Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 66

Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 66
•SMSKIP Erlendur Hjaltason, framkvœmdastjóri utanlandssviðs Eimskips: „Starjsmenn okkar eru með mjög mikla reynslu íflutningum á sjávar- afurðum, menn sem hafa starfað við sjávarútveg, bæði í framleiðslu og sölu, og þekkja því þarfir okkar viðskiþtamanna afeigin raun. “ Mynd: Geir Olafsson PAYLOAD j 29 800 65 7 1 0 MAX.GROSS 34 000 kg 74 970 Ib 4 200 kg 9 260 lb fARE CAUTION HIGH CONTAINER Nauðsynlegt að tryggja sjóflutninga „Á íslandi bjóðum við víðtæka þjónustu sem tengist flutningum á sjávarfangi," segir Erlendur. „Það er nauðsynlegt að tryggja sjóflutninga á lykil- staði úti á landi og við erum með losunarþjónustu fyrir fiski- skip í Hafnarfirði, Isafirði, Akureyri, Eskifirði og í Vestmanna- eyjum en þessir staðir tengjast með vikulegum siglingum áætlunarskips okkar á strönd, Mánafossi sem og umfangs- mikilli akstursþjónustu. I Reykjavík og Hafnarfirði rekum við frystigeymsluþjónustu. Geymslan í Reykjavík er mjög tækni- vædd með færanleg hillukerfi og fullkomnum tölvubúnaði sem auðveldar að raða saman í gáma úr mörgum einingum sem koma víðs vegar að af landinu. Geymslan í Hafnarfirði gegnir einnig svipuðu hlutverki, en auk þess er þar geymd frystivara í lengri tíma.“ A Nýfundnalandi rekur Eimskip sams konar frystigeymslu- þjónstu í fyrirtæki sem Eimskip á hluta í. í Færeyjum og í Noregi rekur Eimskip geymslur í samvinnu við samstarfsaðila sína og um þessar mundir er Eimskip að þyggja nýtt þjónustuhús í Þórs- höfn í Færeyjum, en þar hefur togaralosun á vegum fyrirtækis- ins aukist töluvert. Þjónusta við sjávarútveg erlendis „Eriendis höfum við kaiiað þjónustu okkar við sjávarútveginn TCC eða Temperature Controlled Cargo. Við bjóðum þessa þjónustu bæði með eigin flutningakerfum og í samstarfi með öðrum. Við höfum unnið að undirbúningi og markaðssetningu þessarar starfsemi nú um nokkurra ára skeið og hefur sú vinna verið mjög gagnleg og mikilvæg, bæði fyrir Eimskip og viðskiptavini okkar hér á landi sem og erlendis. Með eflingu þessarar starfsemi getum við nýtt Flutningar um allan heim Erlendur Hjaltason er framkvæmdastjóri utanlandssviðs Eimskips. Erlendur hóf störf hjá Eimskip fyrir 20 árum síðan og hefur síðustu 12 ár unnið að starfsemi Eimskips erlendis. Eimskip var stofnað 1914 en hefur á mismunandi hátt verið með starfsemi erlendis frá árinu 1985. Sem leiðandi aðili í flutningaþjónustu fyrir sjávarútveg á Islandi hefur Eimskip sér- hæft sig í flutningum, geymslu og birgðahaldi á fiski og öðrum frysti- og kælivörum. Sérhæfing Eimskips í hjónustu við sjávarútveg „Eitt af megin markmiðum Eimskips hefur verið að veita fiskiðnaði við Norður- Atlantshaf bestu fáanlega flutningaþjónustu," segir Erlendur. „Á undanförnum árum hefúr þessi þjónusta þróast langt út fyrir Island. Öll okkar flutningakerfi miðast við þjónustuþarfir sjávar- útvegsins, út frá landfræðilegri staðsetningu sjávarútvegsfyrir- tækja, losunarstað og þörfum á flutningatækni. Út frá þessum forsendum höfum við byggt upp þjónustukerfi, sem nær hring- inn í kringum Island, og er öflugt á Nýfundnalandi, í Færeyjum og Vestur- og Norður-Noregi. Sérstök deild, sjávarútvegsþjónusta, sér um þjónustu við sjávarútveg á Islandi. Starfsmenn okkar þar eru með mjög mikla reynslu í flutningum á sjávarafurðum, menn sem hafa starfað við sjávarútveg, bæði í framleiðslu og sölu, og þekkja því þarfir okkar viðskiptamanna af eigin raun. Þetta er mikilvægt atriði í þeirri viðleitni okkar að bjóða áreiðanlega þjónustu, enda byggir þjónusta eins og okkar á góðum samskiptum fólks.“ betur núverandi flutningakerfi, víkkað út þjónustuframboðið og aukið hagkvæmni í rekstri,“ segir Erlendur. „Við höfum stundum sagt okkur til gamans: „Follow the cod and the people who are trading it“ T.d. settum við upp flutninga- þjónustu milli Norður-Noregs og Bandaríkjanna af þeirri ein- földu ástæðu, að vegna minni þorskveiða vestanhafs kom upp flutningaþörf á hvítfiski frá Noregi til austurstrandar Bandaríkj- anna og Kanada. Upphaflega voru þetta flutningar fyrir kanadísk fyrirtæki, en í dag eru íslensk og norsk fyrirtæki mjög fyrir- ferðamikil á þessari flutningaleið. Við höfum því unnið með við- skiptavinum okkar á íslandi í sinni útrás án þess að það hafi endi- lega verið skipulagt þannig í upphafi. Þetta sýnir enn og aftur mikilvægi þess að hafa öflugt og sveigjanlegt flutningafyrirtæki sem skilur þarfir markaðarins og vinnur með viðskiptavininum í leit að nýjum tækifærum. Þannig viljum við starfa." Gerum betur í dag en í gær „Við höfum verið að þróa okkar þjónustu erlendis sem grundvallast m.a. á þeirri reynslu sem við höfum af starfsemi okkar á Islandi. Þetta er sama þróun og við sjáum hjá iðnaðar- og tæknifyrirtækjum sem þjóna sjávarútveg- inum,“ heldur Erlendur áfram. „Við munum halda áfram að bæta við okkar þjónustu og efla samskiptin við okkar viðskipta- vini. T.d. mun möguleiki á beintengingu viðskiptavina okkar verða aukinn, í gegnum heimahöfnina okkar á vefnum. I flutn- ingaþjónustu eins og í annars konar þjónustu þurfa menn stöðugt að vera á tánum og gera betur í dag en í gær.“ 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.