Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 78
JÓN SCHEVING THORSTEINSSON
Baugsmaðurinn
í New Bond Street
Jón Scheving Thorsteinsson hefur stýrt ijárfestingum Baugs í Bretlandi sl. þrjú ár.
Hann lýsir hér „strategíu“ Baugs í Bretlandi. Jón flýgur út til London alla þriðjudags-
morgna og heim til Islands aftur á fóstudagskvöldum. Núna er hann að breyta til og
hefja störf hjá íjárfestingarfélagi sem hann hefur stofnað ásamt Baugi og fleirum.
Eftir Sigrúnu Davíðsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
að glampar á kristalla og eðalsteina þegar nálgast er skrif-
stofur Baugs í London. Raunar ekki af Baugi sjálfum,
heldur eru það gull- og gersemisbúðirnar í næstu húsum
sem leggja til ljómann þarna á New Bond Street, þar sem skrif-
stofan er uppi á lofti.
Þegar upp er komið blasir við rúmgott skrifstofuhúsnæði.
Tvær aflokaðar skrifstofur með glerveggjum út í
almenninginn með handahófskenndum húsgögnum líkt og
enginn hafi mátt vera að því að koma sér almennilega fyrir
áður en tekið var til höndunum. Og þarna síðdegis eru
kókdósir og poki utan af samloku enn á borðum. Hér bendir
allt til að hlutirnir gerist hratt.
Undir það tekur Jón Scheving Thorsteinsson sem stýrir
erlendum fjárfestingum Baugs í London. Þennan daginn er
Gunnar Sigurðsson, fjármálastjóri Baugs, líka á skrif-
stofunni. Þarna taka menn til skiptis flugvél og bílinn í
vinnuna, allt eftir hvort unnið er í London eða Reykjavík, þó
Jón sé reyndar eins og er að mestu starfandi í London. En
þar sem ijölskyldan býr á Islandi er helgarlífinu lifað heima.
„Þetta er allt í lagi meðan vinnan er svona skemmtileg en
þetta er óskemmtilegt álag til lengdar," segir Jón og segist
sakna ljölskyldunnar ákaflega.
Arcadia, Oasis, Hamleys, Big Food Group, Somerfield og
House of Fraser eru allt vel þekkt bresk fýrirtæki og vöru-
merki, sem eiga það sammerkt að þar hefur Baugur komið við
sögu. Og einmitt vegna þess hve nöfnin eru þekkt þá er
Baugur stöðugt í breskum fjölmiðlum í takt við umsvifin.
En aðeins til uppriflunar. Fyrst spratt Bónus upp úr kössum
78