Morgunn - 01.06.1969, Blaðsíða 70
64
MORGUNN
það, að tíminn líður, enda þótt hann reynist okkur misjafn-
lega bjartur og góður og okkur finnist hann stundum lengi
að líða, þegar eitthvað amar að, en aðrar stundir of fljótar
að hverfa, þegar allt leikur í lyndi. Þó er okkur sagt, að í
raun og veru þokist þetta, sem við köllum tíma, ætíð áfram
með sama hraða. Og hann ber okkur öll með sér þessa óvissu
en þó einu og sömu leið, frá vöggunni til grafarinnar. Við
segjum, að tíminn sé ævarandi, eigi sér hvorki upphaf né
endi. En við vitum þetta þó ekki með neinni óyggjandi vissu.
Við höldum það bara. Enginn veit hvað tíminn er í raun og
sannleika. Elífð tímans er hugtak, sem við ekki fáum skilið
né skýrt.
Hitt vitum við aftur á móti öll, að okkar tími, tími þinr.
og tími minn, hann er takmarkaður að minnsta kosti hér á
jörð. „Enginn veit sína ævina fyrr en öll er“. Þetta er máls-
háttur eða spakmæli, sem við öll kunnum og vitum, að er
sannur. 1 honum felst ekki aðeins það, að framtíðin er jafn-
an hulin móðu og mistri, og við ráðum mjög óljóst í það,
hvernig hún muni verða eða hvað hún muni færa okkur,
heldur er okkur einnig og engu siður hulið, hvað ævitími
okkar hér kann að verða langur. Við vitum að vísu, hve
miklu af þeim tíma við erum þegar búin að eyða, það er að
segja, hvað við erum orðin gömul. Hitt vitum við aldrei,
hversu mikið við eigum eftir af honum.
Stundum heyrum við þannig tekið til orða, að tíminn sé
peningar. Þetta má á vissan hátt til sanns vegar færa, enda
þótt því fari harla f jarri, að tíminn verði okkur öllum að pen-
ingum, eða við höfum öil mikið upp úr honum á þann hátt,
enda öldungis óvíst, að okkur sé tíminn gefinn fyrst og
fremst til fjár í bókstaflegum skilningi þess orðs. Enda
kemur og munurinn á þessu tvennu harla fljótt í ljós, ef
hugsað er um það. Þú þarft engan veginn að eyða pening-
um þínum um leið og þú eignast þá. Þú getur safnað þeim í
kistuhandraðann eins og karlarnir sumir gerðu í gamla daga.
Þú getur lagt þá í banka og látið þá þar bera vöxtu af sjálfu
sér og eytt þeim svo löngu seinna, þegar þig langar til eða