Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 77
HM-hóþur Olts. Talið frá vinstri. Haraldur Jónsson, markaðssviði þjónustustöðva, Sigurður K. Pálsson, markaðssviði stórnotenda, Gunnar
Sigurðsson, framkvœmdastjóri Olís á Vesturlandi, ogjóhannes Davíðsson, markaðssviði þjónustustöðva.
Mynd: Geir Olafsson
Manchester United búningi. Hann sagðist reyndar ekki vera
sérstakur aðdáandi þess félags - gaf þá skýringu að þetta hefði
einfaldlega verið eini búningurinn í búðinni sem var nógu stór!“
Fyrirliðinn í hveiju liði þarf einn fyrirliða, mann sem hvetur
liðið áfram, huggar það á erfiðum stundum, hlær með því á
þeim góðu og þar fram eftir götunum. I Olís-liðinu var það Oli-
ver Þórisson sem vinnur á stöðinni við Gullinbrú. „Eg hafði af-
skaplega gaman af þessari vinnu allri þó svo ég sé ekki mikið
fyrir leikaraskap," segir Oliver sem þrátt fyrir röska framgöngu
í hlutverki fyrirliðans í liðinu segist ekki spila fótbolta eða taka
þátt í íþróttum yfirleitt. „Þegar þetta var kynnt innanhúss og
beðið um sjálfboðaliða ákvað ég að gefa kost á mér og endaði í
þessari fyrirliðastöðu," heldur hann áfram. „Þetta var hellings
upplifun og maður fékk mikla athygli og hrós fyrir. Ókunnugt
fólk stoppaði mig kannski á Laugaveginum og spurði hvort ég
væri ekki þessi fyrirliði í Olísliðinu. Mér fannst það nú nokkuð
gott því maður er jú alltaf að horfa á auglýsingar og man
kannski ekkert hver lék í þeim.“
Oliver segist ekki á leið til Hollywood samt sem áður. „Nei,
ætli það. Eg kann vel við mig hjá Olís og sé ekki að það muni
vera neitt betra að eyða tímanum í margendurteknar tökur og
bið þó svo myndirnar sem út koma séu skemmtilegar. Mér
fellur vel við starfið sem ég er í og ætla bara að halda mig við
það. Eg held reyndar að þessar auglýsingar hafi skilað sínu og
að segja megi að þær hafi hitt í mark,“ segir hann svo. „Hug-
myndin var góð, tökurnar tókust vel og við skemmtum okkur
vel við að vinna þetta.“
Útkoman frábær „Ég held að það hafi skipt talsverðu máli að
\dð vorum að nota fólk sem er stolt af því að vinna fyrir félagið og
hefur gaman af því að taka þátt í ævintýrum sem þessum,“ segir
Haraldur. „Það sést á því hvað þvi finnst þetta gaman og fyrir við-
skiptavini er gaman að sjá í sjónvarpinu andlitin sem þeir sjá
dags daglega á bensínstöðinni. Þó svo þetta hafi verið að grunni
til ímyndarauglýsing og styrkur við HM þá er það alveg klárt að
þetta hefur aukið viðskiptin hjá okkur og ég held að ég megi full-
yrða að allir sem að þessu komu eru ánægðir með árangurinn
enda heppnaðist þessi auglýsingagerð sérlega vel.“ 33
UIIV^I 1 --- . , y i
smáatriðin sem skipta mali.
Oliver að peppa mann-
skapinn upp. Átöflunni
má sjá ýmislegt sem getur
hent viðskiptavini áður en
þeir koma á Olís og því sé
mikilvægt að þeim líði vel
þegar þeir koma. „Þetta
er jú bara eins og frum-
skógur þarna úti."
Kristján Kristjánsson
tekur tímann á því
hversu snöggir til
viðbragða starfs-
menn eru og hve
langur tími líðurfrá
því rennt er í hlað og
viðskiptavinur fær
þjónustu.