Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 45
unum árið 1984 og hitti þar íslensku keppend-
urna og þjálfarana. Hann var staðráðinn í að
flytja heim eftir leikana, fara jafnvel aftur að
vinna hjá bróður sínum og byrja að þjálfa sund-
menn en leist svo vel á veðrið og strendurnar í
Kaliforníu að hann ákvað fljótlega að spyrjast
fyrir um skólavist og skólastyrk hjá háskólum í
Bandarikjunum. Hann fékk inni í háskóla í
Bakersfield norðan við Los Angeles, sem var að
byrja að byggja upp sunddeild, og hóf nám í við-
skiptafræði jafnframt því sem hann æfði og
keppti í sundi fyrir skólann.
Tryggvi útskrifaðist 1989 og hafði þá starfað
sem aðstoðarþjálfari í sundi meðfram náminu.
Hann hafði áhuga á að setjast að í Bandaríkj-
unum og fékk aðstoð lögfræðings við að ná sér
í græna kortið. Það fékk hann íjórum árum
seinna og það út á þjálfarastarfið. Tryggvi starf-
aði sem aðstoðarþjálfari og aðalþjálfari fyrstu
árin eftir námið en ætlaði aldrei að byggja fer-
ifinn eingöngu á sundinu heldur hafði áhuga á
að nýta menntun sína og hella sér út í athafna-
fifið. „Takmarkið var ekkert endilega að þjálfa
heldur hafði ég frekar áhuga á að fara út í
rekstur og nýta mér byggingakunnáttuna sem
ég hafði. Ég hafði tekið að mér aukaverkefni í
stjóri
Bandaríkjanna
Tryggvi útskrifaðist sem viðskiptafræðingur í Bakersfield í Bandaríkj-
unum 1989 og starfaði sem þjálfari í sundi þar til hann fékk græna kortið.
„Takmarkið var ekkert endilega að þjálfa heldur hafði ég frekar áhuga á
að fara út í rekstur og nýta mér byggingakunnáttuna," segir hann.
Hjónin Wenda Windle-Helgason, nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur, og
Tryggvi Helgason, framkvæmdastjóri hjá Centex Homes. „Ég er vanur
smíðinni og útvegað mér fullgild réttindi til að
starfa hér sem byggingaverktaki. Þegar ég var
loksins kominn með landvistariejÆ í Bandaríkj-
unum fór ég að fita í kringum mig til að finna
fyrirtæki sem ég hefði áhuga á að starfa hjá.
Fyrirtækið Centex Homes var þá að byija að
fara inn á Bakersfield-markaðinn. Þeir voru ekki
að auglýsa eftir stafsmanni en ég hringdi í þá og
þeir buðu mér í viðtal. í framhaldi af því fékk ég
vinnu hjá þeim,“ segir hann.
þessu góða veðri hérna og er ánægður með fyrirtækið og fyrirtækið virð-
ist ánægt með mig," segir Tryggvi.
Hvert hús kostar um 40-80 milljónir króna. Flest húsin
eru 200-300 fermetrar að stærð en stundum eru þau
um eða yfir 400 fermetrar. Húsin kaupir yfirleitt vel
menntað fólk og fólk í efri stéttum þjóðfélagsins, t.d.
læknar, lögfræðingar, stjórnendur og fólk í sjálfstæðum
Hagnaðarmet Slegið? Centex Corporation er
gríðarlega stórt fyrirtæki með margháttaða starf-
semi undir sínum hatti, ekki bara í fasteigna-
byggingu og -sölu heldur fika í öðrum greinum,
bæði tengdum og ótengdum byggingafram-
kvæmdum, td. við framleiðslu einingahúsa, tjár-
mögnun við fasteignakaup, rekstur trygginga-
félags og meindýraeyðingu, svo að dæmi séu
nefnd. Samstæðan á fika eitt byggingafyrirtæki í
Bretlandi, sem var keypt fyrir tveimur árum.
Centex Homes er þriðja stærsta byggingafyrir-
atvinnurekstri.
„Við keyptum lóðir undir 350 hús í fjórum hverfum og
erum byrjaðir að byggja tvö hverfi og erum að byrja á
því þriðja í september. Lóðir hér eru mjög dýrar, kosta
um 150 þúsund Bandaríkjadali, eða um 13 milljónir
króna fyrir hvert hús,“ segir Tryggvi.