Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2004, Side 9

Frjáls verslun - 01.02.2004, Side 9
Myndir: Geir Ólafsson Guðmundur Pálsson ásamt hluta af vösku starfsliði söluskrifstofu lceland Express. ¥ % ■ á^l i' WS'M ft.if*’1' ® ri. || m&Im ^ _' 'i n L í'<\ |Fj rpl hí Stansted flugvöllur er stærsti flugvöllur lággjaldaflugfélaga og tengíngar um alla Evrópu er þaðan. Áfangastaðir frá London Stansted eru yfir 115 og flogið er á marga þeirra mörgum sinnum á dag. „Með morgunfluginu stóraukast mögu- leikar á tengiflugi þar sem mörg þeirra fara snemma dags. Fyrir þá sem ætla inn í borgina eru þægilegar lestarferðir beint í miðborgina. Lestirnar fara á um það bil 20 mínútna fresti yfir daginn þannig að ekki þarf að bíða lengi eftir fari. Svo er Stansted talsvert minni flugvöllur en t.d. Heathrow og því mun minna labb á milli staða og minni hætta á að fólk villist. Lestirnar fara á Liverpoolstöðina sem er í útjaðri City, miðstöðvar fjármálalífsins í London. Beinn aðgangur að bókunarkerfi lceland Express býður fyrirtækjum og stofnunum beinan aðgang að bókunarkerfi félagsins á Netinu. Kerfið er einfalt og þægilegt í notkun. „Viðskiptavinir okkar fá aðgangs- og lykilorð að kerfinu og geta þá annast bókanir og haldið utan um ferðaskráningar. Því fylgja engar skuldbind- ingar um viðskipti samt sem áður, heldur er þetta til þæginda fyrir viðskiptavini okkar," segir Guðmundur. „Okkur er akkur í að gera líf þeirra Skrifstofa lceland Express er að Suðurlandsbraut 24. sem þægilegast og með því að vinna þetta svona er auðvelt fyrir þá að fylgjast með.“ Hótel og bílaleigur lceland Express hefur gert samninga við fjölda hótela um alla Evrópu ásamt bílaleigunni Avis. „Þjónustufulltrúar okkar bóka gistingu, veita upplýsingar um hótel og koma með tillögur um gistingu og ferða- áætlanir," segir Guðmundur. „Um allt meginlandið býðst úrval bílaleigu- bíla á hagstæðu verði. Auðvitað geta menn séð um þetta sjálfir líka, því að allar upplýsingar eru á vefsíðu okkar, w/w\iv.icelandeKpress.is, og auðvelt aðgengi er að þeim, en stundum hentar betur að fá aðstoð þegar tími er lítill til stefnu. Enda eru þjónustufulltrúarnir okkar sérfræðingar í þessu og vita allt sem vita þarf." Þjónusta Viðskiptaferðadeild lceland Express þjónar fyrirtækjum sem vilja lækka ferðakostnað sinn á öllum sviðum. i deildinni starfar samhentur hópur fólks með víðtæka reynslu í ferðaþjónustu. H!i Magnea, Sigurborg og Dagný í viðskiptaferðadeildinni. KYNNING 9

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.