atlantica er gefið
út í samvinnu við Flugleiðir og býðst öllum farþegum félagsins.
Ský er með sama hætti gefið út í samvinnu við Flugfélag
íslands en jafnframt er það selt á frjálsum markaði. Útgáfan er
stofnuð af Haraldi J. Hamar sem var alltaf mjög metnaðarfullur
útgefandi og vildi gefa út tímarit sem
ykju hróður Islands á erlendri grund,
auk þess sem þau stæðu jafnfætis vönd-
uðustu erlendum tímaritum að gæðum.
Útgáfu allra tímaritanna verður haldið
áfram hjá Heimi en auk þeirra gefur
Heimur út tímaritið Frjálsa verslun,
Tölvuheim og Vísbendingu, auk ýmissa
upplýsingarita fyrir ferðamenn.
Hittust utan alfaraleiðar Forsaga
kaupanna er sú að Páll Bragi Kristjóns-
son, starfandi stjórnarformaður Eddu - miðlunar og útgáfu,
átti fund með Benedikt Jóhannessyni, framkvæmdastjóra
Heims hf., á Hótel Borg í byijun júní. Páll Bragi sagði Eddu
hafa hugsað sér að aðskilja tímaritadeild frá öðrum rekstri
fyrirtækisins og spurði hvort Heimur hefði áhuga á kaup-
unum. Benedikt játti því strax þar sem tímaritin eru vönduð og
falla vel að starfsemi Heims, sem gengur m.a. út á að gefa út
Heimur hf keypti ferða- og land-
kynningartímarit Eddu i sumar
og hafa tvö fyrstu tölublöðin hjá
nýjum útgefanda þegar litið
dagsins Ijós. Búast má við að
velta fyrirtækisins aukist um 100
milljónir við þessa breytingu.
Ferðaútgáfa Heims
Ferðaútgáfa Heims er mjög fjölbreytt en auk þess gefur Heimur hf. einnig út tímaritin Frjálsa verslun, Tölvuheim og Vísbendingu.
40