Morgunn - 01.06.1984, Blaðsíða 11
SÁI.ARRANNSÓKNIR
9
Þar næst segir hún frá því að t.d. móðir fundarmanns,
tiltekið skyldmenni eða kunningi sé látinn og lýsir útliti
og ýmsum einkennum í fari hins látna, skapgerð eða öðru
því sem fundarmaður gæti vitað um þann sem er í sam-
bandinu. Þá gat hún oft um dánarorsök og í nokkur skipti
nefndi hún einnig nöfn viðkomandi. Hún lýsti einnig fólki
sem var í tengslum við þann látna og i þeim tilvikum
virtist helst áberandi að fundarmaður þekkti ekki til við-
komandi. 1 sumum tilvikum sagði hún hvernig fundarmað-
ur gæti aflað sér vitneskju um að rétt væri farið með.
Þá lýsti hún einnig atvikum sem nýlega hefðu gerst hjá
fundarmanni. Kom það stundum skemmtilega á óvart, þeg-
ar því hafði verið neitað ákveðið að tiltekið atvik hefði
gerst, að fundarmaður mundi skyldilega eftir því að það
sem Eileen nefndi, hafði einmitt átt sér stað fyrir nokkr-
um kiukkustundum.
Sem áhorfanda og hlustanda á þessum fundum virtist
mér að hluti þeirra upplýsinga sem Eileen fær séu þannig
að hún geti ekki alltaf sett þær fram sem staðhæfingar
heldur þurfti hún sjálf að túlka að einhverju leyti samheng-
ið og setja upplýsingarnar fram í spurnarformi. Oft var
það þó að hún sagði frá því, sem hún sá og heyrði, án þess
að vita hvað það táknaði.
Sem dæmi má nefna að þegar hún hafði gefið mjög
greinargóða lýsingu á aðila að handan, sem í öllum atrið-
um var staðfest af fundarmanni að hann þekkti og vissi
að væru réttar, sagði hún eitthvað á þessa leið:
Ég skil þetta ekki en skyndilega er veriö að sýna mér
flugvél sem flýgur í miklu skýjaþykkni. Fundarmaðurinn
sem sambandið var við sagðist hins vegar skilja það vel
því sá sem hún lýsti hefði verið flugmaður. f framhaldi
af þessu kom svo enn nákvæmari lýsing hjá Eileen á ýmsu
viðkomandi flugmanninum, sem farinn var, atriði sem
einnig voru staðfest sem réttar upplýsingar.