Morgunn - 01.06.1969, Blaðsíða 54
48
MORGUNN
er nú margt glatað og gleymt, sem áreiðanlega hefði verið
fengur í að eiga og geyma.
Þegar Sálarrannsóknafélag íslands var stofnað þann 19.
desember 1918, mun hún hafa fagnað því og þráð að kynn-
ast þessum málum nánar og fá þar aukna fræðslu og skýr-
ingar á þeim undarlegu hæfileikum, sem hún var gædd og
þeirri sérstæðu reynslu, sem hún hafði orðið fyrir, en marg-
ir töldu þá vera markleysu og hégómann einn.
Nokkur kynni munu þá fljótlega hafa tekizt á milli henn-
ar og forseta félagsins Einars H. Kvarans. Mun hún hafa
sagt honum nokkuð frá reynslu sinni. Leiddi það til þess, að
fyrir þrábeiðni hans lét hún til leiðast að flytja erindi á fundi
félagsins 4. desember 1919. Var það síðan birt í I. árgangi
Morguns árið 1920.
Mér er tjáð, að frú Marta hafi einnig verið gædd beinum
miðilshæfileikum og haldið um skeið nokkra slíka fundi,
vafalítið fyrir áeggjan Einars H. Kvarans. En heilsa hennar
reyndist ekki nógu sterk til þess, að hún gæti stundað þau
störf að staðaldri, og munu þau því hafa fallið niður.
Þar sem nú er liðin nær því hálf öld frá því þessi kona, þá
aðeins þrítug að aldri, sýndi það þrek og þá djörfung, sem
þá var fátíð, að skýra opinberlega frá því sem fyrir hana
hafði borið, og þar sem Morgunn frá þessum árum mun nú
vera í fárra manna höndum, hef ég talið rétt að birta hér
nokkra kafla úr erindi hennar.
En þetta geri ég þó ekki sizt vegna þess, að þessi reynsla
er að mínu viti ekki aðeins merkileg í sjálfu sér, heldur á
hún erindi nú til allra hugsandi manna, engu síður en fyrir
50 árum. Og enginn, sem þekkti frú Mörtu, bæði þá og síðar,
getur efazt u.m, að hún segi þar svo satt og rétt frá fyrirbær-
unum, sem henni var framast unnt.
Sjálfri farast henni þannig orð í stuttum formála að frá-
sögnunum sjálfum:
,,Ég ætla ekkert að segja um þessar dulskynjanir mínar
annað en það, að það er ásetningur minn að segja nákvæm-
lega rétt frá — segja ekkert annað en það, sem ég veit fyr-