Frjáls verslun - 01.02.2004, Side 79
BAUGUR í BRETLANDI
Fjárfestingar Baugs ■ Bretlandi nema 43 milljörðum.
í Skútuvogi árið 1989, svo var Hag-
kaupum bætt í sarpinn 1998, Baugur
skráður á markað i Kauphöllinni árið
eftir og sama ár voru fyrstu sérleyfis-
samningarnir gerðir við Arcadiu og
Debenhams. Þeir samningar beindu
athyglinni út á við og árið 2000 eignaðist
Baugur rúmlega 20 prósent í Arcadiu,
auk þess sem opnaðar voru 23 verslanir
á íslandi og í Sviþjóð.
Smásöluverslun var kjarninn. En upp
úr sölu á hlut Baugs í Arcadiu 2002
breyttist eðli fyrirtækisins. Þótt smásöluverslunin væri enn í
brennidepli var það ekki lengur sjálfur reksturinn, heldur ljár-
festingarnar, að mestu í verslunarfyrirtækjum í samvinnu við
stjórnendur þeirra, sem allt gekk út á. Fyrir um ári keyptu
stærstu eigendur Baugs öll hlutabréfin í Baugi og afskráðu
félagið. Jón Scheving bendir á að Baugur sé í raun einstakt
meðal íslenskra fyrirtækja því að ekkert íslenskt fyrirtæki
starfi eins og Baugur.
-_En afhve.rju er Baugur íLondon?_________________________
-Adam Smith talaði um Englendinga sem þjóð búðaloka og
bað er nokkuð til í þvi. Hér á verslunarrekstur sér langa sögu
°g það sem einkennir þennan markað er að það er ekki aðeins
verið að selja vörur, heldur er verslað með búðir rétt eins og
hveija aðra vöru. Þetta er því fi'nn heimur að koma inn í. Hér er
þróaður og vel skipulagður markaður bæði innlendra og
erlendra verslunarmanna sem draga hagkerfið áfram. Bret-
land er því kjörinn staður fyrir okkur.
Þar við bætist öflugur og mjög faglegur Jjármálamarkaður í
London. Ef verkefnin eru góð þá fæst líka í þau fé. Þetta faglega
umhverfi er öðruvísi en heima, þar sem bankageirinn er
reyndar þróaður og stenst fyllilega samanburð við það sem hér
er, en afskipti samfélagsins af öllu tagi eru mikil heima, ekki
bara pólitísku afskiptin, af því samfélagið er svo smátt í sniðum."
-Hvað serir Baugur í London?______________________________
»Við erum annars vegar að kaupa og selja í félögum, rekum
hér sjóð safnhlutabréfa upp á 180 milljónir punda í félögum
eins og Big Food Group, Somerfield, House of Fraser og fleiri
fyrirtækjum. Hins vegar höfum við keypt fyrirtæki að miklu
eða öllu leyti - fyrirtæki eins og Oasis og Hamleys, sem eru
þekkt fyrirtæki, og svo Julian Graves, búðarkeðju sem
sérhæfir sig í hollu snarli. I þeim félögum, sem við eigum
safnbréf í, sitjum við ekki í stjórnum en í þeim fyrirtækjum,
sem við eigum að mestu eða öflu leyti, sitjum við í stjórnum.
Við höfúm ákveðnar og mjög nákvæmar forsendur sem við
förum eftir um þau fyrirtæki sem við eignumst hlut í.“
-Hvað er t>að sem þið hafið áhuga á?______________________
„Við höfum áhuga á fyrirtækjum af ákveðinni stærð sem ráða
yfir þekktum vörumerkjum og sem hafa góða vaxtarmögu-
leika, helst alþjóðlega. Það er síðan algjör forsenda að ná
góðu samstarfi við stjórnendur þannig að úr verði gott teymi,
enda göngum við oftast inn í þessi kaup með stjórnendunum.
Við álítum að við getum lagt ýmislegt fram, bæði reynslu sem
við höfum af rekstri 12 smásölufyrirtækja og annað sjónar-
horn en Bretar hafa vanist. Bretar eru mjög stilltir inn á Sam-
veldislöndin en eftir ýmsar hrakfarir í útrás breskra
verslunarfyrirtækja á síðasta áratug eru þeir ragir við það.
Við lítum hins vegar til Norðurlanda, enda þekkjum við til þar
og það er þekking, sem er almennt ekki til staðar hér í
smásölufyrirtækjum. Við höfum áhuga á vörumerkjum á
heimsmælikvarða sem eiga þá erindi annað.“
-Þannig að það eru fjárfestingarumsvifin en ekki verslunar-
rekstur sem slíkur sem þið hafið auga á hér._______________
„Við erum reyndar kallaðir „retailers" hér, smásöluaðilar líkt
og bæði Philip Green og Tom Hunter sem við höfum mikið
starfað með. Við tökum þátt í rekstrinum í gegnum stjórnina
og fylgjumst mjög vel með, fáum daglegar sölutölur og aðrar
upplýsingar, leggjum línurnar en tökum ekki beinan þátt í
daglegum rekstri þó að við beitum okkur í gegnum sljórnirnar
ásamt því teymi sem er þar.“
Þegar borið er undir Jón að í mikilli umflöllun um Baug hér
hafi því verið slegið fram í Guardian að þeir séu það sem
kallast „market raiders", kaupi fyrirtæki, flensi allt frá og selji,
fer hann að hlæja og segir að kannski segi Guardian og Sun
þetta, en Baugur sé ekki aðeins þekkt fyrirtæki hér heldur
einnig vel kynnt. „Við kaupum almennt lítil félög, sem við
álítum vanmetin en með góða vaxtarmöguleika, og síðan
seljum við fyrirtækið þegar við álítum það hafa náð eðlilegum
stað eða jafnvel betur en það.“
-Hvernig er að flytja sig frá umsvifum í jafn hefðarlausu þjóð-
félagi og því íslenska yfir í breska formfestu?____________
„Hér rétt hjá er húsið sem Handel bjó í og síðan Jimi Hendrix,
sem er gott dæmi um að útlendingar hafa alltaf átt greiðan
aðgang hér. London er svo alþjóðleg borg. Julian Graves er í
Birmingham og þar er andrúmsloftið allt annað. Við vinnum
hér með föstum hópi og um helmingur þeirra eru
útlendingar. Engir fordómar eru gegn útlendingum í því
umhverfi þar sem við störfum og London er borg sem metur
hæfileika að verðleikum."
-Hvernig er ferlið í kringum kaup og sölu fyrirtœkja?______
„Þetta er komið í frekar fastar skorður hjá okkur. Við vinnum
79