Morgunn - 01.06.1984, Page 8
6
MORGUNN
leika og gefa fólki kost á að sjá og heyra frá þeim sem
náð hafa þroska á þessu sviði.
— En eftir hverju eru menn að leita í þessum efnum?
Er það persónuleg eða vísindaleg sönnun þess að yfirskil-
vitlegar (dulrænar) skynjanir eigi sér stað, þ. e. að vitn-
eskja um staðreyndir geti borist mönnum án milligöngu
skilningarvitanna? Eða eru þessi mál ekki komin á það
stig að spurningin sé fremur um það hvernig slíkar skynj-
anir berist?
Og þá einnig hvort þær séu tengdar framlífi einstaklings-
vitundar í einhverri mynd eða hvort aðrar skýringar á slík-
um skynjunum séu líklegri eða sannari?
Það er reyndar ekki hugmyndin að svara þessum spui-n-
ingum eða öðrum sem oft leita á hugann, i þessu greinar-
korni, heidur segja örlítið frá hæfileikum breska miðilsins
Eileen Roberts og ,,óvísindalegri“ athugun sem ég gerði
á tveim skyggnilýsingaí'undum af fjórum, sem hún hélt í
október 1983.
ÓLÍKAR SKYNJANALEIÐIR
Eiieen Roberts er formaður sambands breskra miðla og
hefur starfað víða um heim. Iiún telur að margir miðlar
geri sér ekki grein fyrir því eftir hvaða leiðum uppiýsing-
ar berast til þeii’ra, því um sé að ræða mismunandi skynj-
unarleiðir. Eiieen leggur áherslu á að þeir sem næmir eru
á dulrænar skynjanir verði að átta sig á því hvernig þær
skynjanir verði til og taki ekki á móti þeim i tíma og ótíma
heldur ætli sér ákveðnar stundir.
Sjálf hefur hún mjög fjölbreytta skynjunarhæfileika og
greinir skýrt á milli þeiri’a. 1 stói’um di’áttum má skipta
þeim i eftii’farandi fjóra þætti:
1. Hlutskyggni
Eileen getur skynjað oi’kusvið hluta og þannig fengið
upplýsingar um ýmsar staðreyndir og atburði sem tengdir