Morgunn - 01.06.1969, Blaðsíða 36
30
MORGUNN
Þetta starf hefur í raun og veru borið stórkostlegan ár-
angur, þótt það væri unnið að verulegu leyti í hjáverkum
og fé og tæki til þess að geta leyst það af hendi á strang-
vísindalegan hátt væri oft af skornum skammti. Það var
mikið lán, að til forustu á þessum sviðum völdust þegar í
upphafi margir af færustu og ágætustu vísindamönnum síns
tíma, menn sem nutu óskoraðs álits og trausts og margir
höfðu hlotið heimsfrægð fyrir vísindaafrek á ýmsum svið-
um. Þeirra þáttur varð til þess að vekja meiri og almennari
athygli og áhuga á þessum málum en annars hefði orðið.
Að sjálfsögðu mætti það andúð og jafnvel fyrirlitningu
margra. Og það sem einkennilegast var. Sjálf kirkja Krists,
sem þó í rauninni er grundvölluð á staðreynd upprisunnar
og lífsins eilífa og á gildi mannssálarinnar og sigri yfir dauð-
anum, sýndi i ýmsum löndum þessum málum ekki aðeins
óskiljanlegt tómiæti, heldur á stundum fulla andúð, og gerir
það jafnvel enn í dag. En þrátt fyrir þetta hefur þó starf
sálarrannsóknafélaganna orðið til þess að valda gjörbreyt-
ingu, já, nærri því byltingu í hugsunarhætti og viðhorfi al-
mennings til þessara mála, einnig hér á landi.
Og nú er svo komið, að raunvísindin sjálf eru að vakna til
skilnings á þvi, að ekki aðeins himingeimurinn og stjömurn-
ar, ekki aðeins hin ytri náttúra og kraftar hennar, ekki að-
eins mannslíkaminn og lækning líkamlegra meina, ekki að-
eins efnið, heldur andinn, mannssálin sjálf með öllum sin-
um dularfullu eigindum og hæfileikum, séu þeim ekki aðeins
verðugt viðfangsefni, heidur sé aukin þekking á þeim svið-
um það, sem nú ríður mest á. Og að þekking mannsins á sjálf-
um sér, sinni eigin sál, sínum andlegu hæfileikum og þeim
lögmálum, sem á þeim sviðum ríkja, sé megin skilyrði þess,
að unnt verði að skapa hamingjuríkt samfélag mannanna og
frið á jörðu, og vernda mannkynið frá þeim ægilega háska,
sem yfir því vofir vegna þess að lögð hefur verið blind
áherzlu á að leysa úr læðingi þau reginöfl, sem menn hafa
ekki sálarþroska til að notfæra sér til blessunar, heldur ógna
nú öllu lífi á jörðu með allsherjar tortímingu. Ég vona, að