Morgunn - 01.06.1969, Blaðsíða 56
50
MORGUNN
kvöld eitt, meðan ég lá, að veðrið var mjög vont; bátar voru
þá allir komnir, nema bátur sá, sem faðir stúlkunnar var á;
hann var ókominn og menn voru orðnir hræddir um, að
eitthvað hefði orðið að. Ég vissi þetta og maðurinn minn
hafði farið niður eftir, ef vera kynni að einhverjar fréttir
kæmu.
Ég varð þá ein inni. Stofa var fram af svefnherberginu
og hurðin lokuð á milli. Ekki vissi ég, hvar telpan var. Þá
tek ég allt i einu eftir því, að mér finnst eins og ég hafi enga
fætur. Ég athuga þetta rólega, en það hefur ekkert að segja
— ég finn ekki til fótanna; svo smáfærist þetta tilfinningar-
leysi upp eftir líkamanum og að lokum fann ég ekkert nema
höfuðið. Mér þótti þetta afskaplega undarlegt og skildi ekk-
ert í þessu, og dálítið fannst mér það óþægilegt að hafa ekk-
ert nema höfuðið. En ég átti eftir að verða enn meira undr-
andi, þvi að næst fann ég, að ég stóð á gólfinu fyrir framan
rúmið og sá líkama minn liggja í rúminu. Ég varð alveg
steinhissa; samt datt mér í hug, hvort þetta væri ekki dauð-
inn. Mér fannst það nú samt ekki sennilegt, því að ég hafði
ekki verið svo veik, að það væri líkleg skýring. Ég varð því
að leggja árar í bát, hvað skýringu snerti. Ég fór þá að líta
kringum mig; líkama hafði ég, að mér fannst, en hann var
allt öðruvísi en sá gamii, því að mér fannst ég strax finna, að
nú gæti ég farið ferða minna frjáls, hvert sem ég vildi; ég
fann, að munurinn var afskaplegur. Þá tók ég eftir því, að
allir veggir voru eins og gagnsæir. Ég notaði mér það og sá
þá, að í næstu stofu sat telpan, sem ég hef áður getið um. Ég
sá, hvar hún sat, og sá, að hún var að gráta; ég mundi ekki
i svipinn eftir neinu, sem valdið gæti henni hryggð, en mér
fannst strax ég finna svo innilega til með henni. Allt í einu
mundi ég það, að pabbi hennar var í ofveðrinu á sjónum.
Nú þótti mér gott að vera frjáls, — nú skyldi ég fara og
leita að bátnum. Mér fannst ég fara út í myrkrið og illviðr-
ið; það gjörði mér nú reyndar ekkert til; ég vissi af því, en
fann það ekki.
Nú hagar svo til, að norðanmegin við höfnina í Keflavík