Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 8
Vörumerki
r
Aþessu ári fagnar Uörumerking í Hafnarfirði 40 ára afmæli sínu en
fyrirtækið uar stofnað af Karli Jónassyni í apríl 1962. Fyrirtækið
hét til að byrja með Karl M. Karlsson & Co. en árið 1971 uar nafn-
inu breytt í hlutafélagið Uörumerking.
Fyrsti starfsmaður hans var Skapti Úlafsson stórsöngvari en sonur
Karls, Karl M. Karlsson, hóf störf við hlið föður síns fljótlega og hafa þeir
feðgar unnið saman síðan. Karl eldri er nú að mestu hættur afskiptum
af fyrirtækinu og þriðja kynslóð er að koma inn í fyrirtækið, sonur Karls
yngri en hann heitir líka Karl M. Karlsson.
Kort af öllum gerðum
„Vörumerking hefur alla tíð verið leiðandi fyrirtæki á sínu sviði," segir Karl
M. Karlsson framkvæmdastjóri. „Árið 1962 var byrjað á því að prenta
á límbönd og var fyrirtækið fyrst allra hér á landi til að gera það. Árið
1964 vorur fyrstu sjálflímandi merkimiðarnir framleiddir og kynntir og
nú á 40 ára afmælinu hefst nýr þáttur í starfsemi fyrirtækisins."
Uörumerking er til húsa að Bæjarhrauni 20, Hafnarfirði.
8
Til fyrirtækisins hefur verið keypt vél sem framleiðir kort af öllum
gerðum og gildir einu hvort um er að ræða skafleiki, hleðslukort,
aðgangskort eða vildarkort. Vörumerking er eina fyrirtækið hér á landi
sem getur framleitt slík kort. „Fram til þessa hafa þessi kort verið útbúin
erlendis en hægt hefur verið að bæta inn á þau upplýsingum hér á landi,"
segir hann. „Nú getum við í fyrsta sinn boðið upp á framleiðslu hér á
landi á kortum með segulrönd og kortum með ýmsum upplýsingum í
tölvutæku formi ásamt hleðslukortum af ýmsum toga. Það mun gjör-
breyta aðstöðu þeirra sem þurfa á slikum kortum að halda þar sem
afgreiðslutími getur styst mjög og auðveldara verður að halda utan um
verkið þar sem við erum hér á landi en ekki erlendis. Við höfum einnig
unnið kort til útflutnings og erum að skoða þann þátt alvarlega sem
vaxtarbrodd."
Sérhæfing
Ein ástæða þess hve vel hefur gengið hjá Vörumerkingu er að fyrirtækið
hefur alla tíð sérhæft sig talsvert og ekki reynt að dreifa sér um of. „Við
höfum einnig lagt áherslu á að gera það sem aðrir eru ekki að sinna og
höfum oft náð góðum árangri með því. Límmiðaprentunin hefur verið
okkar sérgrein í gegn um tíðina en við getum búið til límmiða með hvaða
lögun sem er og meðal viðskiptavina okkar eru mörg af stærstu fyrir-
tækjum landsins. Á þessu ári sjáum við fram á að bæta við fólki svo
unnið verði allan sólarhringinn á vöktum og vélakosturinn þannig full-
nýttur." Meðal annarra nýjunga hjá Vörumerkingu er þjófavörn sem hægt
er að setja undir verðmiða eða límmiða á allskyns vörur. Það mun bæta
mjög eftirlit og aðstöðu þeirra sem reka verslanir þar sem þjófnaður er
mikið vandamál.
Vörumerking hefur nú tekið í notkun nýja framleiðslulínu frá MELZER
í Þýskalandi. Melzer er fullkomin vélasamstæða til framleiðslu á alls
konar kortum, skafmiðum o.fl. og er uppsett með: Búnaði með tölvu-
stýrðum bleksprautum, fyrir tákn og tölusetningu, búnaði til ásetningar
á holograph merkingum t.d. á límmiða, plastkort og kartonkort, búnaði
33