Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 71
Þekkir alla
Það er talið Marianne Rasmussen til tekna að hún þe
kvœmdastjóri sýningarinnar og býryfir dugnaði og krafti.
alla. Hún er fram-
Iarianne Rasmussen, hin danska, er litríkur
persónuleiki að sögn þeirra sem þekkja
hana. Hún er gift breskum manni og hefúr
búið í Bretlandi í 12 ár. Þau eiga saman tveggja ára
dreng. „Marianne er alveg hörkudugleg kona og
„bisness“manneskja fram í fingurgóma, með
stálminni og á einstaklega gott með að hafa sam-
skipti við fólk,“ er umsögnin um hana. „Hún þekkir
líka alla og heimsækir fyrirta::kin reglulega til að við-
halda tengslunum við þau, en það er ómetanlegt“
Marianne hafði verið að vinna hjá öðru fyrirtæki
þegar Patricia, sem hafði reyndar ætlað sér að hætta
að vinna við sýninguna árið 1993, en átti eftir að
finna eftirmann sinn, hitti hana á sýningu. Það var
eins og við manninn mælt, þarna sá Patricia einmitt
konuna sem hentaði sem efdrmaður sinn og úr varð
að þær unnu saman að næstu sýningu, 1996, og
samstarfið gekk afskaplega vel. Næstu sýningu á
efdr var Marianne sölustjóri erlendis og nú er hún
framkvæmdastjóri sýningarinnar.Œi
Þróun í nýtingu auðlinda sjáuar
Almennur frœðafundur á vegum sjávarútvegsráðuneytisins
Sjávarútvegsráðuneytið stendur fyrir fræðafundi í tengsl-
um við sjávarútvegssýninguna í Kópavogi 4. til 7. sept. nk.
Fræðafundurinn, sem verður þann 6. september, fer fram
í fyrstu stofu á jarðhæð vesturenda Smáraskóla. Gengið er inn
um inngang frá útisýningarsvæðinu á milli Smáraskóla og
íþróttahúss.
Á fundinum verður rætt um stjórnun fiskveiða, helstu að-
ferðir, kosti og galla og mun Friðrik Már Baldursson, rann-
sóknaprófessor við Háskóla íslands, verða með erindi. Einnig
verður rætt um eftirlit með veiðum og vinnslu, skipulag og
framkvæmd í ljósi tækniframfara, líffræðilega þætti í stofn-
stærðarmati og fleira varðandi stofnstærðarmat. Flutningsmen
eru m.a. Björn Ævarr Steinarsson fiskifræðingur, Gunnar Stef-
ánsson dósent og Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur.
Einnig mun Friðrik Friðriksson, formaður verkefnahóps um
AVS-verkefnið, kynna það, Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rann-
sóknarstofnunar fiskiðnaðarins, ræða um hlutverk rannsókna-
stofnana í AVS og hliðstæð verkefni og Guðbrandur Sigurðs-
son, forstjóri Útgerðarfélags Akureyrar, mun ræða um auka-
afurðir fiskiðnaðar og fiskeldi frá sjónarmiði framleiðenda. [ffl