Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 82
Elísabet Jónsdóttir, fjármálastjóri GÁ húsgagna, er í hlutastarfi í fiölskyldufyrirtækinu á móti öðru. Hún
hefur mjög breitt starjssvið og sér um allt sem tengist fiármálum, markaðsmálum og starfsmannahaldi.
Mynd: Geir Olafsson
FÓLK VIÐTflL
móti mér. Mér líkar þetta fyrir-
komulag mjög vel,“ segir hún.
- En hver ertu iýrir utan vinn-
una?
„Eg fer mikið út að labba með
hundinn eftir erilsaman dag.
Mér finnst gott að komast út
og hreinsa hugann. Svo fer ég
mikið upp í sveit um helgar en
við erum með sumarbústað í
Landsveitinni. Þar nýt ég mín
með skítuga putta í gróður-
setningu. Mér finnst mjög af-
slappandi að gera eitthvað allt
annað um helgar en ég geri
alla daga. Eg er Reykvíkingur
í húð og hár en er samt orðin
mikið sveitabarn eftir að ég
fór að vera í sveitinni. Við
erum með heilsársbústað og
Elísabet Jónsdóttir,
GA húsgögnum
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
W
Eg sé um allt sem tilheyrir
skrifstofuhaldinu, allt frá
þvi að laga kaffi og þrífa
til þess að sjá um markaðsmál,
fjármál, bókhald, starfs-
mannahald, launamál og er-
lend samskipti. Maðurinn
minn heitir Grétar Arnason
og hann er húsgagnabólstrari.
Hann sér um faglegu vinnuna
og tengiliður fyrirtækisins út á
við, þar á meðal við arkitekt-
ana. En auðvitað vinnum við
líka mikið saman. Eg fer með
honum á sýningar erlendis og
við skoðum húsgögn, áklæði
og ýmsa hrávöru og svo vinn-
um við saman úr því, kaupum
nýjar vörur og fáum nýjar
hugmyndir upp úr því, sem
við höfum verið að kynna
okkur, þegar við komum
heim. Fyrirtækið er bæði í því
að framleiða íslensk húsgögn,
sem er nokkuð stór hluti af
starfseminni, gera upp gömul
húsgögn, flytja inn ýmsa hrá-
vöru og húsgögn. Við flytjum
líka mjög mikið inn af áklæði
og leðri,“ segir Elísabet Jóns-
dóttir, ljármálastjóri og annar
eigenda GA húsgagna.
GA húsgögn er 27 ára
gamalt fyrirtæki sem þau
hjónin stofnuðu í bílskúrnum
heima hjá sér þegar þau voru
ung og nýfarin að búa. Þau
höfðu eignast barn þegar sam-
dráttur varð í þjóðfélaginu.
Lengi hafði blundað í Grétari
að vera sjálfstæður og stofna
sitt eigið fyrirtæki sem þau og
gerðu í bílskúrnum heima hjá
sér. Fyrirtækið var stofnað og
síðan hefur það vaxið jafnt og
þétt. GÁ húsgögn er nú níu
manna fyrirtæki og segir
Elísabet stolt frá þvi að í tjölda
ára hafi engir lærlingar út-
skrifast í bólstrun en í vor hafi
þrír lærlingar útskrifast, þar af
einn hjá þeim. Elísabet hefur
ávallt séð um ijármálin og
skrifstofuhald, yfirleitt í hluta-
starfi samhliða starfi annars
staðar. Síðustu árin hefur hún
verið hjá Hagvangi og
Pricewaterhousecoopers en
hún ákvað að hætta þar fyrir
tveimur árum og snúa sér al-
farið að íjölskyldufyrirtækinu
við flutning þess í stærra hús-
næði.
„Ég hef alltaf verið í
annarri vinnu með, bæði til að
fá félagsskap af öðru fólki og
til að staðna ekki. Ég held að
það sé nauðsynlegt að hafa
fjölbreytni og hafa samband
við fólk út fyrir fyrirtækið. En
þegar við fluttum fyrirtækið
ákvað ég að helga mig því því
að húsnæði fyrirtækisins varð
stærra, starfsmennirnir fleiri
og við höfðum mjög mikið að
gera en svo bauðst mér í
sumar vinna sem bókari og
gjaldkeri hjá Samtökum fisk-
vinnslustöðva og ég ákvað að
taka henni. í framhaldi af því
hef ég verið að þjálfa mann-
eskju í hálfsdags vinnu hér á
erum þarna um nánast hveija
helgi, þó ekki um jólin. Þarna
nota ég tækifærið og tek púls-
inn á vikunni með þvi að skrifa
dagbók. Mér finnst gott að
skrifa niður það sem hefur
verið að gerast hjá mér yfir
vikuna, hver útkoman er og
hver árangurinn er. Svo er
athyglisvert að kíkja á þetta
seinna og skoða hvernig
málin hafa þróast. Maður er
kannski stressaður og
áhyggjufullur þegar maður
sest niður og fer að setja þetta
á blað en líður miklu betur
eftir að hafa létt á sér og látið
dagbókina taka við þessu.“
Elísabet á tvö uppkomin
börn sem bæði eru flutt að
heiman. Árni hefur unnið hjá
GÁ húsgögnum frá því hann
lauk stúdentsprófi í fyrravor
og ætlar að fara í nám í iðn-
hönnun í haust. Katrín hefur
einnig unnið í fyrirtækinu í
sumar og ætlar í ensku í
Háskóla íslands í haust.Œl
82