Morgunn - 01.06.1984, Blaðsíða 34
32
MORGUNN
sem þeir fást við, hver sé undirrót þeirra, með hvaða hætti
þau nái að birtast eða hvernig þau samrýmist vitneskju
sem aflað hefur verið í öðrum vísindagreinum. í náttúru-
vísindum er ekki talið nægilegt að lýsa atburðum, heldur
er markmiðið fyrst og fremst að leita orsaka og finna regl-
ur eða lögmál. Þar er það talin ein helsta leiðin til árangurs
að setja fram kenningar og prófa þær. Kenninga er vissu-
lega þörf í dularsálfræði, því að niðurstöður tilrauna (að
svo miklu leyti sem um ákveðnar niðurstöður er að ræða)
stangast mjög á við niðurstöður úr öði’um vísindagreinum.
Til dæmis er svo að sjá, að við hugsanaflutning skipti fjar-
lægð milli sendanda og viðtakanda ekki máli. Þetta var
eitt af þeim atriðum, sem Albert Einstein þóttu grunsam-
leg, þegar hann var beðinn að segja álit sitt á dularsál-
fræði.5)
Þegar gagnrýnendur hafa rannsakað vinnubrögð þekktra
dularsálarfræðinga, hefur iðulega komið í ljós, að tilraunir
þeirra hafa ekki verið nægilega vel úr garði gerðar, þeim
hefur sést yfir hugsanlegar náttúrlegar skýringar, varúðar-
ráðstafanir gegn blekkingum hafa verið ónógar, og blekk-
ingarnar hafa oft á tíðum sannast. Þetta á m.a. við um
ýmsar tilraunir sem dularsálfræðingar höfðu áður talið
pottþéttar og stillt í fremstu röð sem sönnunargögnum.G)
Raunvísindamenn verða að kyngja þeirri óþægilegu stað-
reynd, að ýmsir úr þeirra hópi, virtir gáfumenn, hafa látið
blekkjast af óprúttnum svikahröppum, sem hafa fengið þá
til að staðfesta að hin og þessi yfirskilvitleg fyrirbæri
væru ósvikin. Reynslan hefur sýnt, að skynsamlegt sé að
láta færan töframann fylgjast með tilraunum af þessu tagi
til að sjá við hugsanlegum prettum. Margir þekktir töfra-
menn hafa sýnt þessu verkeíni áhuga á liðinni tíð. Má þar
t.d. nefna þá John Nevil Maskelyne og Harry Houdini.
Houdini var mjög afkastamikill við að fletta ofan af starf-
semi miðla, þegar hún stóð með mestum blóma.7) Ýmsir
telja, að afhjúpanir Houdinis og strangara eftirlit með
miðlum, sem fylgdi i kjölfarið, séu skýringin á því, að